Læknaneminn - 01.04.2007, Síða 95

Læknaneminn - 01.04.2007, Síða 95
i/'r gagnvart dauðanum? eru16. Niðurstaða þeirra var sú að bilið væri breiðara varðandi þá sjúkdóma þar sem meðferð skipti miklu máli (conditions amenable to treatment), en að það skýrði þó aðeins lítinn hluta þessa munar. Aðrar rannsóknir hafa sýnt að þótt formlegt aðgengi að þjónustunni sé svipað, sé árangur meðferðar oft betri hjá betur settum þjóðfélagshópum, bæði vegna þess að þeir geti betur tileinkað sér meðferðina, en líka hitt að læknar gefa þeim gjarnan meiri gaum og meiri tíma meðan á meðferðinni stendur. Mikilvægi málsins Woodward og Kawachi draga mikilvægi þess að berjast gegn þjóðfélagslegum mun á heilsufari saman í fjóra meginþætti17. Mynd 6 Líkan Marmots um samspil þeirra félagsþátta sem hafa áhrif á heilsu fólks. LokaorÖ 1. Þjóðfélagslegur munur á heilsufari er tegund af misrétti og er siðferðilega ranglátt fyrirbæri, þegar munurinn er afleiðing af ójöfnum tækifærum til gæða eins og menntunar eða atvinnu. 2. Fyrirbæri sem algengari eru meðal lægri þjóðfélagsstétta,svosemfíkniefnaneyslaeðaáhættuhegðun eins og hraðakstur, sem hvoru tveggja getur leitt til alvarlegs heilsubrests þessara þjóðfélagsþegna, snerta í raun alla þegna þjóðfélagsins. 3. Það er hægt að bæta þar með heilsufar landsmanna í heild með aðgerðum stjórnvalda, sem áður hafa verið nefndar og bæta hag þeirra verr settu, svo sem með skattaákvörðunum, atvinnumálastefnu, sjúkrabótum, aðgengi að heilbrigðisþjónustu og sértækum aðgerðum fyrir þá sem mest þurfa á því að halda, svo eitthvað sé nefnt. 4. Rannsóknir á sviði kostnaðar og nytjagreiningar sýna að sumar lýðheilsuaðgerðir hins opinbera sem bæta hag lægri þjóðfélagsstétta eru beinlínis hagfræðilega arðbærar. Það verður að hætta að einblína á þann kostnað sem slíkar aðgerðir hafa í för með sér, en líta jafnframt á ávinninginn. Af ofangreindu ætti að vera Ijóst að mismunur á heilsufari eftir búsetu eða annarri aðstöðu fólks í þjóðfélaginu er mikill og þar er verk að vinna, sem skiptir miklu. Sjaldgæft er að óheilsa stafi einungis af líffræðilegum erfðaþáttum, sem þýðir í raun að úr heilsufarsmuni má draga verulega með samfélagslegum aðgerðum og að svo beri að gera í siðmenntuðu þjóðfélagi. Eðlilegt er að spurt sé um tillögur til lausnar á þessum málum. Þær liggja ekki á lausu, enda er Ijóst að um flókið samspil erfða, umhverfis, líffræðilegra þátta, áhættuþátta og aðbúnaðar er að ræða, eins og sjá má af líkani Michaels Marmots á mynd 6 1S. Ýmsar þjóðir leggja mikla vinnu og metnað í að finna lausn á þessum málum og eru Bretar, Svíar, Finnar og Flollendingar þar í fararbroddi. Þeir láta sér ekki nægja að setja sér einhver markmið, eins og gert er í íslenskri heilbrigðisáætlun, heldur er markvisst unnið að því að finna lausnir til þess að ná þessum markmiðum. í sumum þessara landa er m.a. farið að gera svokallað "Health Impact Assessment" þegar ný lög eru sett, en í því felst að metið er hvaða áhrif ný lagasetning, á hvaða sviði sem er, hefur á heilsufar landsmanna og hvort lagasetningin sé líkleg til þess að auka bilið milli þjóðfélagshópa hvað heilsufar snertir. Gott yfirlit um aðgerðir til að minnka ójöfnuð í heilsu er að finna nýlegri bók prófessors Mackenbachs19, sem ásamt títtnefndum prófessor Michael Marmot hefur verið einn helsti frumkvöðull þessara mála í Evrópu, en prófessor Marmot er nú forystumaður í nefnd Alþjóða heilbrigðismála- stofnunarinnar, sem ætlar sér mikla hluti í þessum efnum (Commission on Social Determinants of Health) á alþjóðavísu. Nefndin hóf störf í mars 2005 og mun Ijúka Kennari höfundar, prófessor Michael Marmot, á hjólinu sínu sínu í Camden í Lundúnaborg. Við það að hjóla í 30 mínútur frá Hampstead i norðurhluta Camden til University College í suður fer hann frá svæði þar sem lífslíkur eru 81 ár hjá körium í borgarhluta þar sem lífslíkur eru 11 árum skemmri eða 70 ár. í Glasgow, svo annað dæmi sé tekið var munurinn um 7 ár fyrir tveimur áratugum, en er nú 12 ár. í Washington eru ævilíkur blökkumanna í fátækrahverfunum 57 ár, en 77 ár í ríkari hverfum hvítra. Og frá fyrirmyndarlandinu Svíþjóð berast þær fréttir að í Gautaborg myndi ungbarnadauði helmingast ef öll hverfi hefðu sömu dánartölu og besta hverfið. Læknaneminn 2007 95
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.