Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1979, Side 21

Læknaneminn - 01.12.1979, Side 21
Mteling ct fósturhlóðgösuni (Astrup) Frá 1973 hefur það verið vitað að sýrubasajafn- vægi fóstursins brenglast verulega í eðlilegri fæð- ingu. Frá 1961 hafa menn ráðið yfir þeirri tækni að mæla blóðgös frá fóstri, með því að stinga gat á hár- svörð þess með örlitlum hníf og sjúga blóðdropann sem út kemur upp í fíngeröa háræðapípu og mæla síðan í sýruhasamælingartæki (Astrup). Hver mæl- ing er sjálfstætt inngrip og tekur talsverðan tíma. Þess vegna hefur þetta ekki náð að verða föst rann- sókn við fæöingar. Til eru sérhönnuð skaut (elec- trode), sem fest eru í hársvörð fóstursins og gefa samfellda skráningu á súrefnismettun, C02 og pH, en þau eru mjög dýr og á tilraunastigi. Þegar fóst- urhj artsláttarrit (CTG) verður verulega brenglað, bendir það til þess að fóstrið líði talsverðan súrefn- isskort (hypoxia). Þá þarf að ákveða hvort gera eigi inngrip til þess að flýta fæðingu, jafnvel með keis- ara. Sé hins vegar möguleiki á blóðgasamælingu má af henni sjá hvernig fóstrið bregst við þessu. Þoli það álagið án þess að pH brenglist, má bíða svolítið lengur og sjá til hvort álaginu linni, ritið batni og fæðingin geti haldið eðlilega áfram. Það er því öruggt að mæling á fósturblóðgösum á eftir að komast í almenna notkun á stórum fæð- ingadeildum í framtíðinni. Hlustunarpípun oy nionitorinn Hlustun með pípu er mikilvæg við allar fæðingar. Fn hún hefur ákveðnar takmarkanir, sem best koma í ljós við áhættufæðingar. I rannsókn í Bandaríkjun- um á 24.863 konum tókst ekki að sýna fram á neitt ákveðið hlustunarpípueinkenni, sem gæfi ábendingu um fósturálag (foetal distress) nema í alvarlegum tilfellum. Hvernig má þetta vera? Jú, eölileg tíðni fóstur- hjartsláttar er 120-160 slög á mín., en alvarleg hjart- sláttarföll (dipp) eru einmitt oft innan þessara marka. Minnkaðar sveiflur á grunnlínu (variability) er einnig alvarlegt einkenni og ekki hægt að greina með pípu. Algengasta hjartsláttarfallið verður og í hríðunum sjálfum, en það er einmitt það tímabil þegar hlustunarpípan er ekki notuð til að hlusta, því hún hlustar á milli hríða. Til frekari skýringar á kostum monitors umfram hlustunarpípu verður að benda á að monitorinn mælir svokallaðan augnablikshjartslátt (instantane- ous), eða L/T, þ.e. mælir lengdina á milli tveggja hjartslátta fóstursins, deilir í það með tímanum og endurmetur þannig tíðni hjartsláttar eftir hvert slag. Hins vegar höfum við meðaltalshjartslátt (average FHR), sem er sá hjartsláttur sem talinn er með hlustunarpípu. Það er hjartsláttur mældur með ákveðnu millibili og áætlað svo að sé óbreyttur á milli mælinga. Fer það síðan eftir því hversu þéttar mælingarnir eru, hversu nákvæman hjartslátt við skráum. (Sjá mynd 8.) Hlustunarpípan er enn í dag algengasta aöferð- in til að fylgjast með fósturhjartslætti. Okostir hennar eru að tiltölulega langt líður á milli upplýs- inga (30 sek. eða meira), svolítil hætta er á taln- ingaskekkjum, og hlustaö er á milli hríða þegar hjartsláttur er sem næst eÖlilegur. En í höndum góðrar Ijósmóður, þar sem þekking og reynsla fer saman, hefur hlustunarpípan ómetan- legt gildi. Mynd 7. Samtíma upptaka fósturhjartsláttar og hríða. lækhaneminn 17

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.