Læknaneminn - 01.04.2007, Page 93
þjóðfélagsaðstaðan skánar. Með öðrum orðum virðist ekki
um neitt "mettunarstig" að ræða eins og búast mætti við.
Þetta sést vel í athugun R. Eriksons á dánarorsökum Svía
sem voru 64 ára að aldri árið 1990, en fylgst var með
dánartíðni þeirra eftir menntunargráðu allt til ársins 1996.
Eins og sést á mynd 4 fylgir dánartíðni menntunarstiginu.
Doktorspróf Masterspróf BA próf Stúdentspróf Idnskólapróf Grunnskólapróf
Mynd 4 Hlutfall karla í Svíþjóð sem voru 64 ára 1990 og náðu
ekkl sjötugsaldri (iátnir 1996) (Erikson 1991).
Varla má búast við því að skýringin sé sú, að þeir sem lokið
hafa doktorsprófi geti svo miklu betur tileinkað sér þá
heilbrigðisfræðslu sem í boði er en þeir sem hafa
meistaragráðu eða að þeir sem hafi meistarapróf borði
hollari mat en þeir sem eru einungis með BA gráðu, svo
dæmi sé tekið. Allir þessir hópar ættu að hafa nægilega
greind og aðstöðu til þess að skilja heilbrigðisfræðslu og
tileinka sér hana og þarna er ekki um að ræða fólk sem lifir
við skort. Hér virðist vera eitthvað annað á ferðinni, sem
veldur því að því ofar sem fólk er í þjóðfélagsstiganum
miðað við aðra er heilsufarið hlutfallslega betra. Sami
munur kom fram í rannsókn sem höfundur þessarar greinar
gerði milli heilsufars barna tveggja til 17 ára á Norðurlöndum
og þjóðfélagsstöðu foreldranna7. í töflu 1 er sýnt dæmi úr
þeirri rannsókn, en þar sést sambandið milli ákveðins
mælikvarða á heilsu barnsins annars vegar og menntunar
móðurinnar hins vegar.
OR Cl
Háskóli 1.00
Framhaldsskóli lengri 1.26 (1.01-1.56)
Framhaldsskóli styttri 1.45 (1.19-1.77)
Grunnskóli eða minna 1.71 (1.38-2.13)
Tafla 1 Sambandið milli menntunarstigs móður og heitsufars
barns (í ofangreindu tilviki að barnið kvarti um a.m.k. eitt af
b'lteknum einkennum ekki sjatdnaren aðra hverja viku) í rannsókn
á barnafjöiskyidum á Norðuriöndunum 1996. Odds ratio með
háskólamenntun móður sem viðmið.
Sama mynstur og að ofan er nefnt er þekkt úr dýraríkinu,
t.d. hjá frændum okkar öpunum. Staða viðkomandi apa í
virðingarstiganum í hjörðinni hefur veruleg áhrif á líðan
dýrsins og heilsufar. Sapolsky hefur rannsakað hvernig
virðingarstaða dýrsins endurspeglast í starfsemi
nýrnahettnanna og hefur áhrif á starfsemi kynkirtla,
ónæmis- og hjarta- og æðakerfi og hefur þannig áhrif á
tíðni sjúkdóma og dauða, sem er lægra settum dýrunum í
óhag, þar sem þau búa við stöðuga streitu og ótta8'9.
Streita er, eins og kunnugt er, af misjöfnum toga. Sum
streita örvar til dáða og er okkur nauðsynleg til að leysa
áhugaverð verkefni. Forstjórar og ráðamenn, sem sífellt
þurfa að taka ákvarðanir eru að vísu undir andlegu álagi,
en það kemur í toppum við vissar aðstæður og virðist hafa
síður óæskileg áhrif en stöðugt áreiti hjá þeim sem vinna
einhæf störf, sem þeir hafa lítið um að segja sjálfir.
Dæmigert slíkt starf er vinna við færiband í verksmiðju,
þar sem verkamaðurinn hefur ekkert vald yfir aðstæðunum
og ræður engu um sinn vinnutíma eða hraða og
vinnuumhverfi býður ekki upp á neina tilbreytingu. Fólk
sem finnur að það getur haft áhrif á umhverfi sitt og stöðu,
en er ekki leiksoppur aðstæðna og umhverfis býr að jafnaði
við betra heilsufar. Þá virðist frjótt samband við annað fólk,
t.d. fjölskyldu og vini, og þátttaka í félagsstarfi hafa
verndandi áhrif á heilsu og líðan.
EggiÖ eða hænan ?
Eðlilegt er að sú spurning vakni þegar rætt er um
samband lágrar þjóðfélagsstöðu og heilsuleysis hvort ekki
geti eins verið að fólk lendi í fátækt, menntunarskorti og
atvinnuleysi vegna heilsuleysis og sjúkdóma, en ekki öfugt.
Þversniðsrannsóknir sýna einungis fram á samband, en
segja lítið til um orsök. Þetta var mikið rætt í árdaga
rannsóknanna og var kallað úrvalskenningin (selection
theory). Seinni tíma framvirkar rannsóknir, þar sem hópi
fólks er fylgt eftir í fjölda ára, sýna að þessi þáttur skýri
málin aðeins að litlum hluta. Veigamesta skýringin er sú að
aðstæður valdi heilsutjóni. Sérstaklega á þetta við um
samband menntunarskorts og heilsuleysis. Flest
heilsufarsvandamál koma fram á þeim aldri, þegar fólk
hefur lokið menntun sinni og færist því ekki til hvað
menntunarstig varðar, en algengara er að það flytjist milli
tekjuhópa. En jafnvel í þeim tilvikum skýrir úrvalskenningin
einungis fremur lítinn hluta dæmisins.
Þá ber að geta þess að þversniðsrannsóknir sýna
aðstæður einungis á ákveðnum tímapunkti. Læknanemar
á fyrstu árum námsins geta vafalaust verið auralitlir um
tíma, en ekki er líklegt að það hafi áhrif á heilsufar þeirra,
enda eiga margir þeirra von á feitum embættum og góðum
tekjum (upward mobility). Nú er því lögð meiri áhersla á
áhrif óæskilegra þjóðfélagsaðstæðna um langan tíma og á
mismunandi æviskeiðum (life course perspective)10.
Norskur prófessor í heimilislækningum, Anders Forsdahl,
birti árið 1977 grein sem vakti mikla athygli11, en í henni
sýndi hann fram á mikinn breytileika á dánartíðni fólks,
Læknaneminn 2007 93