Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1962, Qupperneq 21

Læknaneminn - 01.12.1962, Qupperneq 21
LÆKNANEMINN 21 manna um öll erfiðari vandamál, en heldur var þó leitazt við að skammta kandidatinum vanda- minni tilfellin. Aðbúnaður kandi- data var mjög góður, og kandi- datsherbergið mjög vel búið hús- gögnum og ágætis sjónvarpi. I sambandi við kandidatsstörf má geta þess, að alsiða er að danskir stúdentar, sem komnir eru nærri lokaprófi taki að sér slík störf á sumrin í 2 til 4 mán- uði, og eru þeim skammtaðir % hlutar af kandidatslaunum. Sér- staklega er auðvelt að fá slík „sommervikariöt“ á spítölum úti á landi, og töldu kandidatar þarna mjög líklegt að íslenzkir stúdent- ar langt komnir með nám, gætu fengið slík störf. Sömuleiðis skild- ist mér, að sem stendur væri fremur auðvelt fyrir erlenda kandidata að komast þar í turnus- pláss. Finnst mér þetta hvort- tveggja athugandi fyrir íslenzka stúdenta og kandidata. Einn daginn þarna brá ég mér í heimsókn á fysiurgisk afdeling. Gat þar að líta hversdagslega hluti, svo sem leikfimisal og sund- laug, en inn á milli allskonar furðuleg tæki, sem hlýtur að hafa þurft talsvert ímyndunarafl til þess að setja saman. Það sem vakti hvað mest athygli mína var svonefnd „strækbehandling", sem notuð var við diskdegenerationir og prolapsa. Var hér endurvakið hið gamla eftirlætistæki spánska rannsóknarréttarins, steglur og hjól, og sjúklingar teygðir með 25—50 kílóa togi í y2 klst. annan hvern dag. Venjan er að gera þetta 12—18 sinnum, og er þetta notað jafnt við ambulant sjúkl- inga og þá sem inni liggja. Flestir sjúklingar fá á eftir sjúkraleik- fimi með æfingum á gluteal- og hryggvöðvum. Þykir þetta gefa ágæta raun og forða mörgum manninum frá aðgerð, sem annars yrði óhjákvæmileg. Einnig var þarna tæki til að lyfta fólki upp á höfðinu, einkum notað við affektionir í hálsliðum, en eitthvað hefur sú raun þótt meiri, því að þar var hver maður aðeins hafð- ur í 10 mínútur. Fékk ég snöggv- ast að reyna báðar meðferðirnar, en baðst þó vægðar þegar komið var upp í 35 kg. og hefði helzt ekki viljað liggja í því í y2 klst. Annars báru sjúklingar sig vel yf- ir þessu, og stúlkan sem yfir þeim vakti sagði það fremur fátítt, að fólk gugnaði á meðferðinni. Ekki er hægt að segja svo frá dvöl sinni þarna, að ekki sé minnzt á aðbúnaðinn. Próf. Bertelsen hafði verið svo vinsamlegur að láta íslenzku stúdentunum (Sverr- ir Bergmann dvaldist þarna síðar um sumarið) í té ókeypis fæði og húsnæði, en það mun annars ekki tíðkast fyrir stúdenta í stúdenta- skiptum við sjúkrahús í Kaup- mannahöfn. f stuttu máli sagt var fæðið eitt hið herlegasta sem ég hef kynnzt, enda sprengdi ég ut- an af mér alla leppa meðan ég dvaldi þarna. Herbergið var líka prýðilegt, sem fyrr er lýst, og símaklefi og bað handan við ganginn. Það var aðeins eitt sem bjátaði á — tungumálið. Reyndar var alveg furða, hvað blessaðir Dan- irnir skildu í þessu hrafli minu, en hitt var öllu verra að skilja þá. Eftir nokkra daga vandist ég þó á að skilja marga þeirra, þegar þeir töluðu til mín og vönduðu sig. Framan í aðra hváði ég venjulega þrisvar, nikkaði svo og brosti og þóttist hafa skilið allt. Og allan tímann skildi ég varla orð í sam- ræðum Dana sín á milli, og þannig fór margur stofugangurinn og

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.