Læknaneminn - 01.04.2007, Blaðsíða 10
Vinna læknanema
Þetta hlutfall óx nokkurn veginn jafnt og þétt frá 1. ári að
4. ári en hjá seinustu tveimur árunum var hlutfallið mun
minna eins og gefur að skilja. Á 5. ári var starf innan LSH
áberandi en yfir 60% þeirra nema sem svöruðu höfðu tekið
starf þar (sjá mynd 5). Eins og áður hefur komið fram eru
þessi störf að mestu fengin í gegnum ráðningakerfi
læknanema. Ekki komu niðurstöður fyrir 6. árs nema á
óvart heldur en tæp 70% þeirra störfuðu á heilsugæslum
landsins síðasta sumaren restin starfaði á LSH eða annarri
heilbrigðisstofnun (sjá mynd 6). Vísað er í myndir 1-6
varðandi nánari flokkun svara við þessari spurningu.
Seinni spurningin sem lögð var fyrir læknanema fjallaði
svo um vinnu samhliða náminu. Niðurstaðan var sú að
rúmlega 62% þeirra sem svöruðu unnu eitthvað yfir
veturinn. Langalgengast er að 6. árs nemar vinni samhliða
náminu, eða 83% þeirra sem svöruðu (sjá mynd 12).
Niðurstöður hér líktust þeim sem fengust við fyrri
spurningunni varðandi störf sem læknanemar velja sér. Á
fyrsta árinu vinna flestir utan heilbrigðiskerfisins en strax
á öðru ári verður vinna innan kerfisins algengari en utan
þess (sjá myndir 7 og 8). Á árunum eftir það er hlutfall
þeirra sem vinnur innan heilbrigðiskerfisins ekki bara
hærra en þeirra sem vinna utan þess heldur einnig hærra
en hlutfall þeirra sem vinna ekkert samhliða náminu (sjá
myndir 9 - 12). Aftur er gaman að sjá hversu stórt hlutfall
læknanema á 3. og 4. ári vinna við rannsóknir eða 14% og
27% þeirra (sjá myndir 9 og 10). Flestir þeirra sem starfa
á hjúkrunarheimilunum eru á 3. og 4. ári (sjá myndir 9 og
10) en þetta er sambærilegt og kom fram varðandi
sumarvinnu. 5. árs nemar vinna helst innan LSH, eða um
49% þeirra sem svöruðu (sjá mynd 11) og 6. árs nemar
oftast á heilsugæslunum, um 53% (sjá mynd 12). Vísað er
í myndir 7-12 fyrir nánari upplýsingar um svörun við
þessari spurningu.
Umræða
Yfir helmingur læknanema á landinu sendu inn svör við
spurningalistanum sem lagður var fyrir og má því áætla að
þessar niðurstöður gefi nokkuð góða hugmynd um hópinn
sem heild. Það sést á þessu að læknanemar byrja snemma
að sækja í störf innan heilbrigðiskerfisins og strax sumarið
fyrir 1. ár unnu nálægt helmingur þeirra sem svöruðu við
slík störf. Þetta hlutfall fer svo hratt vaxandi eftir því sem
líður á námið og sýnir það að læknanemar sækjast eftir
þjálfun og kynningu á þessu starfsumhverfi sem fyrst.
Fyrstu kynni læknanema af Landspítalanum eru gjarnan í
störfum sem starfsmenn, flutningsaðilar, í matsalnum eða
við yfirsetu. Yfirseta hefur verið vinsælt starf meðal
læknanema í öðrum löndum svo sem Danmörku en nýlega
var þessi möguleiki kynntur hér á landi. Þrír læknanemar
sem sendu inn svör við þessum spurningum starfa nú við
slíkt samhliða náminu og gaman væri ef þetta starf væri
betur kynnt meðal læknanema enda góð þjálfun og
nauðsynleg staða innan spítalans. Einstaka læknanemi
hreppti starf við krufningar á meinafræðideild spítalans og
hlýtur það að teljast góð þjálfun fyrir læknanema sem eru
að fletta í gegnum fyrstu blaðsíður Netter eða þeirra sem
vilja meiri dýpt í þekkingu sína í líffærafræði. Störf við
aðhlynningu á hjúkrunarheimilum eru gefandi og spennandi
er fyrir læknanema eftir 3. ár að leysa hjúkrunarfræðinga
af á þessum stöðum. Þessi störf eru langalgengust hjá
læknanemum sem klárað hafa 2. og 3. ár sem sýnir áhuga
á því að kynna sér þetta starfsumhverfi. Eftir 4. og 5. ár fá
læknanemar loks að spreyta sig sem aðstoðar- og
afleysingalæknar á sjúkrahúsum og heilsugæslum landsins
og virðist þetta falla þeim vel. Þessi störf eru krefjandi en
á sama tíma gefandi og koma flestir nemar sáttir undan
sumri eftir að hafa tekist á við slíkt. Margir sækjast svo
eftir sambærilegum stöðum samhliða námi veturinn eftir.
Á óvart kom hversu stórt hlutfall læknanema vinnur
samhliða náminu. Merkilegt þykir að vinna samhliða svona
ströngu námi sé eins algeng og þessar tölur gefa til kynna.
Þessum niðurstöðum fylgdu þó ekki upplýsingar um
starfshlutfall en það er mjög misjafnt, allt frá einni vakt
öðru hvoru upp í fast starfshlutfall upp á einhverja tugi
prósenta. Greinilegt er þó að læknanemar sækjast eftir
þjálfun innan heilbrigðiskerfisins og er þessi vinna yfirleitt
tengd náminu.
Eins og áður kom fram hefur umræða hafist varðandi
gagnsemi ráðningakerfis læknanema. Vert er að benda á
það hversu stórt hlutfall 5. og. 6. árs nema nýtti sér þetta
kerfi síðasta sumar og verður að taka þessar niðurstöður
inni í umræðuna þegar kerfið verður endurskoðað.
Þakkir
Þakkir fá þeir læknanemar sem tóku þátt í könnuninni
fyrir skjót og góð svör. Sérstaklega ánægjulegt var að sjá
hversu mörgum svörum fylgdu hvatningarorð svo ekki sé
talað um þegar einn og einn brandari flaut með!
7 0 Læknaneminn 2007