Læknaneminn - 01.03.1956, Blaðsíða 22
LÆKNANEMINN
H
Litefnagreining og læknisfræði
I hinni lífrænu efnafræði Bil.
mans er aðeins drepið lauslega á
að greina megi sundur flóknar
blöndur lífrænna efna með því að
láta þau síga í upplausn gegnum
glerrör, fyllt með ,,adsorberandi“
efni t. d. carbo medicinalis. I mið-
hlutakúrsus er okkur kennt að
mæla bilirubin í þvagi með því að
hella konc. saltpéturssýru á síu-
pappír vættan í þvag-alkohol-joð-
blöndu, og koma þá fram marglit-
ir hringir á pappírnum, ef serum-
bilirubin er um og yfir 2,5 mg%.
Rannsóknaraðferðir þessar heita
einu nafni chromatografía, sú
fyrri súlu- en sú síðari pappírchro-
matografía.
Eins og kunnugt er, hafa orðið
stórstígar framfarir á flestum
sviðum líf- og læknisfræði á síð-
ustu áratugum. Hafa þar átt hlut
að færustu menn í ýmsum vísinda-
greinum. Einn hlekkur í þeirri
keðju er áðurnefnd grein efna-
fræðinnar.
Vinnuaðferðir eru margar í
þessari grein, má þar nefna, súlu-,
raf- og iónskiptachromatografíu.
I þessu stutta yfirliti skal aðeins
vikið að undirstöðuatriðum papp-
írchromatografíu, sem er auð-
veldust, mest rannsökuð og að lík-
indum notadrýgst fyrir almenna
lækna í framtíðinni.
n.
Allir hafa séð þerripappír sjúga
í sig blekklessu. Við gerum sams-
konar tilraunir með blóðdropa og
komumst að raun um, að þar verð-
ur svipað uppi á teningnum, en við
nánari athugun kemur í ljós, að
þar sem blekklessan hefur venju-
lega skörp mörk, (a.m.k. ef blekið
er gott) orsakar blóðdropinn rauð-
an blett og þar fyrir utan kemur
,,litlaus“ hringur þ. e. pappírinn
blotnar af serum eingöngu. Þ.e.a.s.
við höfum ,,skilið“ blóðið. Þetta
er í mjög grófum dráttum undir-
stöðuatriði chromatografíunnar.
Lögmál hennar hafa verið sett
fram á stærðfræðilegan hátt nú á
síðustu árum, og hafa 2 eða 3
menn fengið Nóbelsverðlaun fyr-
ir. Við þá vinnu hefur að mestu
leyti verið stuðzt við rannsóknir
með glerrörum, fylltum af A12Ó3
eða kartöfluméli. Litarefnið er í
vatnsupplausn (upplausnarvökvi),
og er látið efst í rörið, síðan er
,,flutningsvökvinn“ (butanol, ben-
zen, chloroform o.s.frv.) látinn
drjúpa niður í rörið. Með því að
miða flutning litarefnisins við
blotnun súlunnar niður á við, hafa
fengizt svonefnd Rf (ratio front
zone) gildi litarefnisins. Dæmi: ef
litarefnið flyzt 5 cm og „flutnings-
vökvinn“ hefur á sama tíma borizt
10 cm niður í rörið, þá er Rt =
0,5.
Ef A er þverflötur rörsins að innan
S ,,þverflötur“ upplausnarvökva
L „þverflötur“ flutningsvökva
og « = upplausnarhlutfall litar-
efnisins (grömm í cc. af upplausn-
arvökva grömm í cc. flutnings-
vökva), en um það gildir annars
lögmál ROULTs