Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1962, Blaðsíða 27

Læknaneminn - 01.12.1962, Blaðsíða 27
LÆKNANEMINN er ókunnugur, hafði ég engan tíma til að láta mér leiðast, enda eignaðist ég fljótt góða kunningja sem voru ósparir á að bjóða mér heim og gera mér dagamun. Ég komst fljótt að raun um það, að margt af fólkinu, sem kom fyrstu dag- ana, einkum kvenfólkið, átti lítið annað erindi en að sjá nýja lækninn, vita hvort hann kynni ekki einhverja nýja læknisdóma við kvillum þeirra og hvort þeim bæri saman gamla lækninum og honum. Sjúklingunum fannst mér mega skipta í tvo hópa. 1 öðrum voru börnin. Um þau virtist mér gilda sú regla, að kunnátta mín og geta til að hjálpa minnkaði í réttu hlutfalli við aldur þeirra. 1 hinum hópnum var gamla fólk- ið, og það verð ég að segja, að mér reyndist miklu betra en nokkur vítamln- sprauta, ef ég gaf mér tíma við og við til að heimsækja það og spjalla við það stundarkorn. Á Fagurhólsmýri í Öræfum er útibú frá apotekinu á Hornarfirði. Það kemur sér oft vel að geta afgreitt úr því í gegn- um síma og sparað sér þannig langt ferðalag auk þess, að oft er með öllu ófært í Öræfin um lengri tíma. Hins- vegar sagði Kjartan mér, að fyllsta ástæða væri til að réspectera sjúkdóma eins og kvef og hálsbólgu eða aðrar umgangspestir á þessum slóðum og telja ekki eftir sér sporin þangað þeirra vegna. Öræfingar hefðu margir hverjir sérstöðu að því leyti, að þeir væru ákaf- lega sóttnæmir og væru fljótir að deyja, ef svo bæri undir. Þetta kemur til af því, að þarna býr fólk, sem allt fram á okkar daga, hefur verið mjög einangrað og er því mótstöðulitið gegn þeim pödd- um er herja hversdagslega í þéttbýlinu. Ég held að mér sé óhætt að segja, að ég hafi verið mjög heppinn vicariant. Það er kannske fyrst og fremst því að þakka, að ég slapp við alla obstretic, en það er einmitt í henni, sem héraðs- læknar mega búast við hvað mestum skakkaföllum. Ég ætla að lokum að minnast á þau akut tilfelli, sem reyndu mest á mig, og eru mér því hugstæðust. Ég þurfti aðeins einu sinni að fara í Öræfin. Þar hafði 7 ára drengur dottið á v. handlegg og sennilega brotið hann. Ég var 4 tíma að komast á áfanga- stað. Við inspectio var greinanleg hliðar angulation á distala þriðjungi fram- handleggsins. Hann var óverulega bólg- inn, og ekki gat ég merkt að hæmatom hefði myndast. Eftir að ég hafði infiltr- erað svæðið, þar sem ég ætlaði að brotið væri og einnig interossealt, gat ég pal- perað að vild án þess að drengur kenndi mikið til. Gat ég þá fundið, að báðar pípurnar myndu vera brotnar og réði ég það af því hvernig marraði í brot- endunum, er ég gjuggaði þeim varlega til. Ég gat ekki fundið, að um neina dislocation væri að ræða, að minnsta kosti merkti ég enga brotstalla á bein- pípunum og engin stytting var á hand- leggnum borið saman við hinn, en gott hefði nú verið að hafa röntgenmynd til að styöja sjúkdómsgreininguna. Ég hafði hina ágætu bók, Ferguson, með mér og fylgdi í öllum aðalatriðum því sem þar sagði um meðferð sliks brots. Ég get ekki stillt mig um að geta þess, að þá er ég var búinn að ganga frá handleggnum kom bóndinn og bað mig að líta á konu sína og dóttir, þær væru víst eitthvað veilar fyrir hjarta og játti ég því, að því loknu hvort ég mundi ekki ganga við hjá gamla manninum, sem lægi í kör uppi á baðstofuloftinu. Þá voru komnir 2 frá næsta bæ. Annar þurfti að fá sjón- vottorð og hinn að losna við tönn. Svona gekk þetta fram á rauða nótt. Það getur því verið tímafrekt að fara í eina vitj- un í Öræfin, enda ekki á hverjum degi, sem læknirinn kemur, og sjálfsagt að nota sér það svo sem frekast er kostur. Seinna fékk ég svo annað handleggs- brot til meðhöndlunar, sem vafðist meira fyrir mér. Þar var einnig um að ræða dreng á svipuðu reki og hinn, og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.