Læknaneminn - 01.04.2007, Page 102
Heilsutengd þjónusta græðara og fleiri aðila
meta og meðhöndla himnurnar sem umlykja
miðtaugakerfið.7 Meðferðin er sögð vera árangursrík við
bakverkjum, þunglyndi, ofvirkni, svefnleysi, mígreni,
taugaverkjum, sjóntruflunum o.fl.8 en ekki hefur verið sýnt
fram á virkni meðferðarinnar með áreiðanlegum
rannsóknum.1'9
Meðferðin er kennd hérlendis við Upledger stofnunina og
einnig er á íslandi starfrækt útibú frá breskum skóla (The
College of Cranio-Sacral Therapy í London). Ætlast er til að
nemendur Ijúki áföngum í heilbrigðisfræði, líffæra- og
lífeðlisfræði, líffræði, sálfræði, sjúkdómafræði o.fl. í
framhaldsskóla.
Vefræn tilfinningalosun (socioemotional release)
Sagt er frá þessu meðferðarformi á heimasíðu
CranioSacral félags íslands sem aðferð til að „aðstoða
líkamann við að losa um vefrænar afleiðingar af áföllum og
neikvæðar tilfinningar sem þeim tengjast"7. Þetta er
samspil höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðar og
samtalstækni. Kenningin á bak við þessa meðferð er sú að
þegar einstaklingur verði fyrir áfalli geymi líkaminn orku
(vegna reiði, hræðslu eða annarra tilfinninga) og myndist
þá svokallað orkumein.
Heilsunudd
Nudd er aldagömul meðferð þar sem handafl er notað til
að beita þrýstingi, hreyfingu eða titringi á mjúkvefi
líkamans. Tilgangurinn er að fá fram slökun, hita og aukið
súrefnisframboð til mjúkvefja og minnka verki. Til eru yfir
80 mismunandi gerðir af nuddi. í bandarískri rannsókn
kom fram að einstaklingar nota nudd í margs konartilgangi,
m.a. til að minnka verki, til endurhæfingar eftir
íþróttameiðsli, til að losa um streitu og auka slökun, til að
minnka kvíða og þunglyndi og til að auka almenna
vellíðan.10
Ýmsar kenningar eru uppi um hvaða áhrif nuddmeðferð
hefur á líkamann, m.a. um að nudd hindri miðlun
sársaukaboða til heila („gate control" kenningin), minnki
sympatiska (semju-) taugavirkni en auki parasympatiska
taugavirkni, auki losun serotonins og/eða endorphina í
líkamanum, hindri trefjamyndun (fibrosis) og auki flæði
sogæðavökva.10
í Fjölbrautarskólanum við Ármúla er rekin námsbraut
fyrir nuddara í samvinnu við Félag íslenskra heilsunuddara
og Nuddskóla íslands. Nemendur fá kennslu um starfsemi
líkamans, t.d. vöðvafræði, lífeðlisfræði, heilbrigðisfræði og
sjúkdómafræði, ásamt þjálfun í hefðbundnu klassísku
nuddi og meðhöndlunaraðferðum sem byggja á punktum
eða orkubrautum. Til að fá viðurkenningu sem nuddari
verða nemar að starfa við nudd í tæpa 1.000 tíma.
Lithimnufræði (iridology)
Lithimnugreining er mynd sem dregin er upp
af mynstrinu í lithimnu augnanna. Iðkendur
þessara fræða segja að með lithimnugreiningu
megi greina ástand líffæra, uppsöfnun eiturefna
og slíms, arfgenga veikleika, sýrustig líkamans,
bólgumyndanir, van- eða ofvirkni kirtla, ástæðursjúkdóma,
tilvist sýkinga o.m.fl. Til greiningarinnar eru notuð
stækkunargler eða raufarlampar til að skoða lithimnuna
sem síðan er borin saman við lithimnukort. Á kortunum
hefur lithimnunni verið skipt niður í 80-90 svæði eftir því
hvaða líkamshluta viðkomandi hluti lithimnunnar er talinn
túlka. Lithimnugreining er ekki sögð lækning heldur sagt
að lithimnufræðingur geti í kjölfar greiningarinnar ráðlagt
um mataræði og lífsstíl til heilsueflingar og til að fyrirbyggja
sjúkdóma.2'11 Lithimnufræðingar eru sumir sjálfmenntaðir
en einnig er boðið upp á námskeið í fræðunum. í skýrslu
nefndar á vegum bresku lávarðadeildarinnar (Select
Committee on Science and Technology) frá árinu 1999 er
lithimnufræði flokkuð með meðferðum sem ekki byggi á
sannfærandi þekkingargrunni.1
Smáskamm talækningar (homeopa thy)
Smáskammtalækningar byggja á þeirri
kenningu að líkaminn sé í eðli sínu fær um að
lækna sig sjálfur með eigin lífskrafti. Lendi
orkukerfi líkamans í ójafnvægi fari sjúkdómar
að hrjá hann. Markmið smáskammtalækninga er að hvetja
líkamann til að lækna sig sjálfur. Þessu markmiði er náð
með því að meðhöndla ójafnvægið með smáskömmtum af
því sem í stærri skömmtum myndi valda þeim einkennum
sem ætlunin er að ráða bót á.12 Á heimasíðu Organon,
fagfélags hómópata, segir að helsti kostur hómópatíunnar
felist í forvörnum því með hómópatíu sé unnt að greina
veikleika sem komið gætu fram síðar. Einnig sé hægt að
stuðla að betri líðan þótt einkenni séu ekki vel skilgreind
eða falli ekki undir tiltekinn sjúkdóm. Meðferðin sé
persónubundin og því líklegt að einstaklingar með sömu
sjúkdómsgreiningu fái mismunandi meðferð.13
Byrjað er á að fara yfir líkamleg, andleg og tilfinningaleg
einkenni og í kjölfarið valin sú meðferð sem talin er henta.
Til meðferðar eru notaðar svonefndar remedíur sem eru
unnar úr jurta-, dýra- og steinaríkinu. Efnin eru þynnt í
mörgum skrefum en sú vinnsluaðferð sem notuð er er
sögð viðhalda lækningarmætti efnisins sama hve mikil
þynningin sé. Remedíur fást í vökvaformi og sem töflur.14 Á
heimasíðu Organon segir: „Remedíurnar eru með öllu
skaðlausar og valda ekki aukaverkunum''.13
Rannsóknir á smáskammtalækningum hafa gefið
misvísandi niðurstöður. Sumar hafa sýnt fram á jákvæð
áhrif þeirra en áhrifin hafa ekki verið útskýrð vísindalega.
Niðurstöður annarra rannsókna hafa verið þær að ekki séu
7 02 Læknaneminn 2007