Læknaneminn - 01.04.2007, Side 47
Lost - týnda sjúkdómsástandið
Eins og sést á töflunni þá eru einkenni rúmmáis-
minnkunarlosts mjög lítil í upphafi og því mikilvægt að
vera á varðbergi. Helstu orsakirfyrirrúmmálsminnkunarlosti
eru allar meiriháttar blæðingar t.d. eftir slys, aðgerðir eða
blæðingar frá meltingarvegi og annað sem orsakað getur
vökvatap,t.d.uppköst,niðurgangur,aukinnþvagútskilnaður,
minnkuð vökvainntaka og bruni.
Einkenni rúmmálsminnkunarlosts eru eins og kemur
fram í töflunni breytt meðvitundarstig, lækkaður blóð-
þrýstingur, hraður og veikur púls, kaldsveitt húð, hröð og
djúp öndun og þreyta. Einnig getur verið þorstlæti og
lækkaður líkamshiti.
Meðferð við rúmmálsminnkunarlosti er fyrst og fremst
vökvameðferð. Þó hafa rannsóknir sýnt að við meira en
20% blóðtap sé rétt að byrja strax blóðgjöf og einnig ef
einstaklingurinn svarar ekki vökvagjöf með saltvatni. Ekki
hefur verið hægt að sýna fram á nokkurn mun milli
mismunandi tegunda vökva. Einnig er mikilvægt að gefa
súrefni og auðvita reyna að stöðva orsök vökvatapsins.
Bíða á með inotropisk lyf eins og noradrenalin eða dópamín
nema ef svörun við vökvameðferð sé ófullnægjandi eða
blóðþrýstingur mjög lágur.
Hjartabilunarlost eða cardiogeniskt lost er eins og
nafnið ber með sér lost af völdum ófullnægjandi starfsemi
hjartans. Vandamálið liggur þá í því að dæluvirkni hjartans
er skert þannig að ekki tekst að viðhalda fullnægjandi
blóðþrýstingi og blóðflæði til vefja líkamans. Oftast er
þetta vegna nýrra eða gamalla skemmda á
hjartavöðvanum.
Helstu orsakir fyrir hjartabilunarlosti eru stórt hjartadrep
(AMI), hjartsláttartruflanir, þykknun eða stífni í hjarta-
vöðvanum, hjartabilun, útflæðisvandamál (stenosis) og
lokusjúkdómar. Fyrir utan bein hjartaáföll þá er það oft
eitthvað annað sem kemur hjartabilunarlosti af stað. Veldur
það þá auknu álagi á hjartað sem getur verið veikt fyrir
vegna t.d. krónískrar hjartabilunar.
Einkenni hjartabilunarlosts eru álík rúmmálsminnkunar-
losti. Orsökin er þá léleg dæluvirkni og minnkað ústreymi
sem veldur lágum blóðþrýstingi, hækkuðum púls, breyttu
meðvitundarástandi, seinkaðri háræðafyllingu og kald-
sveittri húð. Einnig geta verið þandar hálsbláæðar og
auðvitað óreglulegur púls ef hjartsláttaróregla er orsök
lostástands. Einkennum er hægt að skipta upp eftir því
hvort starfstruflunin er vinstra eða hægra megin í
hjartanu.
Meðferð á hjartabilunarlosti miðar að því að ná upp
dæluvirkni hjartans og bæta súrefnisbúskap þess til að
oiinnka mögulegar skemmdir á hjartavöðvanum. Meðferð
er þó nokkuð mismunandi eftir því hver orsökin er. Ávallt
skal þó hefja sem fyrst súrefnismeðferð og leiðrétta
blóðþrýsting. Oft þarf að bregðast hratt við með lyfjum til
að leiðrétta t.d. hjartabilun eða hjartsláttaróreglu.
Mikilvægast er þó eins og áður að vera vakandi fyrir
skilmerkjum losts og bregðast hratt við ef einstaklingur
stefnir í eða er komin í hjartabilunarlost. Það ástand setur
hann í allt annan flokk þegar kemur að lífslíkum en yfir
50% einstaklinga látast ef einkenni þeirra þróast yfir í
hjartabilunarlost.
Blóðflæðishindrunarlost eða obstructive lost er
þegar blóðflæði er stöðvað eða það kemst ekki til þess
líffæris sem því er ætlað. Því skapast staðbundið
rúmmálsminnkunarlost en einkenni geta verið mjög
mismunandi eftir því hvar blóðflæðistruflunin er.
Helstu orsakir fyrir blóðflæðishindrunarlosti eru cardiac
tamponade þar sem þrýstingur í gollurshúsinu dregur úr
eða stöðvar flæði blóðs til hjartans sem veldur minnkuðu
útstreymi og blóðþrýstingsfalli. Þrýstingsloftbrjóst veldur
samfalli á lunga og tilfærslu á miðmætinu. Við það kemur
þrýstingur á hjartað og stóru bláæðarnar og dregur úr
blóðflæði til hjartans. Blóðtappar í lungum sem valda
truflun á loftskiptum í lungum geta með auknum
lungnaþrýstingitruflaðblóðflæðitilhjartans.Ósæðarþrengsli
valda truflun í útstreymi frá hjartanu og valda þar með
truflun á blóðflæði. Einnig geta blóðtappar eða æðaþrengsli
í minni líffærum valdið afmarkaðri truflun í blóðflæði sem
er þó nægjanleg til að koma af stað lostástandi.
Einkenni blóðflæðishindrunarlosts eru svipuð og við
rúmmálsminnkunarlost með lækkuðum blóðþrýstingi,
hækkuðum púls, breyttu meðvitundarástandi og kaldsveittri
húð. Einnig koma fram eins og í hjartabilunarlosti þandar
hálsbláæðar og pulsus paradoxus getur fundist ef um
tamponade er að ræða.
Meðferð blóðflæðishindrunarlosts er einföld, leiðrétta
verður undirliggjandi orsök fyrir lostinu. Meðferðin getur
því verið mjög mismunandi, frá því að setja inn
brjóstholskera vegna loftbrjósts eða gefa segaleysandi
meðferð vegna blóðtappa í lungum. Það sem er mikilvægast
er að eins og áður sé meðferð hafin eins fljótt og hægt er
og jafnvel áður en greining hefur að fullu verið staðfest.
Æðavíkkunarlost eða distributive lost er til komið
eins og í rúmmálsminnkunarlosti vegna þess að skortur er
á blóðrúmmáli. Það sem er þó öðruvísi í æðavíkkunarlosti
er að vökvaskorturinn er í raun ekki til staðar heldur er það
mikil víkkun á æðakerfinu sem veldur falli á blóðþrýsting
og ófullnægjandi blóðflæði til vefja líkamans. Hjartað
reynir að bæta fyrir þetta með því að auka útstreymið og
hraða hjartslætti. Vegna bólgu- og ónæmissvörunar verður
truflun á súrefnisupptöku í vefjum líkamans og einkenni
losts fara að koma fram.
Orsakir fyrir æðavíkkunarlosti eru margar og nokkuð
mismunandi. Algengasta orsökin er sýklasótt þar sem
Læknaneminn 2007 47