Læknaneminn - 01.04.2007, Síða 55

Læknaneminn - 01.04.2007, Síða 55
Verknám á 4. námsári í Ivf- oa handlækninqum spítalann lenda í engum vandræðum með að finna bílastæði. Enn fremur verður maður þessarar sérstöðu fljótt var inni á spítalanum því andrúmsloftið er allt miklu léttara og þægilegra. Starfsmenn spítalans þekkja hvern annan meira og minna með nafni, hafi þeir eitthvað saman að sælda á annað borð, og gjarnan fjölskylduhagi aðra líka svo mér þótti samstarf fólks og samskipti oft ganga einhvern vegin eðlilegar og mannlegar fyrir sig heldur en á LSH. Ég minnist þess t.a.m. ekki að hjúkrunarfræðingar hafi haft önnur en góð afskipti af okkur nemunum, þrátt fyrir að eflaust hafi verið næg tilefni til. Vegna smæðarinnar er einnig mjög einfalt að rata um húsið og fljótlegt að læra inn á hvernig hlutirnir ganga fyrir sig og engir fjandans öryggiskóðar og talnarunur til að gleyma og týna. Matsalurinn krefst sérstakrar umfjöllunar. Matseldin þar er til fyrirmyndar og finnur maður það á bragðinu og áferðinni að hann er eldaður af alúð. Matseljuna sér maður fyrirsérsem hlýlega og þéttholda mömmu á miðjum aldri, samanborið við róbótana í matvinnsluverksmiðju LSH. Og fyrir stúlkurnar og íþróttaálfana - salatbar á hverjum degi. Greitt er svo fyrir matinn með strikamerktu auðkenniskorti eða einfaldlega uppgefinni kennitölu svo matarmiðavesen er úr sögunni, en gíróseðlarnir berast reyndar um síðir. Skurðdeildirnar eru tvær, bæklunardeild og hand- leekningadeild, sem er afar fjölbreytt að viðfangsefnum. Bæklunarskurðlæknarnir eru fimm og flestir óvenju viðkunnanlegir og kennslufúsir miðað við stétt. Þar á meðal erannartveggja bestu handarkirurga landsins, sem sökum handaskaðafæðar sinnir öðrum skönkum engu síður; eins er þarna Þorvaldur Ingvarsson, afbragðskennari og Ijómandi maður, þrátt fyrir að vera um þessar mundir að asnast út í pólitík, og það fyrir íhaldið. Á handlækningadeild eru fimm skurðlæknar. Tveir þvagfæraskurðlæknar og almennur skurðlæknir frá Hrísey. Æðaskurðlæknir, sem er bróðir Eiríks Haukssonar en syngur mun betur, með bassarödd neðan úr iðrum jarðar og vekur því sjúklingana til lífsins með sálmasöng að morgni dags. Enn fremur er þarna forstöðulæknirinn indverski, Shreekrishna Datye, sem er sem skurðlæknir jafn fjölhæfur og mannlífið meðfram Ganges og öflugri íslenskumaður en unglæknarnir flestir og segir hann þeim því til jafnt í læknisfræði sem málfræði. Þrátt fyrir að nýbreytni tómleikans hafi berlega blasað við mér, stöku sjúkrarúm auð dögum saman, og engir sjúklingar legið á göngunum, þá var í raun enginn skortur á viðfangsefnum eða fórnarlömbum á hinn alræmda skráningarlista sjúrnala og innskrúbbaðra aðgerða, sérstaklega þarsem færri bekkjarfélagar voru til að berjast við um hvern sjúkling. Fjölbreytileiki aðgerðanna var einnig ágætur, en möguleiki er að sjá flest allt annað en heila- og hjartaaðgerðir, ent.a.m. erum þriðjungurgerviliðaaðgerða á íslandi framkvæmdur á FSA og er nokkuð um það að sjúklingar séu sendir að sunnan. Áhugasamir hafa einnig möguleika á því að komast í aðgerðir kvensjúkdóma- og fæðingarlækna og krufningar ef lítið er að gerast á öðrum vígstöðvum auk þess sem maður getur alltaf skotist á slysadeildina. Sá ókostur er reyndar á slysadeildinni að íbúafjöldi svæðisins býður ekki upp á hinn stöðuga eril Læknaneminn 2007 55
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.