Læknaneminn - 01.04.2007, Side 107
Heitsutenqd þjónusta græðara og fleiri aðila
NLP ráðgjöf (neuro linguistic programming)
NLP byggir á þeirri hugmynd að tungumál og öll hegðun
sé lærð og hafi ákveðið mynstur sem megi vinna með,
breyta og virkja einstaklingnum í hag. Þetta geti haft áhrif
á þá sem umgangist viðkomandi.56 Hugmyndin er að með
skynfærum skynji menn aðeins hluta af heiminum. Það
fari fram viss síun vegna fyrri reynslu, trúar, skoðana, gilda
og þeirra forsendna sem menn gefi sér. Það hvernig hver
einstaklingur skynji heiminn sé eitthvað sem megi breyta
til hins betra. Meðaðferðinni megi vinna meðundirmeðvitund
og mannlega hegðun. Reynt er að finna og virkja
ómeðvitaða hæfileika hjá einstaklingum sem nýta megi á
jákvæðan hátt. Hugsunum er beint í jákvæðan farveg og
einstaklingnum hjálpað við að ná fram sínum vonum og
væntingum.
Rolfing
Rolfing er bandvefsmeðferð sem felst í djúpnuddi vöðva
og tengivefja. Upphafsmaður fræðanna Ida Pauline Rolf
taldi að bandvefsreifar (e. fascia) gætu hindrað
gagnverkandi (e. opposing) vöðva í að starfa sjálfstætt.
Meðferðin felst í djúpu nuddi sem á að aðskilja
bandvefsreifarnar.57 Tilgangurinn er að losa um
tilfinningalega og líkamlega spennu, skapa samhæfingu
allra líkamshluta og samstilla hreyfiferla líkamans.1 Nám í
Rolfing tekur um 2 ár en áður þarf nemandi að hafa lokið
námskeiðum í líffæra- og lífeðlisfræði úr framhaldsskóla.
Árugreining (aura therapy)
Þessi fræði eru yfir 5000 ára gömul og byggjast á því að
lesa í árur einstaklinga. Árur eru taldar vera verndandi
orkusvið sem stöðugt séu á hreyfingu. Orkan sjáist sem
einn eða fleiri litir. Hver liturtákni ákveðna líðan og litirnir
gefi þannig til kynna andlega og líkamlega líðan. Til dæmis
merki rauður litur reiði og bleikur litur merki ást. Litirnir
eða skörð sem myndist í árunni eigi að geta gefið vísbend-
ingar um sjúkdóma sem hrjái einstaklinginn og birtist oftast
nálægt þeim líkamshluta sem sjúkdómurinn sé í. Árumeð-
ferðum er ætlað að stýra orku árunnar í átt að jákvæðu
líkamlegu, andlegu, tilfinningalegu og hugrænu jafnvægi.
Áhrifin geti verið allt frá almennri vellíðan upp í algleymi og
alsælu. Til að árumeðferð beri árangur verði einstaklingur
sjálfur að þrá betri heilsu og hamingju. Meðferðin er helst
notuð til að lina verki, stuðla að bata og minnka streitu.58
Kristallaheilun (crystal healing)
Meðferðin byggist á því að hver lífvera hafi
sveiflukennt orkukerfi sem innihaldi chakra
sem sé rafsegulsvið kringum líkamann. Með
því að nota rétta kristalla sé hægt að stilla
orkukerfið og auka vellíðan. Kristallarnir valdi titringi sem
sé einstakur fyrir hvern kristal og sé háður lit, efnasam-
setningu, atómbyggingu og lögun kristalsins. Kristallana
megi nota til að hreyfa, gleypa, skerpa, beina og dreifa
orku innan líkamans.53
Innhverf íhugun (transcendental meditation)
Með innhverfri íhugun er átt við hugleiðslutækni sem er
upprunnin á Indlandi og miði að því að losa hugann undan
venjulegum hugsunum um stundarsakir og komi á
hugarró.59 Sagt er að hugleiðslan leiði hugann inn að eigin
kjarna, veki hann til vitundar um óbundið eðli sitt og
óendanlega möguleika sína. Hún geri huganum kleift að
nýta getu sína til ótakmarkaðrar vitundar og skilja til hlítar
allar hliðar sinnar tilvistar. Tæknina stundar einstaklingur
daglega í 15-20 mínútur.60 í skýrslu heilbrigðisráðherra um
græðara og starfsemi þeirra á íslandi segir: „Innhverf
íhugun hefurlíklega virkni til slökunarog gæti haftgagnlega
virkni í meðferð gegn fíkn."1 Á slóðinni www.kirkjan.net er
fjallað um innhverfa íhugun. Þar segir: „Hefur hreyfingin
verið gagnrýnd fyrir að aðferðir hennar svipti menn
sjálfræðinu og að hún blekki fólk til að halda að þær séu
vísindalegar, þegar þær í raun byggja á trúarlegum,
hindúiskum, grunni."61
Huglækningar (mental healing)
Huglækningar byggja á áhrifum hugans á líkamann. Að
baki býr sú hugmynd að fólk hafi fastmótaðar hugmyndir
sem geti gert það veikt eða í það minnsta berskjaldað fyrir
sjúkdómum. Sagt er að huglæknar geti fjarlægt djúpstæða
reiði, losað um ótjáðar tilfinningar, linað ótta og þannig
byggt upp sjálfstraust og eflt jákvæðni og bjartsýni. Þetta
geri þeir með því að kenna fólki uppbyggjandi hugsanir og
öðga ímyndunarafl þess.62
Blóðflokkafæði (blood type diet)
Hugmyndin sem liggur að baki þessum fræðum er að
blóðflokkur hvers og eins sé mikilvægasti áhrifavaldur á
það hvaða mataræði henti hverjum einstaklingi.
Upphafsmaður fræðanna er Peter D'Adamo sem lagði fram
þá kenningu að lektín í fæðu gætu haft áhrif á mótefnavaka
á rauðum blóðkornum og valdið kekkjun (e. agglutination)
í blóði. Peter taldi að ef einstaklingur neytti fæðu sem
innihaldi lektín sem ekki samrýmist hans blóðflokki gæti
lektínið valdið samloðun fruma og í kjölfarið truflun á
meltingu, efnaskiptum og ónæmiskerfi. Þannig væri sumt
fæði beinlínis skaðlegt fólki í vissum blóðflokkum en annað
mjög gott fyrir það.53'63 Seldir eru blóðprufupakkar, ætlaðir
til heimanota, sem einstaklingar geti notað til að finna út
hvaða blóðflokki (ABO) þeir tilheyra. í þessum fræðum
er lagt til að einstaklingar fari yfir ákveðinn lista
Læknaneminn 2007 1 07