Læknaneminn - 01.04.2007, Blaðsíða 58
Af Félagi læknanema
Af Félagi læknanema
Sigurður Árnason
Formaður Félags læknanema
5. árs læknanemi
Félag læknanema var stofnað árið 1933 og er
næstelsta nemendafélag við Háskóla íslands. Innan
félagsins starfa læknanemar af öllum sex námsárunum
en félagið samanstendur af stjórn, fulltrúaráði, kennslu-
og fræðslumálanefnd, ráðningastjórum og ritnefnd
Læknanemans. Einnig eru starfandi innan vébanda
félagsins lesstofustjórar, Ijósmyndari félagsins og ritstjóri
heimasíðunnar.
Með þessari grein er ætlað að varpa Ijósi á þá miklu
vinnu sem lögð er af hendi innan félagsins með því að fara
yfir starfsemina á líðandi starfsári. Stiklað verður á helstu
atriðum og atburðum undanfarinna mánuða auk þess sem
minnst verður á þá viðburði sem eru í burðarliðnum fyrir
núverandi vormisseri.
Stjórn Félags læknanema
Stjórn Félags læknanema er skipuð einum nemanda af
hverju námsári og fulltrúi fimmta ársins er formaður
stjórnar. Stjórnin er ábyrg fyrir störfum félagsins og heldur
utan um daglegan rekstur þess. Formaður stjórnar auk
formanns kennslu- og fræðslumálanefndar eru fulltrúar
nemenda í deildarráði læknadeildar sem er hið eiginlega
framkvæmdavald læknadeildar. Allir stjórnarmenn sitja
hina fjölmennu deildarfundi læknadeildar en deildarfundur
fer með ákvörðunarvald í málefnum deildarinnar.
Um leið og skóla lauk síðastliðið vor hittust fulltrúar
stjórnar, fulltrúaráðs og kennslu- og fræðslumálanefndar
og lögðu línurnar fyrir komandi starfsár. Sú forvinna skilaði
miklu og eftir að nýr samningur við aðalstyrktaraðila
félagsins, Kaupþing (þá KB Banki), var undirritaður í júlí
var hafist handa við að undirbúa upphaf skólaársins.
Stuðningur Kaupþings er í formi fjárstyrkja sem renna
beint til útgáfu- og fræðslustarfsemi félagsins auk þess að
gera félaginu kleift að halda uppi öflugu félagslífi.
Undirbúningur að útgáfu félagsskírteina var hafinn í
ágúst og sala þeirra hófst snemma í haust. Félagsgjöld eru
ákveðin af stjórnarskiptafundi ár hvert og voru þau 2.500
krónur fyrir veturinn 2006-2007. Einsetti stjórn sér að
nemendur þæru sem mest úr býtum ef þeir kysu að ganga
í félagið. Félagsaðild að þessu sinni fylgdi aðgangur að
heimasíðu félagsins, aðgangur í vísindaferðir félagsins og
afsláttur á matsölustöðum, af líkamsræktarkorti og á
árshátíð félagsins. Auk þess fengu allirtvo bíómiða á mynd
að eigin vali og þeir læknanemar sem eiga börn fengu tvo
til viðbótar.
Snemma á árinu bauð stjórn ásamt fulltrúaráði nýnema
velkomna í deildina með kynningu á félaginu ásamt
veglegum veitingum. Síðar sama kvöld voru það svo sjálfir
nýnemarnir sem kynntu sig fyrir eldri nemum samkvæmt
gamalli hefð. Þykir enn jafn vinsælt að komast að því hvort
einhver læknabörn séu í hópnum.
Allt frá því að Ijóst var að læknanemar yrðu að víkja af
lesaðstöðu sinni í Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg
síðastliðið vor vann stjórnin að því að útvega nýtt húsnæði.
Fengust nokkur vilyrði fyrir húsnæði og varð það úr að
læknanemar fengu lesaðstöðu í Ármúla 30, þar sem áður
voru rannsóknarstofur í lyfjafræði og réttarlæknisfræði.
Háskólinn stóð sig með prýði við að breyta gamalli
rannsóknarstofu í snyrtilegt lesrými. Hefur sú aðstaða nýst
vel í vetur en hún er ætluð öllum nemum sem lokið hafa
öðru námsári. Nemar á fyrstu tveimur árunum hafa áfram
aðstöðu í Læknagarði. Því miður er þó ekki víst hvort
læknanemar haldi aðstöðunni í Ármúla lengur en til
haustsins 2008. Mun stjórn því fljótlega hefjast handa við
að útvega nýtt húsnæði.
Á haustmánuðum hófst mikil umræða meðal læknanema
um ráðningakerfi félagsins sem hefur verið við lýði í fjölda
ára. Almenn sátt er um kerfið í meginatriðum en reglugerð
þess er þó yfirfarin á hverju ári. í nóvember boðaði stjórn
til félagsfundar um ráðningakerfið. Ráðningastjóri kynnti
þar ráðningakerfið og reglur þess og Ólafur Baldursson
sviðsstjóri skrifstofu kennslu, vísinda og þróunar á LSH
ræddi um tengsl læknanema við LSH. Að lokum voru kostir
og gallar kerfisins reifaðir og hugmyndir að úrbótum
ræddar í líflegum umræðum. Var í kjölfarið sett á laggirnar
nefnd læknanema sem hefur það markmið að endurskoða
kerfið í heild sinni og varpa Ijósi á þá þætti sem betur
mættu fara og koma með tillögur að endurbótum á næsta
aðalfundi FL.
í október síðastliðnum kom stjórn FL í samstarfi við LSH
að því að læknanemar gætu sótt þar um launaðar
yfirsetuvaktir. Um er að ræða yfirsetuvaktir yfir sjúklingum
sem þurfa tímabundið en stöðugt eftirlit vegna óráðs eða
annars ójafnvægis af andlegum eða líkamlegum toga. Þeir
læknanemar sem sóttu um vaktirsóttu í kjölfarið námskeið
hjá LSH um yfirsetu. Hafa útköll verið um þrjátíu frá því að
þessi starfsemi hófst í október en fleiri nemar eru um
hituna en læknanemar.
58 Læknaneminn 2007