Læknaneminn - 01.12.1962, Blaðsíða 11
LÆKNANEMINN
11
ekki stéttarbi óður, ef maður var
á ferðalagi og þess var kostur.
Einangraða lækna þyrsti í and-
legan félagskap.
Það var eitt af fyrstu verkum
Alþingis, er það hafði fengið lög-
gjafarvald, að bæta úr læknafæð-
inni í landinu með því að fjölga
læknishéruðum. Svo er að sjá sem
það hafi eitthvað komið til mála
bá skömmu síðar að reyna að
koma á almennum læknafundi,
því að Fritz Zeuthen, héraðslækn-
ir á Eskifirði, lætur þess getið í
einkabréfi til Hjaltalíns landlækn-
is, dags. 20/1 Í877, að hann hafi
heyrt getið um væntanlegan
læknafund í Reykjavík og kveður
sig langa til að vera þar með.
Lengra hefur það ekki komizt,
en sennilega hefur það verið fyrir
frumkvæði Zeuthens, að fvrsti
læknafundur hérlendis var hald-
inn á Seyðisfirði 16. ágúst 1894
að afloknum amtráðsfundi, en þar
höfðu nokkrir af Austfjarðalækn-
i>num verið mættir sem fulltrúar.
Á þessum fundi voru mættir þess-
ir fimm læknar: Fr. Zeuthen á
Eskifirði, Árni Jónsson á Vopna-
firði, Þorgrímur Þórðarson á
Borgum í Austur-Skaftafellssýslu,
Jón Jónsson á Egilsstöðum og
Guðmundur Scheving Bjarnason
aukalæknir á Seyðisfirði.
Fundargerð þessa fundar mun
vera týnd, en skv. Austra, 24. tbl.
1894, bundust þessir læknar fé-
lagsskap um betri samvinnu og
ákváðu að halda fund árlega.
..Zeuthen varð að fara, áður en
ályktanir voru gerðar“, stendur
þar, svo að fundurinn mun hafa
orðið endasleppur, en þó mun
hafa verið gengið frá stofnun
Læknafélags Austurlands, sem að
vísu varð skammlíft, og fundar-
menn skrifuðu undir áskorun til
heilbrigðisstjórnarinnar, sem sjá
má af bréfi þeirra í skjalasafni
landlæknis, viðvíkjandi lyfjataxt-
anum og nauðsyn á breytingu á
Pharmacopea Danica frá 1868.
Næsta ár, eða 1895, hélt Lækna-
félag Austurlands ársfund sinn á
Eskifirði dagana 15. og 16. ágúst
og mun það einnig hafa verið í
sambandi við amtráðsfund, því að
þar mættu auk fyrrnefndra fimm
lækna amtmaðurinn, Páll Briem,
sýslumennirnir A. V. Tulinius og
Sigurður Pétursson og sýslunefnd-
armaður Halldór Benediktsson á
Skriðuklaustri. Á þessum fundi
voru ýmis merkileg mál rædd og
skal þeirra nú getið:
I. mál:
Læknaskipun. Þessar tillögur sam-
þykktar:
1. Að skora á lækna í hinum
landsfjórðungunum að gera nýjar
tillögur um læknaskipun í hverj-
um landsfjórðungi.
2. 1 Austfirðingafjórðungi séu
10 læknishéruð: Axarf jarðar,
Þistilfjarðar, Vopnafjarðar, Jök-
ulsdals, Upphéraðs, Uthéraðs
(með Borgarfirði), Seyðisfjarðar,
Eskifjarðar, Djúpavogs og Aust-
ur-Skaftafellssýslu.
3. Að leita álits sýslunefnda
Austfirðingafjórðungs um 'lækna-
skipun þar.
II. mál:
Spítalar. Þessar tillögur sam-
þykktar:
1. Að Landspítali sé reistur í
Reykjavík.
2. Að spítali sé stofnaður á
Austurlandi og greiði landsjóður
helming stofnkostnaðar, en jöfn-
unarsjóður amtsins hinn helming.
III. mál:
Farsóttaskýrslur. Þær séu gefn-