Læknaneminn - 01.04.2007, Síða 50
Heiðursgestur á árshátíð Félags læknanema 20(
Heiðursgestur á árshátíð Félags
læknanema 2007
Erik Brynjar Schweitz Eriksson afhenti fyrir hönd stjórnar
Félags iæknanema Gunnhildi Jóhannsdóttur
viðurkenningarskjöld af þessu tilefni.
að við upphaf námskeiðsins fær hver og einn nemi umslag
með lykli að skáp og svo Handbókina góðu. Handbókin
inniheldur m.a. niðurröðun nema á deildar (litaraðað),
vaktalista, stundaskrá fyrir hverja viku, aðgang að öllum
helstu talnalásum spítalans og margt fleira. Fyrir týndan
læknanema sem er að taka sín fyrstu spor á spítalalóðinni
er þetta hrein guðsgjöf.
Þó mörg hjól haldi kúrsinum gangandi er það Gunnhildur
sem kemur vélarvana nemendum í gírinn. Verði einhver
breyting á stundaskrá fer enginn varhluta af því. Sé
eitthvert vanda- eða vafamál er ávallt unnt að leita til
hennar. Er hún þekkt meðal læknanema fyrir gott viðmót
og skjót viðbrögð.
Nú kemur Gunnhildur einnig að hinu nýja valnámskeiði á
6. ári ásamt Tómasi Guðbjartssyni. Sömu sögu er þar af
Gunnhildi að segja. Sem fyrr mætir hún með puttann á
púlsinum.
Aðkoma Gunnhildar er nú orðin gæðavottun á kúrsum í
læknadeild. Er hún því vel að þessum verðlaunum komin.
r
Ahverju ári velur 6. árið heiðursgest á árshátíð Félags
læknanema. Yfirleitt er um að ræða kennara við
læknadeild og er honum boðið ásamt maka. Boðinu er
ætlað að vera eins konar heiðursviðurkenning félagsins
fyrir vel unnin störf.
Gunnhildur Jóhannsdóttir, skrifstofustjóri á skurðdeild
Landspítala háskólasjúkrahúss Hringbraut, hlaut
heiðursviðurkenningu Félags læknanema árið 2007 fyrir
frábær störf við skipulagningu verknáms læknanema á
skurðlækningadeildum á 4. ári og valtímabils læknanema
á 6. ári. Því miður sá Gunnhildur sér ekki fært að mæta á
árshátíðina en fékk afhentan viðurkenningarskjöld í vikunni
fyrir árshátíð.
Gunnhildur er af mörgum læknanemum talin límið sem
heldur skurðlæknisfræðikúrsinum saman. Mættu
umsjónarmenn annarra kúrsa taka Gunnhildi sér til
fyrirmyndar hvað skipulag og upplýsingaflæði varðar.
Nemendur vita nákvæmlega hvað er í gangi á hverjum
tíma og hvert þeim ber að mæta. Sem dæmi mætti nefna
Heiðursgestir síðastliðinna ára:
1999: Ólafur Ólafsson, hjartalæknir og fyrrv.
landlæknir
2000: Gestur Pálsson, barnalæknir
2001: Hannes Blöndal, sérfræðingur í líffærafræði
2002: Halldór Jóhannsson, æðaskurðlæknir
2003: Kristján Óskarsson, barnaskurðlæknir
2004: Margrét Oddsdóttir, skurðlæknir
2005: Jóhann Axelsson, lífeðlisfræðingur
2006: Ásgeir Jónsson, hjartalæknir
2007: Gunnhildur Jóhannsdóttir, skrifstofustjóri á
skurðlækningadeild
50 Læknaneminn 2007