Læknaneminn - 01.04.2007, Blaðsíða 60
Af Félagi læknanema
námsskrá læknadeildar. Töldu margir nemar að þrátt fyrir
ágæti nýju námsskrárinnarkæmi framkvæmd breytinganna
mikið niður á þeirra námi. Einkum átti það við þá árganga
sem hófu nám samkvæmt eldri námsskrá en var þó gert
að útskrifast samkvæmt þeirri nýju. Hefur nefndin að
mestu leyti einbeitt sér að þessum málum undanfarin
misseri. í vor útskrifast fyrsti árgangurinn samkvæmt nýrri
námsskrá og er innleiðing breytinganna því langt komin.
Kennslu- og fræðslumálanefnd fylgir þessu enn vel eftir en
hefur nú meira ráðrúm til annarra starfa á borð við
fræðslustarfsemi og uppsetningu rafræns fræðabúrs.
Fræðabúrið mun koma til með að innihalda ýmislegt
gagnlegt fyrir læknanema og er mjög spennandi verkefni.
í vetur hefur nefndin staðið fyrir námskeiðskynningum
þar sem eldri nemendur miðla reynslu sinni til þeirra sem
styttra eru komnir í náminu. í upphafi nýrra námskeiða
getur farið mikill tími hjá nemendum í að ákveða hvaða
bækur skuli lesa, hvernig sé best að nálgast námsefnið og
hvernig prófamálum sé háttað í viðkomandi námskeiði.
Eru námskeiðskynningarnar liður í því að einfalda
læknanemum þær ákvarðanir svo tími þeirra nýtist betur
til lestrar. Það er svo ætlunin að með öflugu rafrænu
fræðabúri sem nú er í vinnslu muni verða hægt að miðla
slíkum upplýsingum sem mest á netinu fyrirfram og þannig
nýta kynningarnar fyrst og fremst sem fyrirspurnatíma.
Á haustmánuðum fóru formaður kennslu- og
fræðslumálanefndar og formaður stjórnar félagsins til
fundar við nema á fyrstu þremur árum námsins og kynntu
þar læknadeild og læknanámið undir yfirskriftinni „Allt sem
þú vildir vita um læknanámið en þorðir ekki að spyrja". Þar
varm.a. uppbygging læknanámsinsútskýrðímeginatriðum,
farið yfir grunnhugtök í læknisfræði og læknanámi ásamt
útskýringu á hlutverkaskiptingu lækna innan spítalans. í
mörgum tilvikum hafa læknanemar lengi framan af námi
verið að velta fyrir sér þýðingu hugtaka á borð við
unglæknir, kandídat, aðstoðarlæknir, „medesín" og
„kírúrgfa" en kynningin fól í sér útskýringu þessara hugtaka
ásamt ýmsu öðru. Er það ætlunin að slík kynning fari fram
árlega og verði jafnvel hluti af nýnemaferðinni á haustin.
Kennslu- og fræðslumálanefnd hefur einnig komið að
nefndarvinnu um nýjan spítala og lagt sitt af mörkum þar
varðandi aðstöðu nemenda ásamt því að taka þátt í
málefnum tölvuaðgengis læknanema á LSH.
Margt er á döfinni hjá kennslu- og fræðslumálanefnd og
ber þar helst að nefna hópslysaæfingu læknanema. Slíkar
æfingar eru haldnar annað hvert ár og er það hefð að
fyrsta árs nemar leiki sjúklinga og nemar eldri ára reyni
hvað þeir geti til að bjarga þeim. Þessar æfingar hafa
síðustu ár verið gríðarlega umfangsmiklar og afar vel að
verki staðið. Framkvæmd þeirra hefur verið í samstarfi við
sameiginlegan skyndihjálparhóp björgunarsveita á
höfuðborgarsvæðinu ásamt læknum slysadeildar. Mikil
tilhlökkun er meðal nema að taka þátt í þessum æfingum
sem eru gagnlegar en jafnframt skemmtilegar. Til viðbótar
við æfinguna hyggst nefndin standa fyrir fjölbreytilegum
fræðslufundum.
Önnur embætti
Ráðningastjóri ber ábyrgð á ráðningakerfinu og er hann
á fimmta námsári. Honum til fulltingis er aðstoðar-
ráðningastjóri á fjórða ári. Þeir eru einnig tengiliðir sinna
árganga við flest er við kemur verklegu námi læknanema
og skiptingu þeirra á deildir. Ráðningastjóri boðar
mánaðarlega ráðningafundi og er í samskiptum við alla
vinnuveitendur á landinu varðandi afleysingastöður fyrir
læknanema.
Ritnefnd Læknanemans vinnuröflugtstarfog læknanemar
geta verið afar stoltir af útgáfu svo metnaðarfulls fag-
tímarits. Ritnefndin er kosin á aðalfundi Félags læknanema
en hefð er fyrir því að ritstjóri blaðsins sé af fimmta ári.
Ljósmyndari félagsins sér um að mynda atburði á vegum
félagsins ásamt því að safna saman innsendum myndum.
Myndirnar eru birtar á heimasíðu félagsins. Áður fyrr var
slíkt birt á sneplum sem félagið gaf út og gekk útgáfan
undir nafninu Meinvörp en með tilkomu heimasíðunnar
hefur sú útgáfa lagst af.
Lesstofustjórar hafa umsjón með lesstofum læknanema
í Ármúla og á Læknagarði og sjá til þess að allt sé í röð og
reglu. Þeir fylgjast jafnframt með nýtingu lesaðstöðunnar
og deila út borðum samkvæmt nýtingu og eftirspurn.
Ritstjóri heimasíðunnar sér um ritstjórn á heimasíðu
Félags læknanema. í vinnslu eru umgengisreglur um
síðuna sem ritstjóri mun framfylgja. Heimasíða læknanema
www.laeknanemar.is er öflugt samskiptatæki læknanema
en þar getur félagið komið á framfæri fréttum og
auglýsingum auk þess sem spjallþræðir síðunnar eru
gríðarlega mikið notaðir af læknanemum til gagns og
gamans.
Einnig vinna læknanemar ýmis önnur áhugaverð störf
innan annarra nefnda og félaga á borð við Ástráð,
Alþjóðanefnd og Lýðheilsufélagið sem ekki tengjast beint
starfsemi Félags læknanema. Vísa ég í aðrar greinar í
þessu blaði um störf þeirra.
LokaorÖ
Það er Ijóst að starf félagsins er umfangsmikið og margt
skemmtilegt um að vera. Vil ég að lokum koma á framfæri
þökkum til allra þeirra sem leggja hönd á plóg innan
félagsins og fórna til þess miklum tíma og krafti.
60 Læknaneminn 2007