Læknaneminn - 01.04.2007, Blaðsíða 22
■Pl
Síflog (status epilepticus)
Agúst Hilmarsson
Deildarlæknir á slysa- og
bráðadeild LSH
Elías Ólafsson
Taugalæknir á
taugalækningadeild LSH og
prófessor við læknadeild HÍ
Útdráttur*
Síflog (status epilepticus) er langdregið flog af hvaða
tegund sem er. Síflog getur verið lífshættulegt ástand og
þarfnast skjótrar greiningar og meðferðar. Síflogum er
skipt í tvo megin flokka byggt á klínískum einkennum, en
flokkarnir eru grand mal síflog (skert meðvitund og kippir
í útlimum) og non-convulsive síflog (skert meðvitund
eingöngu). Greining er fyrst og fremst klínísk og er oftast
auðveld, en greiningin er erfiðari ef sífloginu fylgja ekki
óeðlilegar hreyfingar og þá þarf að nota heilarit við
greininguna. Mikilvægt er að hefja meðferð strax við
greiningu, þarsem hætta erá varanlegum heilaskemmdum
ef meðferðin dregst. Benzodiazepine eru fyrsta meðferð,
en ef svörun fæst ekki eftir tvo skammta er mælt með
annarri meðferð og þá er fenýtóín oftast notað. Ef
sjúklingur er óstabíll eða svarar ekki lyfjunum þá er
gjörgæslumeðferð nauðsynleg.
Inngangur
Síflog (status epilepticus) getur orsakað veruleg veikindi
og dánartíðni er há. Hér verður lögð áhersla á greiningu og
meðferð hjá fullorðnum þótt aðeins sé vikið að síflogum
hjá börnum.
Skilgreining
Flog er skilgreint sem klínísk einkenni sem stafa af
samstilltri og stjórnlausri afskautun taugafruma í heilaberki.
Flogum er almennt skipt í staðflog (partial eða focal
seizure) annars vegar og alflog (primary generalized
seizure) hins vegar.
Staðflog eiga upptök sín á afmörkuðu svæði í heilanum
en geta síðan breiðst út til annarra svæða. Ef staðflogin
eru bundin við afmarkað svæði skerðist meðvitund ekki og
flogin einkennast t.d. af kippum, sjón-, heyrnar- eða
skyntruflunum og nefnast þau flog fyrirboðar í daglegu
tali. Ef flogin breiðast út til beggja heilahvela (t.d.
gagnaugasvæða beggja vegna) sést skerðing á meðvitund
með eða án annarra einkenna (þ.e. complex partial flog).
Þegar flogin breiðast síðan út til alls heilans valda þau
krampa (secondarily generalized tonic-colonic seizure eða
secondary grand mal seizure) sem einkennist fyrst af
samdrætti í vöðvum (tónískur fasi) og síðan kippum í
útlimum (klónískur fasi).
Alflog virðast eiga upptök sín um allan heilabörkinn
samtímis. Þau greinast í ýmsar tegundir þ.m.t. störuflog
(absence seizures), kippaflog (myoclonic seizures) og
krampa (primarily generalized tonic clonic seizure).1
Síflog er langvarandi flog (varir lengur en u.þ.b. 5
mínútur) eða endurtekin styttri flog án þess að viðkomandi
komist til fullrar meðvitundar á milli.#
Meingerð
Meirihluti þekkingar á meingerð floga er tilkominn úr
dýramódelum og talið er líklegt að sama meingerð eigi við
um flog hjá mönnum. Til að síflog (status epilepticus) geti
orðið verður hópur taugafrumna að afskautast og viðhalda
stjórnlausri og óeðlilegri afskautun. Þessari óeðlilegu
afskautun virðist viðhaldið af of mikilli örvun (glútamat er
megin örvandi boðefni heilans) og/eða of lítilli hömlun
(GABA er megin hamlandi boðefni heilans). í tilraunadýrum
er auðvelt að framkalla síflog sem síðan viðheldur sér sjálft
(self sustaining), en ekki er Ijóst hvort þetta geti gerst hjá
mönnum. Lyf geta stöðvað þetta ferli og þá einkum lyf sem
minnka losun glutamats. í dýrum valda flog (jafnvel flog
án krampa í útlimum) dauða taugafrumna í heila2-3 og
frumdauðinn stafar beinlínis af hárri afskautunartíðni
* / þessu yfirliti notum við íslensk orð þar sem þau eru til og notuð við
vinnu á sjúkrahúsum. Að öðrum kosti höfum við kosið að nota alþjóðleg eða
ensk orð. Þetta er gert til að tryggja að lesandinn geti lesið og skilið efnið
auðveldlega og tengi það viðstöðulaust við aðra þekkingu.
# Skiptar skoðanir eru um, við hversu margar mínútur á að miða áður
en talað er um síflog. Víða er miðað við 30 mínútur en Ijóst er að hefja þarf
meðferð miklu fyrr, eða strax og Ijóst er að ekki er um venjulegt grand mal
flog að ræða. Grand mal fíog stendur oftast í tvær mínútur eða skemurö,
sem þýðir að flog sem stendur lengur en það á að flokka sem síflog hvað
ákvörðun um meðferð varðar.
22 Læknaneminn 2007