Læknaneminn - 01.03.1956, Síða 17
LÆKNANEMINN
sem blýi, kvikasilfri, kolmonoxydi
og ýmsum lyfjum.
Við circulationstruflanir verður
oft leucocytosis; fyrst f jölgar blóð-
kornategundunum hlutfallslega
jafnt, en að lokum fer svo, að neu-
trofil leucocytosis verður.
Alltaf, þegar mikil nýmyndun
verður á neutrofil leucocytum,
fjölgar stafkjarnafrumum í blóði
og segmentation er ekki eins áber-
andi og í normal blóðmynd. Þetta
er nefnt vinstri hneigð.
Hægri hneigð nefnist það, þeg-
ar frumurnar eru áberandi seg-
menteraðar og lítið af stafkjarna-
frumum. Hægri hneigð sést oft
við anemíu og sjúkdóma af víta-
mínskorti.
Neutrofil leucopenia verður við
hungur og vannæringu, ýmsar in-
fektionir, t. d. inflúenzu, bólusótt,
tyfus, paratyfus og malaríu einnig
við hverja infektion,er veldur mjög
mikilli toxemi, ýmsar intoxikation-
ir af eiturefnum, t. d. arseneitrun
og antimoneitrun, svo og blý- og
kvikasilfureitrun, ef mjög mikið
berst inn í líkamann af þessum
efnum.
Ýmsir blóð- og mergsjúkdómar
koma fram sem neutrofil leuco-
peni. Eosinofilia verður í blóði við
allergi, bæði asthma og húðreak-
tionir, einnig við ýmsa parasita-
sjúkdóma, svo sem sullaveiki.
Excema og fleiri húðsjúkdómar
valda einnig eosinofilia.
Við allar infektionir fækkar
eosinofil frumum blóðsins mjög í
fyrstu, en fjölgar er sjúklingnum
fer að batna, og þegar hann hefur
næstrmi alveg náð sér, verða
eosinofil leucocytar 10% af hvítu
blóðkornunum.
Haldið er, að eosinofilia verði
sem reaktion gegn framandi pro-
11
teinum í circulationinni, og þessar
breytingar, sem verði við akut in-
fektion, stafi af því að aktivitet
mergjarins til að reagera við pro-
teinum minnki meðan toxemian
stendur sem hæst.
Basofilar frumur geta horfið úr
blóði við akut infektion. Þeim f jölg-
ar við chroniska myeloid leucemi
polycythemia vera, og cirrhosis he-
patis.
Þegar hvít blóðmynd sýnir lym-
focytosis, er myndun lymfocyta
annaðhvort óeðlilega ör eða staf-
kjarnafrumur óeðlilega fáar.
Absolut lymfocytosis finnst nor-
malt hjá ungbörnum og reagera
þau oft við infektion með lymfo-
cytosis þar sem neutrofil leuco-
cytosis verður hjá fullorðnum. Sér.
stakar infektionir valda alltaf lym-
focytosis, og eru það oftast bacillu-
infektionir, gagnsætt coccainfekt-
ionum sem áður voru nefndar.
Absolut eða relativ lymfocytosis
verður við batnandi berkla, inflú-
enzu, tyfus, paratyfus og syfilis.
Lymfatisk leucemi, veldur afar
mikilli lymfocytosis. Hið sama get-
ur gerzt við maligna tumora, t. d.
lymfosarcoma og leucocarcinoma.
Monocytosis verður við ýmsa
sjúkdóma, t. d. tuberculosis, endo-
carditis lenta og monocyta leu-
cemi.
Ungar blóðmyndunarfrumur
berast inn í blóðið við allar leu-
cemiur og malign vöxt í blóðmynd-
unarvef. Þær geta og sézt í pre-
parötum, ef um mikla nýmyndun
er að ræða hjá tilsvarandi tegund
leucocyta.
Það verður sennilega hlutskipti
flestra okkar, að baslast við fé