Læknaneminn - 01.04.2007, Blaðsíða 113
Hannes Blöndal lætur af störfum
sem prófessor við læknadeild
Nú í vor lætur af störfum einn merkasti kennari
læknadeildar, Hannes Blöndal prófessor í líffærafræði.
Hannes hefur kennt læknanemum líffærafræði frá haustinu
1972, en þá tók hann við af prófessor Jóni Steffensen sem
annast hafði anatómíumenntun læknanema frá árinu 1937
eða í 35 ár. Hannes hefur þannig jafnað 35 ára setulengd
fyrirrennara síns nú í vor. Hafa skal þó í huga að mun fleiri
læknar hafa útskrifast undan væng Hannesar, en þeirtelja
hátt í 1400 [1]. Þetta langlífi í vandasömu starfi segir sitt
um Hannes. Það hefur líka óvæntan kost í för með sér
fyrir nemendur hans þar sem stúdentar í dag eiga það
sameiginlegt með stórum hluta kennara deildarinnar að
hafa lærtsína líffærafræði hjá prófessor Blöndal. Brúarþessi
staðreynd kynslóðabilið í samræðum innan spítalans, þar
sem iðulega kemur í Ijós að Hannes hefur verið samur við
sig allt frá upphafi: fróður og kröfuharður, með hárbeittan
húmor og skjót tilsvör.
Kennslustíll Hannesar er flæðandi og kannast margir við
þá ógurlegu upplifun að sitja fyrsta tímann þar sem Hannes
bunaði út úr sér latínu- og grískuheitum jafnframt því sem
hann, án fyrirhafnar, rissaði mynd af umræðuefninu upp á
töflu. Eftir nokkra daga var maður þó kominn upp í tempó
en það að fylgja Hannesi eftir var full vinna. Hannes notaði
teikningar ríkuiega við skýringar, en dygðu þær ekki til
greip hann nálæga muni til útskýringar eða hreinlega lék
viðkomandi líffæri.
Hannes hefur í sinni tíð staðið fyrir umbótum í kennslu
deildarinnar og var í fararbroddi tölvuvæddrar kennslu er
hann setti upp tölvuver með kennsluforritum í anatómíu á
tíunda áratugnum. Þá má ekki gleyma kennslubókunum
sem Hannes hefur skrifað fyrir líffærafræðinámskeiðið.
Þessar bækur hafa mótað grunnþekkingu margra lækna á
Islandi í líffærafræði og reynst notadrjúgar í náminu.
Hannes var heiðursgestur á árshátíð Félags læknanema
árið 2001, en læknanemar þakka Hannesi aftur innilega
fyrir störf sín, meðvitaðir um það að sæti hans verður ekki
auðfyllt.
[1: Læknatalið 1999 kveðurá um að 1132 hafi útskrifast
frá læknadeild HÍ á árunum 1972-1999. Fyrstu 3
árgangarnir lærðu ekki hjá Hannesi. Síðan 1999 hafa um
300 nemendur útskrifast frá læknadeild samkvæmt
gögnum læknadeildar.]
Læknaneminn 2007 113