Læknaneminn - 01.04.2007, Qupperneq 42
Alþjóðanefndin SO ára
Hálfrar aldar afmæli Alþjóðanefndar
læknanema
Hjörtur Brynjólfsson
Aðst. nemendaskiptastjóri
2006-2007
Þorgerður Guðmundsdóttir
Formaður IMSIC 2003-2004
r
Iár er fimmtugasta starfsár Alþjóðanefndar læknanema
og er því vel við hæfi að kynna starfsemi nefndarinnar
og hvernig hún hefur þróast. Alþjóðanefndin, öðru
nafni IMSIC (Icelandic Medical Student's International
Committee) hefur verið starfandi frá árinu 1957 þegar
íslenskir læknanemar urðu aðilar að IFMSA (International
Federation of Medical Students Associations).
IFMSA voru eins og mörg önnur alþjóðafélög stúdenta
stofnuð skömmu eftir lok síðari heimsstyrjaldar. I
Kaupmannahöfn vorið 1951 komu saman fulltrúar
læknanema frá níu löndum til að stofna alþjóðasamtök
læknanema, IFMSA. Markmiðið var að koma á fót
alþjóðlegum ópólitískum nemendasamtökum. IFMSA hafa
að leiðarljósi að auka faglegt samstarf læknanema óháð
þjóðerni, trú, stjórnmálaskoðun og kyni. Á þessum 56
árum sem liðin eru frá stofnfundinum hafa samtökin vaxið
gríðarlega og standa nú 92 aðildarlönd að IFMSA. Innan
IFMSA starfa sex nefndir sem hver og ein sinnir verkefnum
á afmörkuðu sviði svo sem menntun læknanema, lýðheilsu,
kynfræðslu, mannréttindum og stúdentaskiptum. Tvisvar á
ári eru haldnir aðalfundir IFMSA þar sem saman koma um
700 manns frá mörgum aðildarlöndum. Þar fer fram
aðalstarf þessara sex nefnda, skipulag og undirbúningur
verkefna sem og þjálfun, fræðsla og kennsla á margvíslegum
sviðum. Á vegum IFMSA er unnið að ýmsum alþjóðlegum
verkefnum á borð við tóbaksvarnir, Bangsaspítalann,
baráttu gegn berklum og kynsjúkdómum, þar á meðal
alnæmi og verkefni tengt munaðarlausum börnum í
Rúmeníu. IFMSA eru virt samtök á alþjóðavísu og eiga
meðal annars fulltrúa í Alþjóða heilbrigðismálastofnuninni
(WHO), Sameinuðu þjóðunum og World Medical Association
(WMA).
Hingað til hafa stúdentaskiptin verið aðalhlutverk IMSIC
og hafa margir íslenskir læknanemar nýtt sér þau síðastliðin
fimmtíu ár. Út frá þessu alþjóðastarfi hafa á síðustu árum
orðið til tvö önnur félög innan raða læknanema, Ástráður
- forvarnarstarf læknanema - og nýstofnað Lýðheilsufélag
læknanema.
Þrátt fyrir að vera lítil nefnd á alþjóðamælikvarða getum
við státað af því að Björg Þorsteinsdóttir fyrrverandi
formaður IMSIC fór einnig með embætti forseta IFMSA
árið 1997-1998. Einnig hafa verið haldnar þrjár alþjóðlegar
ráðstefnur hér á landi, síðast í nóvember 2004. Þá var
haldin árleg ráðstefna FINO (Federation of International
Nordic Medical student's Organisations). FINO er norrænt
samstarf innan IFMSA og þar koma saman fulltrúar frá
Norðurlöndunum sem öll eiga aðild að IFMSA. Þótti
fundurinn heppnast mjög vel. Á þessum fundi kynntu
Norðmenn verkefni sitt í Kenya sem felst í sjálfboðavinnu
á heilsugæslustöðvum í fátækrahverfum Nairobi. Buðu
þeir hinum Norðurlöndunum að taka þátt og fór fyrsti
hópurinn á vegum IMSIC út strax sumarið 2005. Eftir það
hafa fleiri hópar íslenskra læknanema og einnig
tannlæknanema lagt leið sína til Kenya. Næsta sumar eru
enn fleiri hópar á leið þangað.
í stjórn IMSIC sitja 8 læknanemar. Formaður og
stúdentaskiptastjóri eru af 4. ári, gjaldkeri og aðstoðar
stúdentaskiptastjóri eru af 3. ári, ritari og sumardagskrár-
stjóri eru af 2. ári auk tveggja meðstjórnenda af 1. ári.
Á hverju sumri tekurlMSIC á móti u.þ.b. 20 læknanemum
alls staðar að úr heiminum. Hver nemi er einn mánuð í
42 Læknaneminn 2007