Læknaneminn - 01.04.2007, Page 34

Læknaneminn - 01.04.2007, Page 34
Framhaldsnám í Bandaríkiunum sér húsnæði og selt aftur. Gæði húsnæðis er talsvert lélegra en hérheima, sérstaklega m.t.t. einangrunarog innréttinga. Til að fá gæði þarf að borga "big buck". Heilbrigðiskerfi landsins Flestprógrömm sjá fyrirtryggingum (HMO) á niðurgreiddu verði og tryggja mann einnig fyrir mistökum í starfi. Ég varð fyrir því að fá gallsteina og fór í aðgerð sem heppnaðist vel. Ég hafði ekki undan neinu að kvarta. Þá fékk maður einnig ódýra tannlæknistryggingu. Sjúkrahúsum er að fækka mikið í USA því rekstur þeirra smærri er ekki lengur arðbær og styrktaraðilum fer fækkandi. Fyrir um 4 árum var því spáð að í NY fylki myndi þeim fækka um 100 stykki á næstu 10 árum. Skipulag sérnámsins Á fyrsta og öðru ári er aðallega aflað klínískrar reynslu, mest á almennum deildum en einnig á gjörgæslu (intensive care unit - ICU) og hjartagjörgæslu (CCU) og almennri göngudeild. í mörgum prógrömmum er árinu skipt upp í þrettán 4 vikna tímabil (rotations) en í öðrum eftir dagatalsmánuðinum. Á öllum þremur árunum tekur maður a.m.k. eitt tímabil í næturvaktir (night float) og vinnur þá sex nætur í viku frá kl 22 til 08 og fyrsta árs nemarnir gefa skýrslu um innlagnir til dagteyma á meðan annars árs nemarnir svitna undir spurningum prógrammstjórans eða annars reynds sérfræðings á klínískum morgunfundi (morning report). Þriðja árs neminn hjálpar við að finna góð sjúkratilfelli til að kynna en getur að mestu slakað á og glott yfir eða vorkennt þeim sem grillaður verður. Þessir fundir eru mjög gagnlegir og lærdómsríkir, sérstaklega ef sérfræðingurinn er góður sem hefur umsjón. Á öðru og þriðja ári er vinnan meira í formi umsjónar þó að sú vinna sé reyndar mjög ærin hjá öðru árinu. Tímabilin verða meira á deildum undirsérgreina og klíníkum þeirra. Þá fær maður meiri tækifæri til að intúbera og setja upp æðaleggi í djúpar æðar, m.a. Schwann-Ganz leggi í ICU og læra á hemodynamic monitoring. Maður þarf þó að bera sig eftir björginni og sýna nokkra áræðni því annars missir maður af tækifærum. Allir eiga að halda skýrslu yfir þessi handverk (procedures) og fá undirskrift sérfræðings í lokin. Það á að framkvæma 5-10 af hverri tegund á þessum 3 árum. Á öðru ári er rétti tíminn til að sækja um í undirsérgrein og þarf oftast meðmæli prógrammstjórans og tveggja annarra, þar sem a.m.k. annar er úr prógramminu. Það verður því áberandi sleikjuskapur sumra við suma strax í byrjun 1. árs. Það er lítill tími og strax á 1. ári borgar sig að finna sér líklegan sérfræðing til að biðja um bréf og rækta tengsl við viðkomandi. Á öðru ári er einnig ætlast til að maður taki USMLE step 3 prófið sem er skilyrði þess að maður fái lækningaleyfi í lok náms og geti farið í sérnám eða unnið sem lyflæknir. Ég tók þetta próf áður en ég byrjaði í prógramminu og var það mér mikill léttir því það er ekki gefinn neinn upplestrartími fyrir það. Þetta próf byggir á klínískri ákvarðanatöku og er með þríþættar spurningar sem byggja á starfsvettvangi, þ.e. í héraði, klínik í borg eða á spítala. Þriðja árið er langléttast (hlægilega svo) og þá fær maður tíma til að lesa og svo viku frí til að fara á sérstök námskeið fyrir BOARD prófið. Tími gefst til að ræða betur við undirgreinasérfræðingana og fínpússa þekkinguna. í New York er bannað að vinna meira en 80 klst. á viku og maður á að fá 8 klst. hvíldartíma á sólarhring og a.m.k. 24 klst. hvíld á viku. Það er farið eftir þessu að mestu í lyflækningaprógrömmum en mikil brotalöm hjá skurðlæknum. Skipulag teymis á spítalanum Sérnámið í lyflækningum er að meginbyggingu eins í öllum prógrömmum, þ.e. þrjú ár þar sem fyrsta árs neminn er kallaður intern (PGY-1) og þriðja árs neminn senior og hefur hann ákveðna yfirumsjón með starfi t.d. tveggja teyma á gangi sem samanstanda af 2-4 interns og einum PGY-2. Annars árs neminn leiðir hvert teymi og hefur þriðja árs nemann til ráðgjafar og hjálpar. Þriðja árs neminn (PGY-3) hefur fleiri valmánuði á deildum undirsérgreina og hefur yfirleitt einhvern tíma aflögu til að fara á bókasafn og lesa. Fyrstu tvö árin eru hörð vinna og maður les nánast eingöngu heima hjá sér nema þá fáu mánuði sem maður kemst á göngudeild eða sérgreinaklínik. Þessi goggunarröð er nánast hin sama alls staðar í USA. Lítið er um sjálfstæða ákvarðanatöku á daginn því ábyrgð sérfræðinganna er mikil sem og eftirlit með gæðum. Færa þarf stuttar og skipulagðar nótur um alla sjúklinga í manns umsjá 6 daga vikunnar. Þetta er skipulagið í New York fylki þar sem ég var en af því sem ég heyrði frá öðrum er þetta svipað annars staðar. Göngudeild er 1-2 eftirmiðdaga í viku og þar sér sérfræðingur með manni alla sjúklinga í lok viðtalsins öll árin. Þetta var orðið þreytandi, sérstaklega á 3. árinu en Bandaríkjamenn eru mjög fastir á reglum og hafa ekki efni á því að gera mistök í þeim lögsóknarheimi sem þeir búa í. Þeim ykkar sem líkar ekki að læra nýtt tungumál ættu að forðast spítala þar sem mikill hluti íbúanna eru spænskumælandi. Þetta er reyndar ómögulegt að forðast í strandríkjunum en þó í minna mæli norðan við New York. Ég þurfti að læra spænsku að nokkru leyti til að lifa af daginn. Notkun á túlkum var of tafsöm. Eftirá fannst mér þetta eitt það skemmtilegasta sem ég lærði í USA. Hinn dæmigerði vinnudagur Passið ykkur að segja ekki "journal" sbr. sjúrnall, þegar þið biðjið um sjúkraskrá. Þið fáið bara starandi augnaráð. Rétt heiti í USA er "patient chart". Á fyrsta ári er allt púlið og maður finnur fyrir þeirri stéttaskiptingu sem er við lýði. Það er keimur af heraga og 34 Læknanemirm 2007
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.