Læknaneminn - 01.03.1956, Qupperneq 5
LÆKNANEMINN
5
HEMOPTYSIS
Æfingarritgerð í lyflæknisfræði eftir Friðrik Sveinsson, stud. med.
Skilgreining. Með hemoptysis er
átt við blóð í hráka (sputum),
þ.e.a.s. allan blóðuppgang frá
tractus respiratorius. Blóðmagnið
getur verið mjög mismunandi, allt
frá því að vera örlitlir blettir eða
rákir blandaðar meiri eða minni
hráka, upp í það að vera hrein
blæðing (30 cc., eða allt upp í 300
cc. í einu) og getur þá verið ban-
væn.
Orsakir. Hemoptysis verður með
þeim hætti, að blóð kemst inn í
bronchus eða alveoli, vegna þess
að æðar (arteriur, venur eða ca-
pillerur) springa eða rifna.
Skulu nú greindar helztu or-
sakir þessa.
I. Lungnasjúkdómar:
A. Acut og krónískir inflammator-
ískir sjúkdómar í lungum og
lungnapípum.
1. Berklar.
2. Bronchiectasis.
þyrmingarnar. Um batann var mér
ókunnugt.
Viðtökurnar voru yfirleitt hinar
vingjarnlegustu, eins og að vísu
á öllum sjúkrahúsum, sem ég
heimsótti, eða þurfti að leita til í
Suður-Ameríku. Sjúkrahúsið hafði
sinn eiginn bílakost; ekki var við
annað komandi, en að mér væri
ekið um borð, er ég kvaddi og
þakkaði fyrir alla gestrisnina. —
Seyðisfirði, 21. jan. 1956.
Egill Jónsson,
3. Abscessus og gangrena.
4. Lungnabólgur (einkum Fri-
edlándder og víruslungnab.).
5. Fungus og parasitainfec-
tionir.
6. Krónískur bronchitis.
7. Pertussis.
B. Aðrir sjúkdómar í lungum.
1. Æxli, bæði góð- og illkynja,
svo og meinvörp frá illkynja
æxlum annars staðar í lík-
amanum.
2. Infarct í lungum.
3. Emphysema og atelectasis.
C. Áverkar og aðskotahlutir.
II. Aðrir sjúkd. en lungnasjúkd.:
1. Hjartasjúkdómar.
2. Blóðsjúkdómar.
3. Ulceration í trachea og lar-
ynx.
4. Skyrbjúgur.
5. Aneurysma aortae.
6. Hitasóttir (tyfus o. fl.).
Mun nú leitazt við að skýra nán-
ara frá þessum sjúkdómum, sem
orsök að hemoptysis.
Lungnaberklar munu vera ein
algengasta orsök fyrir hemoptysis.
Talið er, að hemoptysis komi fyrir
í meira en helming allra tilfella
af lungnaberklum. Getur stundum
verið eitt fyrsta ,,lokal“ einkennið,
sem í ljós kemur við þennan sjúk-
dóm. Þegar berklaysting, sem er
necrosis, sem myndast fyrir áhrif
berklatoxina og er talin byrja að
myndast í lok annarrar viku frá
smitun, tekur að linast upp, er