Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1979, Side 10

Læknaneminn - 01.12.1979, Side 10
vægileg veikindi, svo sem kvef, séu mjög algeng sið- ustu tvær virkurnar áður en harnið deyr. Sagnfræði Ofangreind tilvitnun í B'blíuna er oft notuð til að sýna fram á að skyndidauði ungbarna er ekkert nýtt fyrirbæri. Raunar virðist sú hugmynd hafa ríkt að þarna væri um nokkurs konar slys að ræða, þ.e. að foreldri eða fóstra legðist ofan á barnið og kæfði það með þunga sínum. Allt fram á tuttugustu öldina var ungbarnadauði geysilegur og því má gera ráð fyrir að þessi fáu til- felli bafi ekki vakið mikla athygli eða skipt þjóð- félagið miklu máli. Á nítjándu öld fer læknatíma- ritum fjölgandi, en í þeim er oft minnst á dauða ungbarna í svefni. Þá kemur fram sú hugmynd að þessi dauðsföll verði vegna stækkaðs hóstarkirtils. Gert var ráð fyrir að þessi of stóri kirtill þrýsti á 'barka, berkjur og æðar og ylli þannig köfnunar- dauða. Stundum var lýst öndunarfæraeinkennum, svokölluðum hóstarkirtils-asthma (thymic asthma). Mestu máli skipti þó að viðhorf lækna, réttvísinnar og ef til vill almennings gagnvart skyndidauða ung- barna breyttist við þessi skrif. Nú átti að vera hægt að sýna fram á dánarorsök með krufningu og létta sekt og sektartilfinningu af foreldrum og öðrum vandamönnum. Fljótt kom ]jó í Ijós við krufningarn- ar að hóstarkirtill þessarra barna var ekki stærri en annarra barna sem dóu skyndilega af öðrum orsök- um. Hins vegar var hann mun stærri en hjá þeim 'börnum, sem dóu eftir undanfarandi sjúkdóm. Það kom nefnilega í ljós að hóstarkirtillinn minnkar verulega við meiriháttar veikindi. Viðurkenndar hugmyndir deyja þó seint. Rétt fyr- ir 1900 kom fram sú hugmynd að hinn „stækkaði“ hóstarkirtill væri hluti af sérstakri líkamsgerð. Þessi líkamsgerð einkenndist af almennri eitlastækkun. litlum nýrnahettum, vanþroska kynfærum, vanþroska slagæðum og stækkuðum hóstarkirtli. Þetta fyrir- bæri var kallað status thymicolymphaticus og var mikið notað til að útskýra skyndidauða ungbarna næstu áratugi. Gert var ráð fyrir að krampi í larynx (spasmus glottidis) væri orsök dauðans. Síðar þeg- ar vitneskjan um raunverulega stærð hóstarkirtilsins breiddist út minnkaði átrúnaðurinn á hlutverk hóst- arkirtilsins í skyndidauða ungbarna. Margir hneigð- ust þá aftur til að kenna foreldrum barnsins eða fóstru um dauðann, ýmist af slysni, vanrækslu eða hreinlega af ásetningi. Á árunum eftir 1940 fóru viðhorfin að breytast aftur. Þá birtust nokkrar vandaðar greinar um skyndidauða þar sem stungið var upp á að skyndi- dauði ungbarna væri náttúrlegur dauðdagi sem staf- aði af sjúkdómi eða sjúklegum breytingum. Köfnun af voveiflegum ástæðum var hafnað. Eftir þetta fer læknisfræðilegum greinum um efnið stöðugt fjölg- andi. Árin 1963 og 1969 voru haldnar í Seattle i Bandaríkjunum alþjóðaráðstefnur sem fjölluðu um skyndidauða ungbarna. Fyrri ráðstefnan lagði á ráð- in um rannsóknir, sem gera þyrfti og á þeirri síðari var sett fram skilgreining sem enn er notast við: „Skyndilegur dauði ungbarns, sem er óvæntur sam- kvæmt heilsufarssögu og þar sem vönduð krufning leiðir ekki i ljós skýringu á andlátinu.“ Síðan hefur skilningur leikra og lærðra á því, að um sérstakt fyrirbæri sé að ræða, stöðugt farið vaxandi og miklu fé hefur verið varið til rannsókna á því síðasta ára- tug. Krufning Yið krufningu finnast ekki liffæra- eða vefjabreyt- ingar, sem eru það miklar að þær gætu hafa leitt til dauða. Hins vegar eru þær breytingar, sem þó finnast, mjög sambærilegar frá einu tilfelli til annars. Við ytri skoðun sést venjulega að barnið er vel alið og vel hirt. Þroski, næringarástand og vökva- jafnvægi virðist eðlilegt. Stundum sést cyanosis á fingrum, tám og vörum og oft er froða í munni og nefi. Froðan bendir til lungnabjúgs. Stundum er æla eða magainnihald í vitum og á sængurfötum. Þvag og saur finnast venjulega í bleyju og þvagblaðra og rectum eru þá tóm. Það eru engin merki um áverka þrátt [yrir vandlega skoðun og ekkert sem bendir til að börnin hafi flækt sig eða fest í rúmi eða rúmfötum. Einstöku sinnum eru hendur kreppt- ar utan um fellingu af laki eða ábreiðu. Við innri skoðun eru punktblæðingar (petechiae) mest áberandi. Þær sjást í brjóstholi, þ.e.a.s. í pleura, lungum, pericardium og thymus. í lungum er auk þeirra oft væg blóðfylla og bjúgur. Bólgubreytingar 8 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.