Læknaneminn - 01.03.1956, Qupperneq 16
LÆKNANEMINN
/6'
skipir ekki máli í því sambandi,
hvar í líkamanum þeir verða. Hlýzt
af þessu leucocytosis, og er talið
að hún stafi af því, að frá hinu
sjúka svæði berast inn í circula-
tionina efni, er stimuleri blóðmynd-
unarvefnin. Þessi eiginleiki blóð-
myndunarvefjarins kemur líkam-
anum að góðu gagni, því að þannig
eykst varnarlið hans þegar hætta
er á ferðum. Stundum fer þó verr
eri skyldi, því að innrásarliðið get-
ur valdið svo mikilli toxemi, að
blóðkornamyndunin minnki að
mun eða hætti. Verður þá leuco-
cjdopeni.
Eins og uppruni hinna ýmsu
tegunda hvítra blóðkorna er mis-
munandi, eins verður næmi
hinna ýmsu blóðmyndunarfruma
fyrir þeim efnum, er að þeim ber-
ast, mismunandi mikið. Því getur
einni tegund leucocyta f jölgað mun
meira en annarri við sömu skilyrði.
Þetta veldur því, að hvít blóðmynd
verður mjög mismunandi eftir því
hvað að er, og því getur rannsókn
á henni verið mikilvægur þáttur
í sjúkdómsgreiningu.
Við skoðun hvítra blóðmynda, er
algengast að sjá sjúklegar breyt-
ingar á fjölda neutrofil leuco-
cyta eða segmentfruma, eins og
þær eru venjulega kallaðar.
Segmentfrumurnar hafa mikinn
fagocyterandi hæfileika, og er talið
að stimulus fyrir fjölgun þeirra
sé nucleinsýrur og sölt þeirra, er
berast inn í blóðið við niðurbrot
vef ja. Þegar óeðlilega mikið brotn-
ar niður af vef, myndast jafnframt
of mikið af segmentfrumum, nema
processinn sé svo toxiskur, að það
hindri fjölgun þeirra, eða resistens
líkamans sé minnkaður áður af
einhverjum ástæðum.
Neutrofil leucocytosis verður að-
allega við akut infektionir, er pyo-
genir kokkar valda, svo og B. coli
og B. pyocyanaceus.
Þeir sjúkdómar, er af þessum
infektionum hljótast, og oftast
valda neutrofil leucocytosis, eru
ýmsar tegundir akut abdominalia,
svo sem appendicitis, cholecystitis,
peritonitis, salpingitis, pyelitis o.
fl., einnig pneumoc. pneumoni,
bronchopneumoni, meningitis, oti-
tis, tonsillitis, osteomyelitis,
endocarditis, empyem og fu-
runculosis, líka sepsis og pyemi,
febris rheumatica og farsóttir eins
og diphter og scarlatina. Sé infek-
tionin mjög svæsin, geta sömu
sýklar valdið svo mikilli toxemi,
að af hljótist neutrofil leucopeni.
Neutrofil leucocytosis getur orðið
af öðrum orsökum en infektion.
Eftir miklar blæðingar verður væg-
ur neutrofil leucocytosis, og jafn-
framt fækkar eosinofil frumum
blóðsins. Þessi process nær há-
marki sínu eftir ca. 10 klst., og
ber að minnast þess að slíkur neu-
trofil leucocytosis verður við blæð-
ingar af extrauterin gravidititeti
áður en einkenni um blóðmissi fara
að sjást. Lítur það því eins út og
infektion í peritonealholi. Intra-
dural blæðingar valda þessari leu-
cocytereaktion, einnig blæðingar
í liðhol. Trauma veldur neutrofil
leucocytosis. Malignir tumorar, svo
sem carcinoma og sarcoma, valda
henni stundum, sérstaklega ef þeir
eru í tractus intestinalis og lifur,
eins, ef metastasar eru í merg.
Þó getur leucopeni orðið af slík-
um metastösum.
Ýmsar tegundir leucemi koma
fram sem neutrofil leucocytosis
eða neutrofil leucopeni.
Leucocytosis getur orðið við in-
toxikationir bæði við beinkröm,
akut gulu, cirrhosis, hepatitis,
uremi og coma diabetes, einnig af
utanaðkomandi eiturefnum, svo