Læknaneminn - 01.12.1962, Blaðsíða 35
LÆKNANEMINN
35
4 klst., síðan standard deviation
á dreyfingunni og mörkin sett:
meðaltalið plús eða mínus tvær
standard deviationir.
Samkvæmt því verða normal-
mörkin:
4 klst. upptaka 2—21%
24 — — 6—36%
48 — — 5—33%
Total plasma geislajoð (TPIL31)
minna en 0.20% doses/1 plasma
og sömu mörk fyrir proteinbundið
geislajoð (PBI131). Þessar normal-
tölur eru lœgri heldur en í öðrum
löndum og kemur það vel heim
við þá skoðun, að við neytum
mikils joðs daglega í fæðu okkar.
í samvinnu við Gardiner Insti-
tute, Western Infirmary í Glasgow,
erum við að vinna að nánari rann-
sóknum á starfsemi skjaldkirtils-
ins og joðefnaskiptum líkamans.
Þá höfum við gert nokkrar
rannsóknir á absorption kopars og
möguleikum á því að draga úr
henni með því að gefa fólki þara-
mjöl að borða. Það, sem við höf-
um gert til þessa, gefur því mið-
ur ekki góðar vonir um jákvæðan
árangur. Við ætlum að halda þess-
um tilraunum áfram og nota al-
ginsýru í stað þaramjöls. Við
treystum á góða samvinnu stú-
denta í því efni.
Loks má nefna nokkur próf, sem
við höfum gert og getum gert með
nokkrum fyrirvara, ef á þarf að
halda t.d. mœlingu heildarblóð-
magns (blood volumen), total ex-
changeable Na, K og Cl og járn-
nýtingu blóðmergs.
Hver og hvernig eru helztu
prófin, sem þið gerið með radio-
isotopum til greiningar á sjúk-
dómum ?
Hér eins og annars staðar eru
rannsóknir á skjaldkirtlinum al-
gengastar. Skjaldkirtilspróf með
geisla joði eru mörg og til eru
afbrigði af þeim flestum. Hér er
gert próf, þar sem sjúklingnum
er gefið 20 microcurie I131 per os.
Síðan er upptaka kirtilsins mæld
þ.e. geislajoðið, sem er komið í
kirtilinn eftir 4, 24 og 48 klst.
Þegar upptaka er mæld síðast er
tekið blóðsýni og mælt geislajoðið
í plasma (TPI'31 — total plasma
iodide). Ef það er fyrir ofan á-
kveðið mark (0.20% dosis/1
plasma) er plasmað látið renna
gegnum resinsúlu. Joðionarnir
bindast resininu en proteinbundna
joðið fer í gegnum súluna með
plasmanu og er mælt sérstakiega
(PBI131 — protein bound iodine).
Þessari mælingu á protein bundnu
joði má ekki rugla saman við mæl-
ingu á protein bundnu joði, I12T,
(PBI127), sem er kemisk ákvörð-
un, tekniskt mjög erfið og gerð
á fáum stöðum.
Með geislajoði er oftast hægt
að greina á milli primers og sec-
unders myxödems með því að
gefa TSH 10 ein. i.m. og byrja
svo á upptökuprófi næsta dag.
Ef myxödemið stafar af skorti á
TSIi, kemst upptaka kirtilsins í
normal gildi en er óbreytt, ef sjúk-
dómurinn er primert í skjaldkirtl-
inum.
Schillings próf er gert fyrir
anemia perniciosa. Þá er gefið per
os vitamin B,2 merkt með cobolt58.
Tveim klst. síðar er gefið 1 mg.
af venjulegu vitamin B,2 i.m. Það
eykur útskilnaðinn í þvaginu á
merkta vitamininu. Safnað er sól-
arhringsþvagi frá því að geisla-
virka efnið er gefið og mældur
24 klst. útskilnaður á Co58 B,2 í
því. Normalt er útskilnaðurinn
meiri en 7% en undir 5% í ane-
mia perniciosa. Það eykur gildi
þessa prófs að fyrri meðferð með
Bu hefur ekki áhrif á niðurstöðu
þess.