Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1962, Side 19

Læknaneminn - 01.12.1962, Side 19
LÆKNANEMINN 19 clryggvi niunclsson, stiid. mecL: DA NMERK URDVÖL Það var að kvöldi hins 31. maí s. 1. að undirritaður rak kollinn inn um gluggagat púrtners Orto- pædisk hospital í Kaupmannahöfn og tjáði honum á sinni beztu ,,gullaldardönsku“, að hér væri kominn „Ásmundsson fra Island" til mánaðar „studieophold“ þar á staðnum. Púrtnerinn brosti elsku- lega og bauð Ásmúnsen velkom- inn þreif tösku mína og stikaði að lyftudyrum merktum: „Til afd. for börn med cerebral parese“. Ekki var ég þó vistaður hjá bless- uðum börnunum heldur vísaði maðurinn mér til gestaherbergis búnu 1. fl. húsgögnum, klæddum hárauðu áklæði, en af veggskrauti bar þar mest á stórfengilegri mynd af Kristjáni X á hestbaki. Síðan fékk ég að sannfærast um ágæti danskrar eldamennsku og sofnaði að því búnu með létta tachycardi. Ortopædisk hospital er stór stofnun a.m.k. á okkar mæli- kvarða. Rúmafjöldi er alls um 275 og er stofnuninni skipt í 2 kir. deildir, deild I og II, sem starfa að mestu óháðar hvor annarri. Auk þess er þar „Fysiurgisk af- deling“, sem sér um æfingameð- ferð bæði sjúklinga á spítalanum og ambulanta. Röntgendeild er þar einnig og loks er þar svo deild fyrir spastisk börn sem rúmar 12 börn. Ég var vistaður á deild I, sem starfar undir stjórn próf. dr. med. Arne Bertelsen. Auk hans störfuðu 6 læknar og 2 kandidatar við deildina þann tíma sem ég var þar. Starfstilhögun er þarna með nokkru öðru móti en við eigum r,ð venjast. Opererað var annan hvern dag og byrjað kl. 8 eins og hér tíðkast. Talsvert var misjafnt hvað opererað var, en þegar mest gekk á var skorið stanzlaust á 3 stofum fram til hádegis og stundum lengur á einhverri þeirra. Aðgerðir voru vitanlega nær ein- göngu ortopediskar og kenndi þar margra grasa. Þarna fékk ég að assistera talsvert, enda var ég eini stúdentinn á deildinni fyrri hluta mánaðarins. Lögðu læknarnir sig fram við að útskýra aðgerðirnar, bæði fyrir og meðan á þeim stóð. Þá daga sem ekki var opererað, var genginn rækilegur stofugang- ur. Höfðu 1. aðstoðarlæknarnir tveir hvor sína deild (d. I A og B), en auk þess hafði annar þeirra allstóra barnadeild að mestu á sínum snærum. Var sú venja á barnadeildinni að þar gekk kandi- dat fyrst, en síðan kom venjulega aðstoðarlæknirinn og „tölti einn eldsnöggan" og leit gjarnan aðeins á þau tilfelli, sem kandidat ósk- aði eftir. Auk þess gekk prófess- orinn og einn læknir með honum venjulega um allar deildir og leit á helztu vandasömu tilfellin. Það vakti athygli mína á stofugangi, að læknarnir önnuðust að mestu sjálfir skiptingu á sárum og eins tóku þeir oftast saumana sjálfir. Röntgenmyndir voru einnig alltaf hafðar með, en ekki látin duga lýs- ing á þeim í journölum. Voru myndirnar mjög haganlega merkt-

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.