Læknaneminn - 01.04.2007, Síða 35
Framhaldsnám í Bandaríkjunum
eldri nemendur eru harðir húsbóndar margir hverjir. Maður
byrjar á því að taka niður lífsmörk sinna sjúklinga og kíkja
augnablik á þá áður en fundur með teyminu og
sérfræðingnum byrjar (the attending physician). Fyrir
fundinn tekur maður niður upplýsingar um nýjar innlagnir
sem búið er að fela manni af næturvaktinni. Allt er skráð
niður eftir ákveðnu kerfi á kort (index cards) sem maður
notar sem vinnublöð. Aðeins má nota viðurkenndar
skammstafanir í skýrslur og það er betra að kunna þær
allar sem fyrst. Dæmi: A 50 y.o. <$ ~ CAD, HTN, ESRD,
COLD c/o SOB, CP, þ.e. fimmtugur maður með
kransæðasjúkdóm, háþrýsting, endastigs nýrnabilun og
langvinnan lungnasjúkdóm kvartar um mæði og brjóstverk.
A þeim hraða sem unnið er verður maður feginn þessum
styttingum. Flettifundur með teyminu ferfram án nærveru
hjúkrunarfræðinga og í raun er ekki fengin nein skýrsla frá
þeim nema óbeint í gegnum næturvaktina. Þetta fannst
mér einn helsti gallinn við kerfið og kom hann m.a. fram í
því að hjúkrunarfræðingarnir voru mun verr að sér en ég
átti að venjast heima. Suma kosti hafði það þó sem ég læt
ónefnda. Farið var yfir nýja og gamla sjúklinga og svo
genginn stofugangur. Svo tók við venjubundin deildarvinna.
Nokkra daga í viku var fræðslufundur í hádeginu og svo
"grand round" fyrirlestur utanaðkomandi fyrirlesara á
föstudagsmorgnum kl. 9-10. Fyrsta árs nemar náðu þó
sjaldnast að mæta á þessa fundi.
Vaktaálag / vinnustundir á mánuöi eða viku
Þetta er mismunandi eftir prógrömmum en er í flestum
fylkjum orðið skikkanlegt í lyflækningum. Best er ástandið
í New York því þar bannað skv. lögum að vinna yfir 80
stundir á viku. Algengt er að unnið sé um 60 klst. Ástandið
er betra þar sem nemarnir eru aðilar að CIR (Committee of
Interns and Residents, www.cirseiu.org) en þau samtök
berjast fyrir bættum kjörum og vinnuskilyrðum nema í
sérnámi. Þá er hægt að fá mjög gagnlegar upplýsingar
"bakdyramegin" um ýmis prógrömm gegnum síðuna www.
scutwork.org en þar geta nemar skrifað álit sitt á
prógramminu sínu undir nafnleynd. Þessar upplýsingar eru
mikilvægar því maður fær afar sjaldan hreinskilnar
upplýsingar frá þeim nema sem fenginn er til að sýna
manni og gefa upplýsingar í viðtali. Það er heldur ekki í
manngerð Ameríkana að tala um galla sína eða galla
vinnustaðarins. Allir eru frekar smeykir um stöður sínar og
meðmæli og taka því enga áhættu. Ef maður er sniðugur
getur maður kannski fiskað eitthvað en það gæti gefið
neikvæða mynd af manni.
Fjölskylduvænt?
Það er mjög mismunandi eftirfylkjum og borgum. Iowa,
Wisconsin, Connecticut og miðríkin eru ekki eins þéttbyggð
og í kringum háskólabæi er líklegra að finna fjölskylduvæn
hverfi og góða barnapössun. Ég var í New York borg og
gæti hugsað méraðala upp barn þarupp aðgrunnskólaaldri.
Þrátt fyrir marga kosti við að búa í USA gæti ég ekki mælt
með því að ala upp barn þar til fullorðinsára. Það er
einfaldlega of mikið í menningunni og lífsskoðunum þar
sem mér líkar ekki. Inn á milli eru frábærir einstaklingar en
það nægir mér ekki. Við getum lært margt af þeim eins og
t.d. aukinn aga og forsjálni en ég fann ekki fyllilega fyrir
því öryggi sem ég tel æskilegt. Margir í Iowa og Madison,
Wisconsin hafa ílengst þar og líkað vel.
Gagnleg netföng
CIR (Committee of Interns and Residents):
www.cirseiu.org
Álitssíður nema í þjálfun:
www.scutwork.org
Annað má finna eins og ABIM, USMLE, Matching
programmið o.fl.
Gangi ykkur vel!
I Þessi miði gildir |
I í Listasafni íslands LÁM) Y/\/ I www.kaffitar.is I
1
Kaffitár
- leggur heiminn að vörum þér
Læknaneminn 2007 35