Læknaneminn - 01.04.2007, Page 20
Kennsluverðlaun læknanema 2007
Finnbogi Jakobsson taugalæknir
Kennsluverðlaun læknanema 2007 hlýtur Finnbogi
Jakobsson taugalæknir. Það var úr vöndu að velja þegar
nemarætluðu að kjósa kennara aftaugadeild LSH Fossvogi
því kennslan þar er með þeirri bestu sem boðið er upp á
við læknadeild Háskóla íslands. Læknanemar sammæltust
um að Finnbogi væri þar fremstur meðal jafningja.
Finnbogi útskrifaðist frá læknadeild Háskóla íslands í júní
1981 og lauk doktorsprófi í klínískri taugalæknisfræði frá
Karolinska Institutet í Stokkhólmi árið 1991. Hann tók til
starfa á tauga- og endurhæfingadeild þáverandi
Borgarspítala árið 1994 og byrjaði þar að miðla íslenskum
læknanemum af þekkingu sinni. Kennsla hans mæltist svo
vel fyrir að hann hlaut kennsluverðlaun læknanema fjórum
árum síðar eða árið 1998. Hann sýnir nú að hann hefur
engu gleymt og er enn jafn ferskur og áhugasamur við
kennsluna.
Það einkennir Finnboga rólegt viðmót sem styggir hvorki
sjúkling né stúdent. Þetta er eiginleiki sem er afar vel
fallinn til kennslu. Þá deilir Finnbogi með kollegum sínum á
taugadeildinni stöðugri þörf til að fræða nemendur sína
þannig að hver stund er nýtt til að ræða um kvilla
mannslíkamans, með sérlegri áherslu á taugakerfið (til að
mynda var Ijósmyndarinn tekinn stuttlega á stofugang og
Finnbogi spyr lesendur nú hvaða system-sjúkdómur hrjáir
sjúklinginn á myndinni). Finnbogi hefur séð læknanemum
fyrir reflexhömrum í gegnum tíðina við byrjun deildarveru
en auk þess hefur hann orðið þeim sem fara til
sjálfboðastarfa í Kenya út um lækningatól til að gefa
heilsugæslum þar.
Hvað eftirminnilegast við veruna á taugadeildinni er þó
það að Finnbogi tryggir persónulega að allir læknanemar
sem rótera á taugadeild geti framkvæmt mannsæmandi
taugaskoðun. Þetta gerir hann með því að bjóða hverjum
og einum nema í einkatíma í taugaskoðun. Þar fer hann
nákvæmlega yfir veika hlekki í skoðun hvers og eins og
veitir nemanum hið mikilvæga „feedback" án nokkurra
aukaorða eða niðurlægingar. Slík athygli frá sérfræðingi er
sjaldséð innan veggja spítalans og mættu aðrir taka sér
Finnboga til fyrirmyndar.
Læknanemar þakka Finnboga kærlega fyrir störf sín og
vona að hann haldi uppteknum hætti um árabil.
Kennsluverðlaun síðustu ára:
1997- 1998: Finnbogi Jakobsson,
taugasjúkdómafræði
1998- 1999: Hannes Petersen, háls-, nef- og
eyrnasjúkdómafræði.
1999- 2000: Ásbjörn Jónsson og Pétur Hörður
Hannesson, myndgreining.
2000- 2001: Ella Kolbrún Kristinsdóttir, líffærafræði.
2001- 2002: Engilbert Sigurðsson, geðlæknisfræði.
2002- 2003: Þóra Steingrímsdóttir, fæðinga- og
kvensjúkdómafræði, og Haukur
Hjaltason, taugasjúkdómafræði.
2003- 2004: Jóhannes Björnsson, líffærameinafræði.
2004- 2005: Ásgeir Haraldsson og Þröstur Laxdal,
barnalæknisfræði
2005- 2006: Halldór Jónsson jr.,
bæklunarskurðlækningar.
2006- 2007: Finnbogi Jakobsson,
taugasjúkdómafræði
20 Læknaneminn 2007