Læknaneminn - 01.04.2007, Síða 64
háskólabæjarstemmning og rík hjólreiðarhefð svo að á
annatímum streyma hjólreiðamenn um göturnar í meira
mæli en bílar.
Hver er aÖdragandinn og hvernig sækir maÖur um
stöðu?
Allar: Margar stofnanir hafa góðar upplýsingar á netinu
sem auðvelt er að finna og þar er hægt að kynna sér
starfsemi deilda, áherslur í rannsóknum, netföng tengiliða,
oftast yfirmanns (verksamhetschef), umsjónarlæknis
(schemalaggare) og prófessora. Best er að senda umsókn
til þessara aðila með tölvupósti. Mörgum hefur reynst
farsælt að fá meðmælanda (helst einhvern sem þekkir til
þess sjúkrahús/lands sem þú vilt sækja um hjá/í) og fá
hann til að hafa samband við deildina ytra, fá netfang þess
sem sér um ráðningarmál og skrifa síðan bréf. í bréfinu er
gott að fram komi hvers konar stöðu viðkomandi hefur
áhuga á, stuttur bakgrunnur með menntun, fyrri störfum
og vísindavinnu, auk þess að senda afrekaskrá (curriculum
vitae, CV) sem fylgiskjal. Gott erað nefna þar meðmælendur,
og að þeir eftir atvikum sendi einnig meðmælabréf. Jákvætt
er að lýsa áhuga á og/eða óska eftir að koma í viðtal, þó
það sé ekki skilyrði fyrir ráðningu. Bréfið má gjarnan vera
á sænsku, en svo er ekkert að því að samræður í síma eða
viðtali séu á ensku svo að maðurstandi á jafningjagrundvelli
og komi hreint fram. Gott er að hefja undirbúning einu ári
áður, þótt vel geti farið svo að manni verði boðið að koma
fyrr.
Ekki er óalgengt að fyrstu svör séu þau að ekkert sé
laust (Tyvárr...). Þá er mikilvægt að senda um hæl
þakkarbréf fyrir góð svör, en enda bréfið á að biðja
viðkomandi að hafa mann í huga ef eitthvað losnar og óska
eftir leyfi til að hafa samband síðar til að heyra hvort
eitthvað hafi breyst. Skrifa síðan bréf á 3-4 mánaða fresti
til að minna á sig og virkja meðmælanda sinn til þess
sama.
Þó er hugsanlega hægt að fá viðtal fyrr þótt ekkert sé
laust. Þetta getur bæði hjálpað til að komast að síðar, og
einfaldað umsóknarferlið þá með því að fylla einungis út
umsóknareyðublöðin og spara aðra utanferð sé ekki óskað
eftir nýju viðtali. Loks er hægt að fylgjast með lausum
stöðum á vef sænska læknafélagsins, http://www.slf.se,
og á honum ásamt vef sænska unglæknafélagsins (SYLF,
Sveriges Yngre Lákares Förening), http://www.slf.se/sylf,
er einnig hægt að fá yfirlit yfir kaup og kjör ásamt öðrum
gagnlegum upplýsingum (getur þurft aðgangsorð, vera
meðlimur). Taka ber þó fram að margar vikariat stöður eru
aldrei auglýstar.
íslendingar þurfa ekki að taka nein próf heldur geta sótt beint
um sænskt lækningaleyfi á grunni norrænna samninga.
Hvernig er skipulagi sérnámsins háttað?
Allar: Námsstöður eru nefndar ST (specialist tjánst-
göring) stöður, en tímabundnar afleysingastöður fyrir
deildarlækna 'vikariat'. Grunnsérnám í lyflækningum,
skurðlækningum og fleiri sérgreinum er 5 ár en til að fá
tvöfalda sérgrein (dubbelspecialist) bætast a.m.k. 1,5 ár
við. Til dæmis er sérnám í lyflækningum og undirsérgrein
6,5-7 ár, þar af 3 ár í undirsérgrein (gigt, lungna-,
innkirtlalækningum...) og 3,5 ár í almennum lyflækningum
og öðrum tengdum greinum. Skýrt er kveðið á um
lágmarkstíma á hverri deild, svo sem á hjarta- og nýrnadeild
og hvaða skilyrði slík deild þarf að uppfylla. Auk þess er
viss hluti val. Sænska læknafélagið/sérgreinafélögin gefa
út leiðbeiningar (utbildningsbok) með ítarlegum
marklýsingum í hverri grein sem hver læknir fær i upphafi
sérnáms og þarf að fylla í og skila inn þegar sótt er um
sérfræðileyfi. í ýmsum greinum er boðið upp á sérfræðipróf
í lokin og í öðrum er haldið stöðupróf árlega. Við upphaf
sérnáms fær/velur sérnámslæknir klínískan handleiðara,
og sé stefnt að doktorsnámi samhliða, annan rannsókna-
handleiðara. Klínískur handleiðari er tengiliður þinn við
"kerfið" og veitir leiðsögn um hvaða kúrsa eigi að sækja
auk þess sem mánaðarlegir fundir eru haldnir þar sem
farið er í gegnum lesefni, tilfelli o.fl. Hann aðstoðar einnig
við uppsetningu svonefnds ST samnings í upphafi sérnáms
þar sem formlega er kveðið á um innihald og lengd
sérnámsins, svo sem tímalengd á einstökum deildum,
skyldu- og valkúrsa (SK kurser), ráðstefnur, lesefni,
rannsóknatækifæri o.fl., og er þetta einstaklingsmiðað í
Ijósi fyrri reynslu. Oft er innifalið í ST samningi rétturtil að
sækja 2-4 SK-námskeið eða önnur sambærileg námskeið
árlega á launum þar sem uppihald og námskeiðsgjöld eru
greidd af klíníkinni. Þessi samningur er undirritaður af
námslækni, handleiðara, yfirmanni stofnunar og
umsjónarlækni sérnámsins (studierektor) og skuldbindur
þannig stofnunin sig til að uppfylla þessi markmið og veita
þannig lækninum menntun til sérfræðiviðurkenningar á
64 Læknaneminn 2007