Læknaneminn - 01.12.1962, Blaðsíða 7
LÆKNANEMINN
7
til þess að minnka geisla magnið,
sem frá lampanum kemur um
helming, t.d. er helmingunargildi
geisla framleiddra við 180 kv
spennu með 15 mA straumgangi
og sem þegar hafa verið filtrerað-
ir með 1 mm þykkri eirplötu um
1,70 mm Cu.
Einingar.
Geislar eru mældir á hreinan fys-
iskan hátt og einingin kölluð ,rönt-
gen“ eða ,,r“, 1 r er það geisla
magn, sem ioniserar 1 cm3 af lofti
0° heitu, við 760 mm Hg þrýsting,
í loftumhverfi, það mikið af þessi
1 cm3 leiði eina electrostatiska
einingu. Orkan svarar til 84 erg á
1 gr af lofti. Þetta gildir um alla
röntgengeisla undir 3 MeV, en
harðari geislar lúta nokkuð öðrum
reglum.
Þegar geislað er lifandi substrat
skiptir það í raun og veru ekki
máli hve mikið það geislamagn
myndi ionisera loft, heldur hitt
hve mikið það ioniserar viðkom-
andi substrat og það er talsvert
mismunandi eftir samsetningu
þess og hörku geislanna. Hefur því
verið tekin upp eining „rep“ (rönt-
gen equivalent physical). Rep er
sú ionisations vinna, sem 1 r fram-
kallar í vatni —1 93 erg/gr. Geisl-
ar, sem myndast við 200 Kv.
spennu valda ekki roða á húð fyrr
en magnið er orðið 800 r í einum
skammti, því við ofangreinda
hörku absorberast það lítill hluti
þeirra í sjálfri húðinni. Af geisl-
un sem myndast við 80 Kv spennu
þarf ekki nema 360 i til þess að
framkalla sama effect í húðinni
og byggist þetta á því, að því
mýkri sem geislarnir eru því fyrr
absorberast þeir og því þéttari
er ionisationin og þai' með biolog-
isk áhrif. Má í þessu sambandi
geta þess, að við 200 Kv verða
£>00 ionisation á 1 my og bilið
milli þeirra um 20 A° við 1 MeV
160 ionisation á 1 my og bilið á
milli þeirra um 60 A°.
Absorptions koefficient vefja
segir til um hve mörgum sinnum
meiri absorption þeirra er, heldur
en vatns við sömu hörku. Til skýr-
ingar má taka fram, að geislar
framleiddir við 60 Kv absorberast
í fitu að 7/10 hlutum þess sem
absorberast í vatni og vöðva, bein
absorbera hinsvegar 5 sinnum
meira en vöðvi. Absorptions koef-
ficient fitu er því 0,7, vöðva 1 og
beins 5 við 60 Kv spennu. 1 rep
í vöðva = 5 rep í beini.
Eftir því sem harka geislanna
vex því minni verður mismunur
absorptionskoefficientanna og
þegar harkan er komin yfir 1 MeV
er hann praktiskt talað 1 fyrir
alla vefi. Einingin rad (radiation
absorbed dose) svarar til 100 erg/
gr. efnis = 1.075 rep ef um vatn
er að ræða.
Venjulega þegar sagt er að ein-
hver sjúklingur hafi fengið svo
og svo mörg r á ákveðna læsion
þá er átt við það, hve mörg r hann
hafi fengið eins og þau mældust
frá röntgenlampanum í lofti, þ.e.
svokallaðui- loftdosis. Það er í raun-
inni ekki nóg að vita það, heldur
hitt líka hve stór skammtur fór
inn í líkamann. Þegar geislarnir
lenda á efni kemur fram svoköll-
uð sekundergeislun. Hún er að
magni háð eðlisþyngd efnisins,
hörku primeru geislanna og stærð
þess húðsvæðis, sem geislarnir
lenda á. Við loftdosis leggst því
niagn sekundæru geislanna, ef
finna á geislaskammt á húð og
það er þýðingar-mikið að vita hve
mikið hún fær, því þoli hennar