Læknaneminn - 01.04.2007, Qupperneq 76
Ástráður - rosalegur dónakall
Ástráður - rosalegur dónakall
Omar Sigurvin
Formaður Ástráðs 2006-2007
Penis, vagina, vulva, clitoris, coitus. Þetta eru orð sem
eru flestum okkar töm og við skiljum án nokkurra
vandræða. Þetta eru hinsvegar orð sem enginn annar
skilur eða notar. Þess vegna þykir okkur betra að nota
orð eins og typpi, leggöng, píka, snípur og samfarir (eða
jafnvel bara „að ríða"). En hver erum „við"?? Jú, við erum
Ástráður, forvarnarstarf læknanema, og okkur langar til að
segja aðeins frá starfinu okkar.
Karl Erlingur, Sigurbjörg og Omar
Sigurvin á ráðstefnu NECSE
(Northern European Conference
on Sex Education) í Hollandi í
apríl 2006. Þema kvöldsins var
transvestites (klæðskiptingar).
fyrirlestra. Ef við gerum ráð fyrir að hver fyrirlestur sé 100
mínútur (þar sem 80 mínútur er lágmarkið okkar og margir
lengri) þá jafngildir þetta 17.000 mínútum. Þar sem alltaf
eru tveir fyrirlesarar eru þetta því 34.000 mínútur auk
ferða svo við gerum ráð fyrir að þetta séu um 40.000
mínútur sem fara bara í fyrirlestra. Þetta jafngildir 84
fullum vinnudögum (eða 28 sólarhringum) svo Ijóst er að
þetta er heilmikið starf og myndi aldrei ganga upp, nema
fyrir þær góðu sálir sem leggja sig fram um að gera þetta
að veruleika.
Undanfarin sjö ár hafa læknanemar á vegum Ástráðs séð
um forvarnar- og fræðslustarf í framhaldsskólum landsins.
Ástráðslimir (meðlimir Ástráðs, orðaleikur, hahaha) kenna
æsku landsins meðal annars hvernig eigi að forðast
kynsjúkdóma og ótímabærar þunganir, auk þess sem við
kennum þeim hvað hægt er að gera ef slysin verða. Það
verða jú alltaf slys, bara spurning hvernig á að taka á
þeim. Okkur hefur strax orðið ágengt en klamydíusmitum
og unglingaþungunum hefur fækkað verulega síðan fyrstu
fyrirlestrarnir voru haldnir. En betur má ef duga skal, enda
er draumur Ástráðsliða að ráða bug á klamydíusmitum hér
á landi. Daglega greinast um 10 manns á íslandi með
klamydíu og töluvert fleiri eru einkennalausir og vita ekki
af því að þeir eru smitaðir. Ómeðhöndluð klamydía getur
leitt til ófrjósemi og er í dag ein algengasta ástæða fyrir
ófrjósemi ungra kvenna. Sjúkdómurinn ætti ekki að þurfa
að vera svona stórt vandamál, þar sem hægt er að koma í
veg fyrir smit með því að stunda öruggt kynlíf. Greiningin
er auðveld og meðferðin einnig, í langflestum tilfellum er
nóg að taka tvær sýklalyfjatöflur.
Að baki öllu þessu starfi er heilmikil vinna en öll sú vinna
sem læknanemar leggja á sig, þjálfun, ferðalög og kennsla
er unnin í sjálfboðavinnu. Á síðasta ári fluttum við 170
í forvarnarferð 2005. Ferðin er árlegur viðburður og er ætluð
nýliðum í forvarnarstarfi Ástráðs. Fer þar fram fræðsla og hópefli.
Ástráður er mikilvæg viðbót við menntun læknanema,
með þátttöku öðlast nemendur mikilvæga þjálfun í
samskiptum, hvernig eigi að ræða viðkvæm málefni við
sjúklinga og segja hluti eins og typpi, píka og fleira án þess
að verða vandræðaleg, enda þurfa læknar að geta tjáð sig
afdráttarlaust. Auk þess er frábært að hafa samskipti við
krakkana, þau eru opin og einstaklega áhugasöm. Einnig
er fróðlegt að fá þeirra skoðun á hlutunum, vita hvað er að
gerast út í þjóðfélaginu og hvað fólki finnst eðlilegt og
óeðlilegt í kynlífi á hverjum tíma fyrir sig.
Ástráður leggur áherslu á að fara í fyrstu bekki
framhaldsskóla landsins, þar sem okkar er óskað, og náum
þannig til 95% ungs fólks. Einnig fara Ástráðsliðar í þá
grunnskóla sem þess óska og töluvert í félagsmiðstöðvar,
ásamt því sem þeir kenna á námskeiðum í Háskóla unga
fólksins á sumrin. Þar með teljum við að við náum til um
97-98% af æsku landsins og sumra oftar en einu sinni.
Mikill metnaður er innan Ástráðs, reynt er að fara á
ráðstefnur á vegum samstarfsverkefna N-Evrópuríkja og
Norðurlandanna og mikið er horft til reynslu annarra þjóða
af kynfræðslu. Það sem er næst á döfinni hjá okkur er að
setja á stofn símalínu, þar sem ungt fólk getur hringt inn
með fyrirspurnir um kynlíf og annað því tengt, auk þess
sem okkur langar mikið að fara í stærri verkefni á þessu
sviði, t.d. plakatagerð um hættur á kynsjúkdómasmiturn
við munnmök og fleira.
Hægt er að senda okkur í Ástráði fyrirspurnir á
leyndo@astradur.is en einnig er félagið með heimasíðu
www.astradur.is.
Munið nú að nota smokkinn, lömbin mín!
76 Læknaneminn 2007