Læknaneminn - 01.03.1956, Side 26
26
LÆKNANEMINN
FRÉTTIR ÚR DEILDINNI
Nýr prófessor.
Dr. med. Sigurður Samúelsson, er
verið hefur deildarlæknir við lyfja-
deild Landspítalans, var skipaður pró-
fessor i lyflæknisfræði og yfirlæknir
lyfjadeildar Landspítalans þann 1. des.
1955. Hann tók við kennslu í lyflæknis-
fræði vegna veikinda próf. Jóhanns heit-
ins Sæmundssonar haustið ’54 og hefur
kennt síðan, að undanskildum hluta úr
síðasta misseri. Þá kenndu, vegna for-
falla hans, dr. med. Sigurður Sigurðs-
son, Björn Gunnlaugsson læknir og
Theódór Skúlason deildarlæknir.
Sigurður lauk stúdentsprófi við
Menntaskólann á Akureyri 1932, með
1. eink., og kandidatsprófi í læknisfræði
við Háskóla Islands 1938, með 1. eink.
Árið 1950 varði hann doktorsritgerð:
Chronic Cor Pulmonale við Hafnarhá-
skóla. Hann var skipaður deildar-
læknir við Lyfjadeild Landspítalans árið
1950.
Prófessorsembætti í lífeðlis- og líf-
efnafræði hefur ekki verið veitt enn.
Fundahöld.
Þann 22. nóv. var haldinn fundur í
Félagi læknanema í matsal Gamla-
Garðs. Fundarefni var að þessu sinni:
Symposium um Thyreotoxicos. Sú ný-
breytni var höfð, að læknanemar fluttu
þetta sjálfir, og þótti takast vel.
Flutningsmenn voru þessir: Örn Arn-
ar, Reynir Valdimarsson, Gauti Arn-
þórsson, Leifur Björnsson, Guðsteinn
Þengilsson, Brynleifur Steingrímsson og
Jóhannes Ólafsson. Að síðustu tók Ólaf-
ur Bjarnason læknir til máls, en hann
hafði verið boðinn á fundinn til þess
að fylgjast með flutningi og leiðbeina.
Fundur var haldinn í félaginu þann
7. des. s.l. Gestur félagsins var Alma
Thorarensen læknir. Flutti hún erindi
er hún nefndi: Framhaldsnám í læknis-
fræði í Bandarikjunum.
Fundur var haldinn þriðjudaginn 14.
febr. síðastl. Gestur félagsins að þessu
sinni var Ólafur Bjarnason læknir.
Flutti hann erindi um hepatitis infecti-
osa.
Einnig voru samþykktar tvær tillög-
ur á þessum fundi.
Sú fyrri var um kynnisferð lækna-
nema til lækninga- og tilraunastöðva (í
læknisfr.) í nágrenni bæjarins.
Síðari tillagan var frá stjórninni,
þess efnis, að lýsa fyllsta stuðningi
við kandidata í væntanlegum samning-
um þeirra um bætt kjör.
Árshátið félagsins var haldin 17. febr.
s.l. að Röðli. Var það hin bezta skemmt-
un og sæmilega sótt.
Þessir stúdentar luku prófum í janúar:
Kandidatspröf.
Brynleifur Steingrímsson, 1. eink. 172%
stig (12,33).
Eiríkur Bjarnason, 1. eink. 147% stig
10,52).
XI. hluti.
Björn Önundarson
Einar Lövdahl
Geir Þorsteinsson
Guðmundur Þórðarson
Hrafn Tulinius
Kristján Jónasson
Jón Guðgeirsson
Nikulás Sigfússon
Sigursteinn Guðmundsson
Stefán Bogason.
I. hluti.
Einar Baldvinsson
Guðmundur Georgsson
Halla Þorbjörnsdóttir
Isleifur Halldórsson
Jón Jóhannesson
Jónas Oddsson
Kjartan Kjartansson
Konráð Magnússon
Páll Þ. Ásgeirsson
Þór Halldórsson
Örn Arnar.
Kúrsusar.
Mönnum er bent á, að nokkur tak-
mörkun hefur verið gerð á þeim fjölda
stúdenta, sem leyft er að vera í einu
í kúrsus á Landsspítalanum.
Á lyflæknisdeildinni mega vera 3 úr
miðhluta og 2 úr seinasta hluta í senn,
eða öfugt.
Á handlæknisdeildinni mega vera
4 úr miðhluta í senn, en engin takmörk-
un á fjölda stúdenta úr síðasta hluta.
Mönnum er ráðlagt og prófessorarnir
æskja þess, að menn hugsi ráð sitt
snemma og panti kúrsús með ríflegum
fyrirvara, svo að ekki standi á kúrsus-
um hjá þeim sem ætla í próf svo og
hins, að spítalinn hafi sæmilegt yfirlit