Læknaneminn - 01.04.2007, Page 59

Læknaneminn - 01.04.2007, Page 59
Af Félaqi læknanema í marsmánuði hélt Félag læknanema ásamt Félagi ungra lækna kynningu á formlegri inngöngu fimmta og sjötta árs læknanema í Félag ungra lækna og þar með í Læknafélag Islands. Hefur sú innganga mikla þýðingu fyrir launamál læknanema en um þetta er fjallað annars staðar í blaðinu. Af þeim verkefnum sem eru í vinnslu hjá stjórn félagsins má nefna að félagið hyggst styrkja námskeið í endurlífgun ætlað fimmta árs nemum. Áhuginn á slíku námskeiði er mikill því margir læknanemar leysa af í héraði sumarið eftir fimmta ár. Ekki er boðið upp á slíkt námskeið í sjálfu læknanáminu fyrr en á sjötta ári. Að lokum má nefna ráðstefnu í hjartalækningum sem félagið hyggst halda í samráði við Merck Sharp & Dohme í aprílmánuði. FulltrúaráÖ Fulltrúaráð er skipað átta nemum, einum af hverju námsári en tveimur nemum af fyrstu tveimur árunum. Formaður ráðsins er fulltrúi þriðja ársins. Fulltrúaráð sér um og skipuleggur skemmtanir og íþróttaviðburði fyrir læknanema. Árshátíð Félags læknanema ber þar hæst en einnig er fjölmargt annað um að vera. Má þar nefna marga vísindaleiðangra læknanema, árlegt fótboltamót, snókermót, stelpu- og strákakvöld og Læknaleika. Einnig hefur fulltrúaráðið styrkt umgjörð vikulegs fótboltahóps og hlaupahóps fyrir áhugasama læknanema. Arshátíð Félags læknanema var haldin á Hótel Sögu 9. mars. Fulltrúaráð á veg og vanda að skipulagningu og framkvæmd hennar en hafist var handa við undirbúningsvinnu strax á haustmánuðum. Óhætt er að segja að hún hafi heppnast mjög vel og öll skipulagning og umgjörð glæsileg. Dagana fram að árshátíð var fjölmargt um að vera en fulltrúráð hafði skipulagt dansnámskeið fyrir læknanema auk pool- og fótboltakvölds. Einnig bauðst læknanemum afsláttur í skautahöllina í Laugardal og af snyrtivörum í Lyf og heilsu í Kringlunni. Að morgni árshátíðarinnar fengu allir bekkirnir gómsætar brauðkörfur og hittust bekkirnir ýmist um morguninn eða í hádeginu og gæddu sér á veitingunum. Veglegt happdrætti var svo á árshátíðinni sjálfri og hlutu hinir heppnu vinninga í boði félagsins. Aðalvinningur kvöldsins var flugmiði fyrir tvo til áfangastaðar að eigin vali í Evrópu. Á árshátíðinni voru afhent kennsluverðlaun Félags læknanema en Finnbogi Jakobsson, sérfræðingur í taugalækningum, hlaut þau að þessu sinni. Einnig voru afhent í fyrsta sinn kennsluverðlaun unglækna og þau hlaut Bjarni Þór Eyvindsson fyrstur unglækna. Gunnhildur Jóhannsdóttir, skrifstofustjóri skurðlæknissviðs LSH, fékk heiðursverðlaun Félags læknanema að þessu sinni. Um þessi verðlaun má lesa annars staðar í blaðinu. Fulltrúaráð stóð fyrir áðurnefndri nýnemakynningu síðastliðið haust auk þess sem nýnemum var boðið í helgarferð í Þjórsárver í septembermánuði í árlega nýnemaferð. Slík ferð hefur verið farin undanfarin ár við mikla ánægju nýnema og stefnt er að slíku áfram. Á næsta ári er fyrirhugað að nýta ferðina til að kynna enn betur fyrir nemum hvernig félagsstarfið innan deildarinnar er uppbyggt auk almennrar kynningar á læknadeild og læknanáminu. Vísindaferðir voru þó nokkrar á haustönn en sú fjölmennasta var í höfuðstöðvar KB Banka. KB Líf bauð einnig læknanemum í heimsókn á árinu sem og Álverið í Straumsvík, Sóltún, Neyðarlínan, Toyota, Svæðisskrifstofa fatlaðra, Morgunblaðið, Orkuveitan og Landsvirkjun. Fyrirhugaðar eru fleiri heimsóknir á árinu. Snóker hefur skapað sér töluverðan sess meðal læknanema, einkum meðal nema af fyrstu tveimur námsárunum. Árlega er haldið snókermót sem að þessu sinni var í októbermánuði. Síðar á önninni var haldið fótboltamót í Egilshöll. í báðum mótum fóru sjötta árs nemar með sigur af hólmi og hlutu að launum glæsilega verðlaunagripi. Hápunktur skemmtanalífs haustannarinnar var svonefnt stelpu- og strákakvöld. Stúlkurnar heimsóttu Álverið í Straumsvík á meðan strákarnir skoðuðu bíla hjá Toyota. Á eftir bauð félagið hvorum hóp um sig upp á drykkjarföng og síðar um kvöldið sameinuðust hóparnir og skemmtu sér saman fram á rauða nótt. Fulltrúaráð aðstoðaði nema annars árs þegar þeir héldu hið árlega jólaglögg læknanema. Var jólaölið kneyfað sem aldrei fyrr þetta kvöld. Á döfinni hjá fulltrúaráði eru hinir vinsælu Læknaleikar en þeir voru fyrst haldnir fyrir þremur árum. Á leikunum keppa læknanemar sín á milli í hinum ýmsu og oft mjög svo skrautlegu keppnisgreinum. Kennslu- og fræöslumálanefnd Kennslu- og fræðslumálanefnd er skipuð sex fulltrúum, einum af hverju námsári. Formaður nefndarinnar er á fimmta námsári. Kennslu- og fræðslumálanefnd vinnur ötult starf í kennslumálum læknadeildar. Fulltrúar nefndarinnar sitja fundi kennsluráðs læknadeildar sem annast framkvæmd og eftirlit með læknanemakennslu í læknadeild. Kennslu- og fræðslumálanefnd safnar umsögnum og athugasemdum nemenda um námskeið læknadeildarog kemur þeim áleiðis til kennsluráðsins. Óhætt er að segja að undanfarin ár hafi verið stormasöm hvað kennslumál varðarvegna umfangsmikilla breytinga á Læknanemirm 2007 5 9
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.