Læknaneminn - 01.04.2007, Side 6

Læknaneminn - 01.04.2007, Side 6
Nýsköpunarverðlaun Nýsköpunarverðlaun forseta íslands Martin Ingi Sigurðsson, 4. árs læknanemi, hlaut á dögunum Nýsköpunarverðlaun forseta íslands. Markmið þeirra er að verðlauna námsmenn sem unnið hafa framúrskarandi starf við úrlausn verkefnis sem styrkt hefur verið af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Verðlaunin hlaut Martin Ingi fyrir rannsókn sína á áhrifum aldurs á utangenamengi mannsins. Læknaneminn ræddi stuttlega við Martin Inga um þennan glæsilega árangur. Geturðu frætt okkur efni rannsóknarinnar? Utangenamerki er samheiti yfir upplýsingar sem tengjast erfðaefninu og erfast en eru þó ekki hluti af DNA kóðanum sjálfum. Þekktasta utangenamerkið, og það sem ég rannsakaði, er DNA metýlun, þ.e. metýlhópar sem hanga utan á DNA kóðanum. Þessir metýlhópar stýra aðgengi umritunarþátta að erfðaefninu og því hvaða hluta erfðaefnisins hver fruma notar. Þannig má segja að utangenamerki slökkvi og kveiki á genum frumunnar allt eftir því hvaða gen æskilegt er að fruman noti. Augljóst er að þrátt fyrir að húðfruma og taugafruma innihaldi sama erfðamengi nota þær ekki sömu gen. Þessu er miðlað af utangenamerkjum á borð við DNA metýlun. Leiðbeinendur mínir við Johns Hopkins, þeir Hans Tómas Björnsson læknir og doktorsnemi í erfðafræði og Andrew P. Feinberg læknir og prófessor í sameindalæknisfræði, settu nýverið fram nýtt líkan af því hvernig sjúkdómar verða til. Þetta líkan byggir á hefðbundnu erfðafræðilegu líkani en tekur einnig utangenamerki inn í myndina. Með þessu líkani er ætlunin að skilja betur ýmsa hluti sem hefðbundin erfðafræði geturekki skýrt, t.d. af hverju eineggja tvíburar fá ekki alltaf sömu sjúkdómana, hvernig umhverfi og erfðir vinna saman að myndun sjúkdóms og ekki síst af hverju tíðni ýmissa sjúkdóma á borð við mörg krabbamein breytist með aldri. Við fæðumst jú með sömu gen og við höfum um sextugt en sjúkdómarnir sem við glímum við á þessum æviskeiðum eru gerólíkir. Markmið rannsóknarinnar voru þau að renna stoðum undir þetta nýja líkan með því að sýna fram á að DNA metýlunbreyttistmeðaldri. Égfékksýniúröldrunarrannsókn Hjartaverndar og fór með þau til Bandaríkjanna þar sem rannsóknin var unnin. Þegar fyrstu niðurstöður lágu fyrir fékkég svosams konarsýni úröðru þýði frá Bandaríkjunum. Okkur tókst að sýna fram á að DNA metýlun breytist marktækt með aldri í báðum þýðunum. Jafnframt sýndum við fram á að varðveiting DNA metýlunar er verulega fjölskyldulæg og skoðuðum DNA metýlun í nokkrum gerðum krabbameina. Er rannsókninni lokið eða hefur verið framhald á henni? Mínum hluta rannsóknarinnar er lokið og þessa dagana erum við að vinna að greinaskrifum um niðurstöður hennar. Hins vegar eru aðrir á rannsóknarstofunni úti að vinna í samstarfi við Hjartavernd að rannsóknum á fleiri þáttum utangenaerfða. Gaman verður að fylgjast með afsprengi þeirra rannsókna. Hefur þú velt fyrir þér að gera sjálfur framhaldsrannsókn ? Já vissulega freista frekari rannsóknir á sviði erfðafræði, ekki síst vegna þess að utangenamerki eru eitt blómlegasta svið erfðafræðinnar í dag. Þessa dagana er ég að vinna að afar spennandi verkefni í tengslum við DNA metýlun í samstarfi við Jón Jóhannes Jónsson hér á íslandi og Hans Tómas Björnsson leiðbeinanda minn ytra. 6 Læknaneminn 2007
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.