Læknaneminn - 01.12.1979, Side 65
A
Mynd 27. HH. Arterio-ven-
ous mal jormation (angi-
oma cavernosa) regio parie-
talis, skv. angiograjíu. A:
Tekið meS línuskanna. B:
Tekið með gammamyndavél
2 árum seinna.
eru það helst meningioma sem koma fram á blóð-
flæðirannsókn sem heitir blettir, eins og áður sagði,
en gagnstætt því sem á sér stað um AVM og anueur-
ysma heldur meningioma áfram og vera heitt í venu-
fasanum einnig.
Falsh-positíf shönn
Lítið hefur verið minnst á falsk-pósitíf skönn,
enda erfitt að meta slíkt. Aðeins var drepið á að
heilamar o.fl. getur gefið upptöku, sem líkist t.d.
fyrirferðarupptöku í heila. Oft getur verið erfitt
að meta skönn, sem tekin er af sjúklingum eftir
höfuðaðgerð, því að dæmi eru þess, að upptaka
komi fram á aðgerðarstaðnum í mörg ár eftir að-
gerð t0. Mynd 30 sýnir væga upptöku á vinstra
parietal-svæði 17 árum eftir aðgerð. I svona tilvik-
um er oft erfitt að segja hvort um sé að ræða t.d.
endurvöxt á æxli, sérstaklega fyrsta árið eftir að-
gerð. Ráð til að meta slíkt út frá skanni er að skanna
fljótlega eftir aðgerð og síðan með reglulegu milli-
bili, til að fylgjast með hvort geislavirkni á svæð-
inu eykst eða minnkar. (Mynd 31).
Vleinvörp í cranium geta komið fram á heila-
skanni og virst sem meinsemdir í heila. Þá getur
mb. Paget komið fram sem dreifð upptaka í crani-
um svo að líkist heilahimnublæðingu. Einnig virðist
sem idiopathiskir krampar geti valdið upptöku á
skanni allt að 6 dögum eftir að þeir áttu sér stað41.
Mynd 28. Aneurysma. AP. A: Hringlaga upptökublettur sést
rétt ofan við vinstra auga. Svarar vel til aneurysma á ACM
skv. angíograjíu (B). Hliðarmynd af þessu aneurysma er í
ref. 15.
>■»
LÆKNANEMINN
51