Læknaneminn - 01.11.1969, Blaðsíða 80
68
LÆKNANEMINN
land undir fót, en sex erlendir stúdentar
komu hing'að. Þeir, sem utan fóru, voru
allir úr m. hluta og létu misjafnlega af
sér.
Þengili Oddsson fór til Bandaríkjanna
og hófust þar með skiptin við það land.
Lenti hann á lélegu sjúkrahúsi í Brook-
lyn, New York, sem talinn er með
skuggalegri hlutum þeirrar borgar.
Þengill var þess vegna óánægður með
dvölina, og er leitt að svo illa skyldi
takast í fyrsta sinn.
Árni Þórsson fór til Vínar í júlí. Nærð-
ist hann vel af menningarstraumum
borgarinnar, en heldur verr af gynekó-
lógíunni hjá þeim Austurríkismönnum.
Komst Árni í samband við ýmsa em-
bættismenn læknanema og hafði bæði
gagn og gaman af ferðalaginu.
Þórir Dan Bjömsson var mjög ánægð-
ur með dvölina á Bretlandseyjum. Hann
var á skurðdeild á almennu sjúkrahúsi
nálægt Leeds. Kvað hann andann á
spítalanum hafa verið mjög góðan
gagnvart erlendum læknanemum, og í
heild fannst honum vera mun léttari
blær yfir samskiptum lækna og stúd-
enta en hér heima. Hann bjó I íbúð hjá
indverskum lækni. Voru þar öll þægindi,
sem hægt er að krefjast. Margir lækn-
anna bjuggu á sjúkrahúsinu sjálfu og
höfðu sameiginlega vel búna setustofu.
Þar eyddu menn iðulega timanum, þeg-
ar ekkert var að gera á deildunum,
Rikti þar mjög frjálslegt andrúmsloft,
hvort heldur sem rædd voru dagleg
vandamál eða haldin partý.
Jóhann Ragnarsson fór til Osló. Var
hann á lyflæknisdeild á Rikshospitalet.
Kunni Jóhann vel við sig, enda hafa
veðurguðimir leikið við Norðmenn í
sumar.
Fjórar stúlkur heimsóttu okkur í júlí.
Ein var sænsk, og sendi ég hana þegar
í stað á Akureyrarspítala til að flikka
upp á sárþjáða piparsveina þar. Eftir
vom tvær hollenzkar og ein dönsk.
Bjuggu þær á Laufásvegi, en kynntu
sér starf á Lændakoti og Borgarspítal-
anum. 1 byrjun kvörtuðu stúlkumar yfir
sambandsleysi við íslenzka. stúdenta.
Meðferð var hafin í hvelli og stefnt til
þeirra tveim vörpulegum sveinum, þeim
Þorkeli Guðbrandssyni og Guðmundi
Óskarssyni. Var haldið á tveim bílum
upp að Gullfossi og Geysi. Stýrði Guð-
mundur Ólafsson öðmm þeirra með
dyggri hjálp eiginkonu sinnar, en hinum
stjórnaði undirritaður og hafði yngri
bróður sér til fulltingis. Ferðin tókst
með ágætum, og sá, er stjórnar veðri
og vindum, gerði okkur ekkert óvænt,
en það var dumbungur. Síðast í júlí var
sama lið kallað saman í kveðjuskyni
heima hjá Guðmundi Ólafssyni. Þar
svignuðu borð undan krásum og dýrum
veigum. Komst fólkið í ijómandi skap
og brá sér á Sögu. Eftir dansleikinn
bauð Sighvatur Snæbjörnsson hópnum
heim til sín. Þar voru málin rædd unz
birta tók af degi, en þá kvöddust allir
með tárum.
Tveir piltar voru hér í ágúst og sept-
ember. Kynni við þá vom fremur stutt
en ánægjuleg. Þeir vora mjög duglegir
að ferðast um helgar og þurfti satt að
segja ekkert fyrir þeim að hafa. Þjóð-
verjinn, Werner, og undirritaður heim-
sóttu reyndar Ingólfsapótek. Var okk-
ur sýnt hvernig starfið þar fer fram.
Á eftir þágum við góðar veitingar. Urðu
fjörugar umræður um marihuana, en
athyglisvert er, að báðir stúdentarnir
voru fylgjandi því, að lyfið fengi rétt-
indi á borð við alkóhól.
Yfirleitt held ég, að erlendu lækna-
nemarnir hafi kunnað nokkuð vel við
sig hér.. Þeir voru duglegir að skoða
sig um, en leitt var, hve veðrið brást
þetta sumarið.
Starfið okkar hér heima gæti örugg-
lega verið betra og meira. Eg hygg, að
eins og nú er málum háttað, sé það of
tilviljanakennt frá ári til árs. Fer það
mikið eftir því hversu fljótir stúdenta-
skiptastjórnarnir, sem alltaf eru nýir á
hverju ári, eru að ná tökum á starfinu.
Þeir hafa mismunandi góðan tíma eftir
því hvort þeir eru í vinnu eða á kúrsus-
um, innan bæjarins eða utan. Bagalegt
er hversu steindautt stúdentalíf Háskól-
ans er á sumrin, og þar með erfitt fyrir
útlendingana að kynnast íslenzkum
stúdentum. Mér dettur tvennt í hug til
úrbóta. 1 fyrsta lagi væri gott, ef því
væri komið í fast form, að stúdenta-
skiptastjórar, er úr starfi víkja, miðli
hinum nýju af reynslu sinni og fylgist
jafnvel með starfinu, án þess að það
kosti þá of mikinn tíma. 1 öðm lagi
dettur mér í hug, að við reyndum að
hafa samstarf við viðskiptadeild, sem
mun vera eina deild Háskólans, er hef-
ur stúdentaskipti í svipuðum dúr og við.
Nægilegt væri, að leigt yrði húsnæði í
sameiningu og væru þar íslenzkir stúd-
entar einnig. Það yrði skemmtilegra fyr-
ir fólkið að vera í stórum hóp, auk þess
sem það fengi færi á að kynnast íslenzk-
um stúdentum. Hægt væri að skipu-
leggja sameiginlegar ferðir og sam-
kvæmi, og yrði slíkt ódýrara fyrir bæði
félögin.