Læknaneminn - 01.04.2007, Side 86
sjúklinga sem vilja kæra vel meinandi lækna fyrir eðlilega
fylgikvilla.
Atul Gawande nálgast þessi mál með nýjum hætti. Hann er
skurðlæknir nýlega útskrifaður frá Harvard og hefur varið
talsverðum tíma í að skoða nánar málefni lækna sem lent hafa
í að vera sviptir lækningaleyfi vegna mistaka. í löngum
viðtölum við þessa menn kemur fram að í flestum tilvikum
drekktu þessir menn sér einfaldlega í vinnu þar til þreytan var
orðin svo yfirþyrmandi að þeim var orðið alveg sama um
sjúklingana. Viðtölin eru persónuleg og það skín í gegn að
Gawande hefur raunverulega innsýn í líðan læknanna
fyrrverandi.
Allir læknar geta farið út af sporinu á einhverjum tímapunkti
starfsferilsins og því er gagnlegt að lesa þessar lýsingar til að
meiri líkur séu á því að þekkja einkennin nægilega snemma og
geta brugðist við.
Sigfinnur Þorleifsson - í nærveru
Eini Islendingurinn sem ratar inn í þessa upptalningu er Sig-
finnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur. Fyrir nokkrum árum kom
út bók hans "í nærveru" sem fjallar um sálgæsluna frá ýmsum
sjónarhornum, bæði hvernig öðlast skal styrk til þess að styðja
fólk í erfiðleikum og einnig hvernig sé hægt að styðja og hjálpa
heilbrigðisstarfsfólki. Bókin kemur víða inn á trúmál og er
gagnleg og áhugaverð lesning um efni sem allt of lítið er rætt
um meðal lækna.
Kenneth Purvis - Karlafræðarinn
Vissir þú að til er saga um að á tíundu öld hafi Jóhanna nokk-
ur fyrir mistök verið kosin páfi í Róm? Kaþólska kirkjan var svo
miður sín eftir að þessi mistök komust upp að til þess að koma
í veg fyrir að svona nokkuð gæti endurtekið sig var komið á
þeirri reglu að áður enn nokkur væri valinn páfi yrði hann að
setjast á eins konar klósettsetu og kardinálarnir að sannreyna
með eigin hendi að undir honum væru eistu. Vissir þú að enska
orðið "testemony" er dregið af orðinu "testes" og til komið
vegna þess að í fornöld tíðkaðist það að menn sóru eiða með
hendi á eistum?
Ofangreindar sögur ásamt óteljandi öðrum skemmtilegum
eru í Karlafræðaranum eftir Kenneth Purvis sem Stefán Steins-
son læknir þýddi yfir á okkar ástkæra ylhýra fyrir nokkrum
árum. Purvis þessi er læknir sem starfar við karlsjúkdóma og
skrifaði bókina með skemmtilegri blöndu læknisfræðilegs fróð-
leiks, sagnfræði og eigin skrípamyndum. Nánast allir læknar
eru annað hvort karlmenn eða þá giftir einum slíkum og því
mæli ég eindregið með því að lesa þennan fróðlega og skemmt-
ilega leiðavísi.
Jean-Dominique Bauby - The Diving Bell and the
Butterfly
Jean-Dominique Bauby var aðalritstjóri tískutímaritsins ELLE.
Dag einn verður hann fyrir því einhverju mesta óláni allra ólána
að fá heilablóðfall og læsast inn í líkama sínum í "locked in
syndrome". í því heilkenni er hugsunin algerlega heil en mað-
urinn ófær um að hreyfa nokkuð annað en augun og er því í
raun læstur inn í eigin líkama.
Þrátt fyrir þetta ástand, sem er reyndar ekki svo mjög sjald-
gæft, skrifar maðurinn bókina "The Diving Bell and the Butt-
erfly". Skriftirnar fóru fram þannig að einhver sat og las staf-
rófið upphátt þar til hann blikkaði auga og þannig gat hann
skrifað einn staf. Milli þess sem hann var að "skrifa" varði hann
síðan dögunum í að hugsa út hvað hann ætlaði að segja næst
í bókinni.
Bókin er vel skrifuð, enda Bauby vel ritfær maður fýrir. Hún
er einnig þörf áminning um að fyrst þessi maður gat fundið hjá
sér styrk til þess að halda áfram störfum þá ættu flestir þeir
sem skilgreina sig óvinnufæra að geta komið einhverju í verk.
Kannski minnir hún líka á að öllum er nauðsynlegt að hafa ein-
hver verkefni í lífinu, að hluti þess að "lifa" sé að hafa eitthvað
fyrir stafni. Bókin snart mig og eins og öllum ofangreindum
mæli ég með lestri hennar.
Tracy Kidder - Mountains Beyond Mountains: The
Quest of Dr. Paul Farmer, a Man Who Would Cure
the World
Paul nokkur Farmer ólst upp í stétt hjólhýsahyskis í BNA.
Þökk sé námshæfileika komst hann til mennta og lauk námi í
mannfræði áður hann fór áfram í læknisfræði og svo smitsjúk-
dómalækningar. Farmer fór upphaflega vegna mannfræðir-
annsókna til Haiti og þrátt fyrir að hafa kynnst fátækt og eymd
víða í heimalandi sínu komst hann þar loksins í alvöru vanda-
mál. Án nokkurs hiks hjólaði hann í að leysa málin, nokkuð
sem virtist gjörsamlega ómögulegt, og á því svæði sem hann
starfar hefur nú enginn dáið af berklum áratugum saman, allir
njóta góðrar grunnheilsugæslu og farið er að gera opnar hjart-
aaðgerðir á sjúkrahúsinu. Frá Haiti dregst Farmer síðan inn í
berkla- og alnæmisverkefni í Perú, Rússlandi og víðar auk þess
að vera prófessor á Brighams í Boston hluta úr árinu.
Hugsjónir og eldmóður Farmer, sem sagt er frá í listilega
skrifaðri ævisögu Tracy Kidder, vekja mann verulega til um-
hugsunar um til hvers læknar eru að sinna starfi sínu. Nálgun
Farmer byggist á takmarkalausri umhyggju fyrir skjólstæðing-
um sínum auk þess að ráðast miskunnarlaust á þá blekkingu
að líf fátækra sé mun minna virði að bjarga en ríkra vesturland-
abúa. Reyndar virðist hann ná markmiðum sínum með ára-
tugalangri maníu og ekki eiga sér nokkurt líf fyrir utan vinnuna.
En, þegar upp er staðið er það kannski margfalt betra og meira
gefandi líf en líf flestra.
Ofangreind upptalning áhugaverðra bóka erfjarri því að vera
tæmandi, ég þykist viss um að enn séu óteljandi áhugaverðar
bækur eftir í læknisfræði sem ekki hafa ratað inn í mínar bók-
ahillur og ég á eftir að hafa ánægju af að lesa. Ef þið rekist á
sérlega góðar bækur um læknisfræðina þigg ég gjarna ábend-
ingar, enda er ekkert skemmtilegra en læknisfræði.
8 6 Læknaneminn 2007