Læknaneminn - 01.11.1969, Qupperneq 22
20
LÆKNANEMINN
Aðalatriðið í kröfum læknanema er, að kennsla á deildunum verði
aukin og skipulögð. Engum dettur í hug, að hin fræðilega kennsla geti
farið fram án þess, að fyrirlestrar og yfirferð námsefnis séu skipulögð.
Hvernig má þá svo vera, að námsdvalirnar (kursusarnir) geti verið
án nokkurs skipulags?
Allt sem lagt er til, á að geta komið til framkvæmda þegar í stað
án mikils málþófs. Stærstu breytingarnar eru þær, að námsdvöl á
berklahæli verði lögð niður, námsdvöl á röntgendeild verði stytt í hálf-
an mánuð og tekin verði upp hálfs mánaðar námsdvöl við heimilis-
lækningar. Undirritaður er samþykkur þessum tillögum að flestu öðru
leyti en því, að námsdvöl á röntgendeild verði stytt. Læknanemar hljóta
að hafa þörf fyrir að læra meira í röntgenfræðum en það, sem kemst
fyrir á hálfum mánuði. Það má ekki gleymast, að við höfum ekki alltaf
sérfróða röntgenlækna við hlið okkar.
Læknanemar og kennarar verða að hafa í huga, að þessar tillögur
ná skammt. Við verðum sífellt að gagnrýna og gera tilraunir til úrbóta.
Á þann hátt vinnum við læknadeild og sjálfum okkur mest gagn. JHJ
Kennslustjóri.
Svo virðist, sem breyting á reglugerð um Háskóla Islands frá 17.
júní 1958, er varðar læknadeild, sé endanlega ákveðin. Telja menn þessa
breytingu yfirleitt til bóta, en hún byggist fyrst og fremst á skipun
kennslustjóra, lengingu námsársins, fjölgun nefnda og ráða, samteng-
ingu (integration) námsgreina og fjölgun þeirra. Einnig er rétt að
benda á, að ,,preklínískt“ nám er stytt úr 3 árum í 2. Er það réttlætt
með aukinni samtengingu grunngreina og annarra námsgreina. Ein
athyglisverðasta breytingin er skipun kennslustjóra, en það er tvímæla-
laust forsenda þess, að unnt verði að gera samtengingu námsgreina
raunverulega.
Því miður er þó að finna í hinni nýju reglugerð eitt og annað, sem
virðist draga úr þýðingu kennslustjóraembættisins.
Um störf kennslustjóra segir m. a. að séu: „Samning lestrar- og
kennsluáætlunar (sbr. 23. grein) í samvinnu við kennara deildarinnar,
enda staðfesti deildarfundur hana.“
Samvinna við kennara deildarinnar er auðvitað sjálfsögð, en það
ákvæði, að staðfestingar deildarfundar þurfi til, vekur tortryggni.
Á umliðnum árum hefur deildarfundur farið með æðstu stjórn
læknadeildar. Það er staðreynd, að undir stjórn þessa fundar hefur
ekki tekizt að mynda neina samtengingu náms eða að gera neinar
verulegar breytingar á námstilhögun í framfaraátt. Það er því ófært,
að deildarfundur skuli geta sett kennslustjóra stólinn fyrir dyrnar.
I greinargerð með reglugerðarbreytingunni segir: „Kennslustjóra
til aðstoðar er nauðsynlegt að ráða skrifstofulið, þar eð gera má ráð
fyrir töluverðri skrifstofuvinnu við undirbúning og skipulag kennslu-
unnar og eftirlit með framkvæmd hennar og árangri einstakra stúd-
enta.“ I reglugerðarbreytingunni sjálfri segir hins vegar um skrifstof-
una: „Deildarforseti og kennslustjóri ráða nauðsynlegt skrifstofulið í
samráði í við háskólaritara eftir því sem fjárveitingar leyfa.“ Hvenær