Læknaneminn - 01.04.2007, Qupperneq 29
Stúdentaskipti
Dottore Amico bauð okkur einu sinni út að borða og
dottore Lacagnina bauð okkur tvívegis í mat heim til sín.
Þar skein gestrisnin í gegn að öllu leyti og ekki skemmdi
fyrir frábær matur. Við hittum eiginkonu dottore Lacagnina
og tvö börn þeirra sem töluðu fínustu ensku þannig að þau
gátu túlkað í þessum stórskemmtilegu matarboðum. Við
fáum vatn í munninn við tilhugsunina um matinn sem var
borinn á borð, þvílíkt lostæti. Góðvildin hjá dottore
Lacagnina og fjölskyldu hans átti sér fá takmörk, við
lentum í vandræðum með að þvo þvott þar sem ekkert
laundromat var að finna í Caltanissetta. Til að kippa því í
liðinn sóttu konan hans og dóttir okkur einn eftirmiðdaginn,
við fengum að skella í vél heima hjá þeim og á meðan var
okkur boðið á fornminjasýningu á safni bæjarins. í síðustu
vikunni okkar kynnti dottore Lacagnina okkur fyrir Manlio
sem var að klára læknisfræðina í Róm. Hann talaði ensku
reiprennandi og gerði síðustu dagana eftirminnilega, það
var algjör synd að við hittum hann ekki fyrr en svo langt
var liðið á dvölina. Manlio var enginn eftirbátur annarra
Sikileyinga hvað varðaði gestrisnina. Daginn eftirað hann
hitti okkur fyrst sótti hann okkur að morgni, keyrði með
okkur til Agrigento þar sem við eyddum deginum við
ströndina í góðu yfirlæti, allt á hans kostnað. Þegar við
reyndum að malda í móinn tók hann ekki í mál að við
borguðum krónu, við værum hans gestir. Sama kvöld
hittum við fjölskylduna hans þar sem okkur var vel tekið.
Síðasta kvöldið okkur fórum við saman út að borða á
skemmtilegum stað þar sem flugvél hafði verið breytt í
veitingahús.
Við skiptinemarnir vöktum töluverða athygli í bænum,
margir voru farnir að þekkja okkur í sjón og brostu til okkar
á götum úti. Fólkið var forvitið hvað í ósköpunum við
værum að gera á þessum stað á þessum tíma þegar allir
Italirnir flykkjast að ströndunum til að sóla sig og flýja
hitann. Það er skemmst frá því að segja að þrívegis var
fjallað um dvöl okkar í dagblaði staðarins og í þriðja skiptið
birtust myndir af okkur öllum með nöfnunum okkar og
þjóðerni. Sama dag og umrætt blað kom út hnippti
bílstjórinn sem keyrði strætóinn sem við tókum á
sjúkrahúsið í okkur og sýndi okkur myndirnar, ægilega
ánægður með að þekkja okkur. Ólöf var svo stoppuð einu
sinni á sjúkrahúsinu þar sem ókunnugur maður vildi
endilega spjalla (á ítölsku!) og sýna henni myndirnar.
Eins og áður sagði nýttum við helgarnar í að ferðast um
Sikiley. Fyrstu helgina skruppum við til Syracusa,
skoðuðum þar sögufrægar minjar, söfn og fallega garða.
Aðra helgina fórum við til Palermo þar sem við dvöldum í 4
daga á heimavist háskólans ásamt hinum skiptinemunum
sem voru í Palermo. Þar gerðum við okkur einna best
grein fyrir lukku okkar að hafa lent í Caltanissetta. í
Palermo voru í kringum 40 skiptinemar, á sumum deildum
voru svo margir nemar að þeir þurftu að skiptast á að
mæta. Auk þess var um að ræða háskólasjúkrahús og
áhugi læknanna reyndist vera töluvert minni en í
Caltanissetta af sögunum að dæma. Eins var skipulag
IFMSA fulltrúanna þar ekki upp á marga fiska en það er
önnur saga. Þriðju helginni eyddum við í Catania, fórum
að Isola Bella sem þykir vera með fegurri stöðum á Sikiley
og að sjálfsögðu fórum við upp á Etnu. Það var ekki laust
við að smá heimþrá gerði vart við sig þegar maður skynjaði
orkuna í fjallinu og fann brennisteinslyktina í loftinu ásamt
biksvarta sandinum. Það kom okkur á óvart hvað það var
í raun margt sammerkt með Sikiley og íslandi,
eldfjallavirknin, eyland, hæðótt og fjöllin, en samt svo
margt ólíkt. Við erum ótrúlega glöð að hafa kynnst Sikiley,
það er nánast gefið að ef ekki hefði verið fyrir
skiptiprógrammið þá hefðum við líkast til aldrei farið
þangað. Þvílík gæfa að hafa kynnst fólkinu þarna, fólki
sem kunni svo sannarlega að láta okkurlíða vel. Sikileyingar
eru höfðingjar heim að sækja!
Littmann fæst hjá Vistor
Classic II S.E. hlustunarpípur
nú á tilboðsverði kr. 9.900
Health Care
vistor
Vistor hf. i Hörgatúni 2 i 210 Garöabær i Sími: 5357000 i Fax: 565 6485 i www.vistor.is
Læknaneminn 2007 2 9