Læknaneminn - 01.03.1956, Side 23
LÆRN ANEMINN
es
A/»A
ln.a = -----
RT
þá fáum við með því að byrja t. d.
með 1 g litarefnis. : ef dv af upp-
lausnarvökva flytja dx grömm af
litarefni um dr cm, að í fjarlægð-
inni r + 1 cm verða (með því að
nota difrun og binominallíkingu)
n! (1—dv/V) n—r (dv/V)r
------------------------ = Qr-)-! gr.
r! (n—r)!
Ef n er stórt, fæst með líkingu
Stirlings og síðan skekkjulíkingu
Gauss’.:
A
Rf = -------
L + aS
þ.e.a.s. fyrir pappír:
RL L
Rf = — =----------
A L+„S
L 1
eða: a = — (— — 1)
S Rf
(Auk þessa fæst nú með líkingu
ROULTs, ef hiti og L/S er óbreytt:
l
Rm = iog (-----1)
Rf
og mun síðar minnst á gildi þess).
Niðurstaðan úr þessum útreikn-
ingum er sú, að Rf er fall (funct-
ion) af a þ. e. uppleysanleikahlut-
falli efnisins : Rf = f(<*)
m.
Viðbúið er, að flestir séu búnir
að fá nóg af þessum leik, skulum
við því snúa okkur að t. d. litefna-
greiningu aminosýra í þvagi.
Áhöldin við tilraun okkar eru:
örk af síupappír ca. 30 X 30 cm,
blóðsykurpípetta, petriskál og
stór glerkrukka með loftþéttu loki,
og efnin: phenolupplausn, colli-
dinupplausn og veik ninhydrin-
blanda.
Við drögum blýantsstrik þvert
yfir neðanverða síupappírsörkina
og merkjum á það upphafspunkt.
Með pípettunni látum við drjúpa
t. d. 10 mm3 af þvaginu, sem rann-
saka skal, á upphafspunktinum og
látum svo pappírinn þorna. Síðan
vefjum við örkina upp, þannig að
strikið myndi hring, og stingum
þeim enda, sem nær er strikinu,
niður í petriskál með phenolupp-
lausn í. Þetta er allt sett í gler-
krukkuna og henni lokað loftþétt.
Svo bíðum við t. d. 12 tíma.
Phenolið fikrar sig nú upp eftir
örkinni og flytur með sér öll þau
efni, er í þvagdropanum voru,
beint upp eftir lóðréttri línu, sem
er hornrétt á blýantsstrikið. En
efnin flytjast mishratt og er hrað-
inn háður ýmsum eiginleikum
þeirra, svo sem pk, ionklofningu,
tvíbindingum, keðjulengd, hliðar-
keðjum, cis og transmyndum, d-
og 1-isomerum o.fl., o.fl.
Við tökum nú örkina úr krukk-
unni og þurrkum hana, vef jum upp
PHENOL
Upphafspunktur
, ,Einvíddarchromatogramm“ óframkall-
að. Phenolupplausn notuð sem „flutn-
ingsvökvi".