Læknaneminn - 01.04.2007, Síða 108
Heilsutengd þjónusta qræðara oq fleiri aðila
sjúkdómseinkenna og haki við þau einkenni sem þeir hafa
fundið fyrir. Listinn er aðgengilegur á heimasíðunni
www.blodflokkar.is. Niðurstöður þessarar könnunar eiga
að segja til um hvort viðkomandi þurfi að huga að breyttu
mataræði og hvaða bætiefni, aðlögunarefni og plöntuefni
hann muni hafa gott af að innbyrða.64 Það hefur ekki verið
sýnt fram á með rannsóknum að lektín í fæðu geti valdið
samloðun rauðra blóðkorna in vivo né hefur verið sýnt
fram á árangur sértæks blóðflokkafæðis með
rannsóknum.65
Samkvæmt hugmyndum D'Adamo er fólk ýmist seytarar
(e. secretors) (80%) eða ekki-seytarar (20%). Þar á hann
við að sumt fólk sé fært um að seyta mótefnavaka
blóðflokks í líkamsvökva sinn en þessi mótefnavaki sé
lykillinn að ónæmisvörnum líkamans. Almennt séu ekki-
seytar líklegri til að hafa ónæmissjúkdóma en seytar og
einnig fái þeir frekar sykursýki og vefjagigt. Seld eru
munnvatnspróf sem eiga að greina hvort einstaklingar séu
seytar eða ekki-seytar.
Bioresonance therapy
Meðferð þessi byggir á þeirri kenningu að öll stærstu
líffæri líkamans eigi sér sínar eigin orkubrautir í líkamanum
sem tengist saman í höfði, höndum og fótum. Á þessum
stöðum sé líkaminn tengdur íeina heild og um orkubrautirnar
eigi orkan að geta flætt óhindrað um allan líkamann. Ef
einkenni komi fram í einu líffæri líkamans geti orsökin legið
í öðru líffæri líkamans, jafnvel líffæri sem staðsett sé allt
annars staðar í líkamanum, því orkubrautirnar séu
samtengdar.66
Notað er sérstakt greiningartæki. Það er þannig úr garði
gert að á því eru rafskaut sem komið er fyrir á húð manns.
Þau geti numið ójafnvægi í orkuflæði líkama hans. Skautin
eru tengd við tölvu og hún á að túlka þau merki sem henni
berist frá rafskautunum. Út frá því eigi meðferðaraðilinn að
geta séð líkamlega og andlega heilsu viðkomandi. Meðal
þess sem tækið á að greina eru vítamínskortur, streita,
nýrnahettuvirkni, hormónaóregla og ónæmiskerfis-
sjúkdómar. Með sama tæki á síðan að vera hægt að veita
meðferð. Þá mun græðandi sveiflukenndur straumur vera
sendur um rafskautin inn í líkama sjúklingsins. Sagt er að
með þessu megi meðhöndla ofnæmi, svefnvandamál,
króníska verki, streitu og hormónatruflanir.53
AfeitrunarmataræÖi (detox diet)
Hugmyndin um afeitrunarmataræði lítur að því að ýmsar
gerðir matar og drykkjar innihaldi skaðleg efni sem safnist
upp í líkamanum og valdi vanlíðan. Meðferðin felur í sér
breytingará neysluvenjum með það að markmiði að afeitra
líkamann með því að fjarlægja úr honum slík eiturefni. Á
það að bæta heilsu, auka orku, efla viðnám gegn
sjúkdómum, bæta andlega líðan, örva meltingu og aðstoða
við þyngdartap.53 Sem dæmi um sjúkdóma sem mataræðið
á að geta unnið á eru ofnæmi, kvíði, lungnasjúkdómar,
gigt, háþrýstingur og krabbamein.67
Til eru margar gerðir af afeitrunarmataræði en venjulega
er fæðið takmarkað við hrátt grænmeti, ávexti, vatn og
jógúrt. Öllu kjöti er sleppt sem og áfengi og örvandi
drykkjum eins og kaffi. Mismunandi er hve lengi
einstaklingur er talinn þurfa að vera á þessu mataræði en
oftast er það talið þurfa að vara í 1-2 vikur. Til viðbótar er
fastað í vikutíma. Lítill vísindalegur efniviður er til um
meðferð af þessu tagi.68 Boðið er upp á ferðir frá íslandi til
Póllands á heilsuhótel þar sem afeitrunarmataræðið er
stundað.67'69
Lokaorð
Hér að framan hefur verið stiklað á stóru um heilsutengda
þjónustu græðara og ýmsar aðrar óhefðbundnar meðferðir
sem ekki er víst að falli þar undir. Ljóst er að margt er í
boði fyrir þá einstaklinga sem kjósa að leita út fyrir hið
hefðbundna heilbrigðiskerfi. Þó ber að hafa í huga að
margar þessara aðferða eru byggðar á svipuðum grunni.
Mikilvægt er fyrir lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk að
þekkja til þessara úrræða, kynna sér þær rannsóknir sem
liggja fyrir um virkni þeirra og hvort og þá hvernig þau geti
haft áhrif á þá hefðbundnu meðferð sem sjúklingur fær.
Svo virðist sem margt sé óljóst um áhrifamátt þeirra
óhefðbundnu meðferðarúrræða sem eru á boðstólum enda
þótt mörg þyki hafa sýnt fram á gagnsemi sína. Á móti
kemur að ætla má að aukaverkanir séu að öllum líkindum
vanskráðar. Líklegt er að á næstu árum muni margt skýrast
í þessum efnum enda fjölmargar rannsóknir í vinnslu, t.d.
á vegum National Center for Complementary and
Alternative Medicine í Bandaríkjunum. Sú stofnun stendur
fyrir rannsóknum á óhefðbundnum meðferðum og veitir
einnig styrki til rannsókna á þeim.
Það er von höfundar að grein þessi hafi í senn náð að
veita þekkingu og yfirsýn yfir þær aðferðir sem í boði eru
og ekki teljast til hefðbundinna læknismeðferða. Þekking á
þeim erforsenda hreinskilinna, fræðandi og fordómalausra
samskipta við sjúkling. Mikilvægt er að heilbrigðisstarfsfólk
sýni skilning og hafi innsæi inn í væntingar sjúklings.
Æskilegt er að geta gefið faglegt og vandað mat á þeim
meðferðum sem sjúklingur kýs að nýta sér utan hins
hefðbundna heilbrigðiskerfis og vera meðvitaður um
hugsanleg áhrif þeirrar meðferðar á þá læknisfræðilegu
meðferð sem verið er að veita sjúklingnum.
/ 08 Læknaneminn 2007