Læknaneminn - 01.04.2007, Síða 101
Heilsutenqd þjónusta qræðara oq fleiri aðila
afstaða til áreiðanleika fullyrðinga um það hvernig tiltekin
meðferðarúrræði virki. Heimildir voru mikið sóttar á
veraldarvefinn. Oft má efast um áreiðanleika þeirra
upplýsinga sem þar finnast en við ritun greinarinnar var
eftir fremsta megni leitað að sem áreiðanlegustum
heimildum og niðurstöðum rannsókna á meðferðunum. Sú
leit skilaði þó ekki alltaf árangri. Líklegt má telja að þeir
einstaklingar, sem leita sér aðstoðar utan heilbrigðis-
kerfisins, fái mikið af sinni vitneskju á veraldarvefnum.
Græðarar á íslandi og staða þeirra
Bandalag íslenskra græðara var stofnað í lok ársins 2000
og eiga nú níu fagfélög aðild að því. í siðareglum
þandalagsins segir að græðari skuli „aðeins nota
viðurkenndar aðferðir og tækni sem eru út frá fræðum,
heimspeki, menntun og starfsreynslu sem hver græðari
hefur menntun til. Græðara ber skylda til að vísa
skjólstæðingum til annara meðhöndlara, læknis/spítala
henti það betur. Græðari gefurengin loforð um lækningu."2
Bandalag íslenskra græðara heldur utan um frjálst
skráningarkerfi fyrir græðara en ákvörðun um hvort
fagfélag fái aðild að skráningarkerfinu er í höndum
heilbrigðisráðherra sem hann tekur að fenginni umsögn
landlæknis og Bandalags íslenskra græðara. í lögum
félagsins kemur m.a. fram að til að nýtt félag öðlist aðild
að bandalaginu þurfi menntun félagsmanna að lágmarki
að vera 660 kennslustundir, þar af þurfi 6 einingar í líffæra-
og lífeðlisfræði og 5 einingar í sjúkdómafræði á
framhaldsskólastigi. Eftirtalin félög eiga aðild að Bandalagi
íslenskra græðara:
• Aromatherapyfélag íslands (ATFÍ)
• Fagfélag hómópata (Organon)
• Félag höfuðbeina- og spjaldhryggjar meðferðaraðila
(CSFÍ)
• Félag höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnara (Cranio)
• Félag íslenskra heilsunuddara (FÍHN)
• Félag lithimnufræðinga (FL)
• Samband svæða- og viðbragðsfræðinga á íslandi
(SSOVÍ)
• Shiatsufélag íslands
• Svæðameðferðafélag íslands (SMFÍ)
í íslenskum lögum um græðara segir að skráðum
græðurum sé skylt að hafa gilda ábyrgðartryggingu hjá
vátryggingafélagi sem hefur starfsleyfi hér á landi, þ.e.
félagi sem veitir tryggingu vegna tjóns sem leitt getur af
gáleysi ístörfum þeirra. Græðarareru bundnirþagnarskyldu.
Ef sjúklingur óskar eftir að meðferð alvarlegs sjúkdóms sé
í höndum græðara verður það að vera að höfðu samráði
við lækni. Græðurum er óheimilt að ráðieggja fólki að
hætta lyfjameðferð eða annarri meðferð sem það hefur
hafið hjá löggiltu heilbrigðisstarfsfólki. Heilbrigðisstofnun
er heimilt að koma til móts við óskir sjúklinga sem vilja
nýta sér heilsutengda þjónustu græðara sé það í samræmi
við stefnu stofnunarinnar. Lögin má sjá í heild sinni á
heimasíðu Alþingis.3
Ilmolíumeðferð (aromatherapy)
Ilmolíur (essential oils) eru unnar úr
plöntum á margskonar hátt2 og komið
inn í líkamann með innöndun, inntöku
um munn eða áburði á húð. Verkunarmáti
ilmolía er ekki þekktur í raun en margs
konar tilgátur hafa verið settar fram, m.a. um að áhrif
olíanna geti tengst lyfleysuhrifum, áhrifum snertingar og
lyktar á parasympatíska (utansemju) taugakerfið,
sálfræðilegum áhrifum eða lyfjafræðilegum áhrifum.4
Tilgangur olíumeðferðar getur verið slökun eða örvun,
verkjastilling, kvíðastilling, bættur svefn, örvun
ónæmiskerfisins, bakteríudrepandi áhrif eða áhrif til að
draga úr þunglyndi.5 í skýrslu heilbrigðisráðherra um
græðara og starfsemi þeirra á íslandi segir: „Þrátt fyrir að
líffræðileg áhrif ilmolía séu þekkt liggja ekki fyrir nægileg
gögn til þess að greina á milli virkni ilmolíanna sem slíkra
og virkni nuddsins sem er hluti af meðferðinni og
lyktaráhrifa."1 Mikilvægt er að áður en meðferð hefjist sé
kannað hvort einstaklingur hafi ofnæmi og hvort þekktar
aukaverkanir geti verið slæmar fyrir einstaklinginn. Ekki er
mælt með ilmolíumeðferð á fyrstu 24 vikum meðgöngu.5
Ilmolíumeðferð er kennd í Lífsskólanum en er einnig hluti
af námsskrá snyrtibrautar fjölbrautaskóla Breiðholts og
snyrtiskóla Kópavogs. Námið er tvö ár. Auk 660 fagtíma
þurfa nemendur að hafa lokið tveim önnum í líffæra- og
lífeðlisfræði, sjúkdómafræði, fyrstu hjálp og heilsufræði í
framhaldsskóla. Einn ilmolíufræðingur starfar á Landspítala
háskólasjúkrahúsi.6
Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð
(craniosacral tnerapy)
Því hefur verið haldið fram að höfuðbeina- og
spjaldhryggjarmeðferð byggi á því að sitji spjaldbeinið ekki
rétt í mjaðmagrindinni, liggi höfuðið ekki rétt á liðflötum
efsta hálsliðar, ef hindrun verði á hreyfingu höfuðkúpubeina
eða sé einhver hindrun til staðar í „himnukerfi líkamans"
megi búast við röngu álagi á heila- og mænuhimnurnar og
hindrun verði á hreyfingu mænuvökva. Þetta geti valdið
áreiti á taugar og slíkt áreiti geti valdið einkennum hvar
sem er í líkamanum.2
Á heimasíðu CranioSacral félags íslands
(www.craniosacral.is) segir að í meðferðinni greini
meðferðaraðilinn hreyfingu í mænuvökvanum, finni hvar
hindrun er á þessari hreyfingu og leiti eftir staðbundinni
spennu í bandvef. Meðferðin felist í að losa um spennuna í
bandvefnum og að liðka fyrir hreyfingu höfuðbeina og
spjaldbeins. Notaður sé léttur þrýstingur eða tog til að
Læknaneminn 2007 1 01