Læknaneminn - 01.04.2007, Blaðsíða 66
Sérnám í Svíþjóð
um vinnutíma sem má ekki fara umfram 48 tíma að með-
altali á hverju 4 vikna tímabili. Hluti vaktalauna er almennt
greiddur sem uppsafnað frí sem kemur betur út skattalega
og nýtist vel til lestrar, rannsókna eða annarrar sjálfsbetr-
unar.
Hvernig er heilbrigðiskerfi Svíþjóðar uppbyggt
samanborið við það íslenska?
Allar: Það er almennt séð líkt hinu íslenska, að því und-
anskildu að sjálfstætt starfandi sérfræðingar eru fáir og
göngudeildarstarfsemi mun öflugri, auk þess sem sjúkling-
ar þurfa tilvísun til sérfræðings. Hámarksbiðtími eftir lækn-
isheimsókn er 3 mánuðir.
Hvaða möguleikar eru á rannsóknavinnu?
Allar: Hér er mikið lagt upp úr rannsóknum enda líta
Svíar á rannsóknavinnu sem mikilvægan hluta sérnáms.
Því eru miklir og góðir möguleikar til rannsóknavinnu hér
og samþætting hennarvið klínískt sérnám sveigjanlegri og
auðveldari en víða gerist. Mikilvægt er þó að benda á að
þetta fær ekki að vera á kostnað klínískrar þjálfunar og
sérnám lengist því séu rannsóknir fléttaðar inn í.
Hvaða valkostir bjóðast í húsnæði?
Allar: Góðir möguleikar eru á að kaupa hús (villa) eða
íbúð (bostadsrátt) og miðað við laun ráða læknar almennt
vel við það. Verðlag er svipað og gerist á íslandi en hefur
farið hækkandi, breytilegt eftir svæðum. Skoðið gjarnan á
www.hemnet.se og www.bovision.se. Þetta er jafnvel hægt
að gera áður en flutt er út. Leiga kemur einnig til greina en
er gjarnan 'second hand' og öryggi því minna.
Er Svíþjóð fjölskylduvænn sérnámskostur?
Sædís: Varla er hægt að hugsa sér betri aðstæður fyrir
fjölskylduna. Leikskólar eru almennt mjög góðir og dvalar-
tími sveigjanlegri en á íslandi. Mikið tillit er tekið til barna
á vinnustað og fæðingarorlof beggja kynja álitið sjálfsagt.
Lengd þess er 1 ár og eiga börn rétt á leikskólaplássi frá
þeim aldri. Sjálf erum bæði við og dóttir okkar afar ánægð
með leikskólann hennar, hún fékk pláss innan mánaðarfrá
því við fluttum, og væntanlegu fæðingarorlofi okkar hjóna
hefur verið tekið mjög jákvætt af hálfu vinnuveitenda og
samstarfsfélaga. Aðstaða til íþrótta s.s. sunds og skíðaiðk-
unar er líka frábær í nágrenninu og mikið um gróin útivist-
arsvæði í borginni sem eru mannmörg í góðu veðri!
Sigríður: Ekki spurning. Forgangsröðunin í samfélaginu
er á börnin og fjölskylduna. Við erum með tvö börn, 6 ára
strák sem var að byrja í skóla og 4 ára stelpu á leikskóla.
Við erum öll ánægð með skólann og leikskólann. Áður en
við fluttum út þá vorum við búin að athuga með leikskól-
apláss í hverfinu sem við fluttum í og fengum pláss mánuði
eftir að við fluttum út, þannig að það gat ekki gengið betur.
Hins vegar er mikilvægt að gera allt hér með miklum fyrir-
vara. Svíar skipuleggja allt með miklum fyrirvara og því
mikilvægt að sækja um eins fljótt og maður getur. Maður
er búin að reka sig nokkrum sinnum á það að íslenski
hugsunarhátturinn " þetta reddast" gildir ekki hér. Annað
hvort sækir þú um og gerir hlutina á réttum tíma eða þú
bara missir af!
Inga Sif: Við erum tvö í heimili með íslenskan hest og
líður afar vel hér. Vinnutíminn er skýr og tími til frístunda
góður. Við hjólum mikið, syndum í nálægu vatni yfir sum-
artímann, stundum skíðamennsku, fjallaútivist og skauta-
tækifæri á vötnum eru óþrjótandi yfir háveturinn. Um-
hverfis Uppsala er víða góð aðstaða til að hafa hesta og
reiðleiðir fjölbreyttar í fallegri náttúru.
Nokkur gagnleg netföng:
Sænska læknafélagið (Svenska Lákaresállskapet):
www.svls.se/svls.cs
Stéttarfélag sænskra lækna (Sveriges lákarförbund):
www.slf.se
Félag sænskra unglækna (SYLF, Sveriges Yngre
Lákares Förening):
www.slf.se/sylf
Námskeið, kúrsar:
www.ipuls.se
Socialstyrelsen:
www.Socialstyrelsen.se
Sænsk-Ensk netorðabók:
www.lexin2.nada.kth.se/swe-eng.html
Fasteignaleitarsíður:
www.hemnet.se,www.bovision.se
Að lokum:
Við viljum benda áhugasömum á góða og ítarlega yfir-
litsgrein sem birtist í Læknablaðinu fyrir nokkrum árum og
fjallar almennt um sérfræðinám í Svíþjóð, landið og heil-
brigðiskerfið: Kristín Huld Haraldsdóttir, Tómas Guðbjarts-
son. Sérfræðinám í Svíþjóð - Vænn kostur. Læknablaðið
2001;87:160-166.
Þeir sem vilja fá frekari upplýsingar um framhaldsnám í
Stokkhólmi eða Uppsala er velkomið að hafa samband við
okkur með tölvupósti.
Inga Sif Ólafsdóttir, inga sif.olafsdottir@medsci.uu.se
Sigríður Bjömsdóttir, sigridur.bjomsdottir@karolinska.se
Sædís Sævarsdóttir, saedis.saevarsdottir@karolinska.se
66 Læknaneminn 2007