Læknaneminn - 01.04.2007, Page 106

Læknaneminn - 01.04.2007, Page 106
Heilsutenqd þjónusta græðara og fleiri aðila BlómadroparáÖgjöf (flower essence therapy) Blómadropar eru ýmis konar efni sem unnin eru úr þykkni blóma og jurta sem hefur verið mikið þynnt til að auka áhrifamátt efnisins. í fyrstu munu vandamál einstaklingsins vera greind og á þeim grundvelli fundið út hvaða blómadropar henti til að styrkja viðkomandi. Tilgangurinn á ekki að vera að lækna sjúkdóma beint heldur eiga droparnir að styrkja tilfinningalegt og andlegt jafnvægi einstaklingsins.48 Heilun (healing) Hugmyndin að baki heilun er sú að manneskjur séu rafsegulfræðilegar verur og þ.a.l. séu aðferðir til að hafa áhrif á þá orku besta leiðin til lækninga.49 Hver einstaklingur eigi sér orkulíkama, eða árur, og ójafnvægi í orkuflæði líkamans geti valdið ýmsum kvillum. Heilari notar hendur sínar til að hafa áhrif á orkusvæði líkamans, veita orku, losa um stíflur og koma á jafnvægi. í skýrslu heilbrigðisráðherra um græðara og starfsemi þeirra á íslandi segir: „Heilun kann að virka en ekki er Ijóst hvernig."1 Reiki Margar ólíkar aðferðir falla undir hugtakið heilun og reiki er ein af þeim. Með reiki er átt við orkulækningar sem felast í því að meðferðaraðilinn leggur hendur sínar á eða við þann sem til hans leitar með það að markmiði að flytja til hans lífsorku (eða ki), losa um orkustíflur og minnka neikvæða orku umhverfis hann. Notaðar eru 12-15 mismunandi handarstellingar og er hverri þeirra haldið í 2-5 mínútureða þartil meðferðaraðilanum finnstorkuflæðið í þeirri stellingu vera minnkað. Aðferðin er notuð til meðhöndlunar á streitu, krónískum verkjum og aukaverkunum lyfja- og geislameðferðar krabbameina en einnig til að hægja á hjartslætti, efla ónæmiskerfið og auka vellíðan. Nám í reiki skiptist í 3-4 skref sem hvert tekur 1- 2 daga.50 Vöðva- og hreyfifræði (kinesiology) Vöðva- og hreyfifræði er meðferðarform þar sem vöðvapróf er notað til að greina ójafnvægi á orkuflæði líkamans og athuga styrk einstakra vöðva með tilliti til orkuflæðis. Með nuddi eða þrýstingi fingurgóma á ákveðin svæði líkamans er leitast við að jafna orkuflæðið. Rætt er um 14 orkubrautir líkamans og að hverri orkubraut tengist vissir vöðvar og líffæri. Meðferðin á að miða að því að koma jafnvægi á þau orkukerfi líkamans sem hafi áhrif á líkamann, komi í veg fyrir sjúkdóma og bæti andlega líðan.1'51 Greinin er m.a. kennd sem áfangi í Nuddskóla íslands. í skýrslu heilbrigðisráðherra um græðara og starfsemi þeirra á íslandi segir um kinesiologiu: „Ekki liggja fyrir nægjanleg gögn til þess að segja til um virkni."1 Ayurveda læknisfræði (ayurvedic medicine) Markmið ayurveda læknisfræði er að samþætta líkama, huga og anda og koma á jafnvægi í þeim tilgangi að varna sjúk- dómum og auka vellíðan. Kenning ayurveda læknisfræðinnar er sú að allir hlutir í alheiminum, lifandi og ekki lifandi, tengist - og að heilsutengd vandamál komi fram þegar samband þeirra á milli riðlist. Þetta geti gerst við líkamlegar, andlegar og hug- rænar truflanir. Slíkt ójafnvægi veiki líkamann og geri hann viðkvæmari fyrir sjúkdómum. Jurtir, olíur, krydd, málmar, nudd og aðrar vörur og tækni eru notuð til að hreinsa líkamann og koma á jafnvægi. Oft eru gerðar breytingar á mataræði og lífsstíl.52 í skýrslu heilbrigðisráðherra um græðara og starfsemi þeirra á íslandi segir: „Ayurveda læknisfræði felur í sér meðferð sem kann að hafa gagnlega virkni en skilning á hvað í meðferðinni virkar skortir."1 Pólunarmeðferð (polarity therapy) Pólunarmeðferð byggir á hugmyndum um orku líkam- ans, mataræði, hreyfingu og sjálfsvitund. Meðferðin bein- ist að rafsegulsviði líkamans sem er talið stýra heilsu ein- staklingsins. Ýmsir þættir geti haft áhrif á rafsegulsvið líkamans, m.a. snerting, mataræði, hreyfing, hljóð, við- mót, sambönd, lífsreynsla, slys og umhverfisþættir. Sagt er að meðfram mænunni liggi fimm orkustöðvar sem kall- ast chakra. Þær stýri líkamlegri og andlegri virkni og nefn- ist jörð, vatn, eldur, loft og Ijós. Næmur meðferðaraðili geti þreifað orkuflæðið og gert það eðlilegt á ný. Þannig munj heilsa einstaklingsins batna og hreysti hans á allan hátt. I meðferðinni er léttri eða þéttri snertingu beitt með fingrum. Einstaklingurinn er hvattur til aukinnar sjálfsvit- undar m.t.t. orkuskynjunar sem er oft lýst sem sviða, hita, þenslu og bylgjulíkum hreyfingum. Með þessu á meðferðin að stuðla að djúpri slökun og líkamlegri kyrrð.53-54 Líföndun (vivation) Líföndun er sérstök öndunartækni sem hefur það markmið að losa um spennu og stíflur í líkamanum og fylla hann af endurnýjuðum krafti. Öndunartæknin á að kenna fólki að anda óhikað og þannig auka hæfileika þess til að njóta lífsins.55 Meðferðin á að gagnast til að minnka streitu, leysa persónuleg vandamál, takast á við sorg og þunglyndi, bæta samskipti við aðra, þroska andlega viðleitni, losa fólk við fíkn, auka sjálfstraust og aðstoða fólk við að ná markmiðum sínum. 7 06 Læknaneminn 2007
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.