Læknaneminn - 01.04.2007, Page 136

Læknaneminn - 01.04.2007, Page 136
Verkefni 3. árs læknanema aðilar sækja bætur til TR (32%) eða til vátryggingafélaga (60%). TR samþykkti bótaskyldu í 53% tilvika og 2% tilvika voru það alvarleg að landlæknir veitti viðkomandi heilbrigðisstarfsmönnum formlega áminningu. Mistök í víðtækri merkingu höfðu átt sér stað í 31% tilvika. Alvarlegur fylgikvilli var algengasta orsök bótaskyldu og því næst röng eða ófullnægjandi greining. Flest mál voru vegna bæklunarlækninga og bótaskylda var samþykkt þar í fleiri tilvikum en öðrum greinum. Einnig voru sjúklingar í bæklunarlækningum, fæðingarhjálp og kvensjúkdómum líklegri en aðrir til að leita með mál sín bæði til TR og Landlæknisembættisins. Ályktun: Ágreiningsmálum í heilbrigðiskerfinu hefur fjölgað gríðarlega hin síðustu ár, einkum og sér í lagi dómsmálum. Aðkallandi erað grípa til markvissra aðgerða með það fyrir augum að fækka slíkum tilvikum, til hagsbóta fyrir alla aðila. Lykilorð: sjúklingatrygging, mistök, kærur, kvartanir, dómsmál Sýklalyfjanotkun og sýklalyfjaónæmi baktería í öndunarvegi barna í Litháen Óli Hilmar Ólason1, Helga Erlendsdóttir1-3, Karl G. Kristinsson1-3, Ásgeir Haraldsson1'2 Læknadeild Háskóla íslands1, Barnaspítali Hringsins2, Sýkladeild Landspítali-Háskólasjúkrahús3 Inngangur: Sýklalyfjaónæmi baktería og útbreiðsla ónæmra stofna er víða vandamál. Til að varpa skýrara Ijósi á áhættuþætti þess var rannsókn sett á fót á íslandi og í Litháen þar sem faraldsfræði S. pneumoniae (pneumókokkar) o.fl baktería frá nefkoki er skoðuð. Markmið rannsóknarinnar nú er að meta sýklalyfjanotkun og sýklalyfjaónæmi í Vilnius, Litháen og bera saman við fyrri rannsóknir. Jafnframt er markmið að fá vitneskju um hjúpgerðir pneumókokka, sem börn á leikskólaaldri bera með framtíðarnotkun pneumókokka-bóluefna í huga. Efniviður og aðferðir: Að fengnu upplýstu samþykki foreldra voru tekin nefkokssýni úr heilbrigðum leikskólabörnum frá 13 leikskólum í Vilnius, Litháen. Leikskólar voru valdir þannig að þeir endurspegluðu börn í Vilnius m.t.t. stéttar, uppruna og efnahags. Foreldrar barna fylltu út spurningalista er varðaði sýklalyfjanotkun barnanna, veikindi o.fl.. Sýni voru tekin úr börnum sem skiluðu útfylltum spurningalista. Frá sýnum voru ræktaðir pneumókokkar, streptókokkar af grúppu A og S. aureus. Skimað var fyrir sýklalyfjaónæmi og hjúpgreiningar framkvæmdar á pneumókokkum. Niðurstöður: Alls tók 601 barn þátt í rannsókninni á aldrinum 1-7 ára. Meðalaldur var 5 ár. Beratíðni var eftirfarandi: pneumókokkar43% (258/601), streptókokkar af flokki A 13% (79/601). Hlutfall pneumókokka með minnkað penisillínnæmi (penicillin non-susceptible pneumococci, PNSP) (MIC>0,094pg/ml) var 9% (25/282). Þar af voru 3 alveg ónæmir (PÓP) (MIC>2pg/ml). Einn metisillínónæmur S. aureus (MÓSA) stofn fannst. Um 21% barnanna höfðu fengið >3 skammta sýklalyfja síðastliðna 6 mánuði. Algengasta hjúpgerð pneumókokka var 23F, en alls fundust 26 hjúpgerðir. 51% stofna er að finna í sjögildu próteintengdu bóluefni (prevnar®). Ályktanir: Þrátt fyrir minnkaða notkun sýklalyfja (úr 27% í 21%) jókst tíðni PNSP. Ljóst er að sýklalyfjanotkun hefur áhrif á þróun sýklalyfjaónæmra stofna. Fleira kemur þó til. Ónæmi fyrir >1 sýklalyfi var algengt hjá ónæmum stofnum og þannig hefur makrólíðanotkun stuðlað að penisillínónæmi auk erýþrómýsínónæmis. Með tilliti til faraldsfræði og kostnaðar (um 16.000 ísl. krónur/barn) telur undirritaður ekki ráðlegt að innleiða almenna ungbarnabólusetningu. Highly selective C - reactive protein (hsCRP) in patients with chronic obstructive pulmonary disease (COPD) Ólöf Birna Margrétardóttir1, Þórarinn Gíslason1-2, Gunnar Guðmundsson1-2, and ísleifur Ólafsson3 ^Læknadeild Háskóla íslands,2 Lungnadeild Landspítalans, and 3 Rannsóknastofa Landspítalans Background: Chronic obstructive pulmonary disease (COPD) is a disease state characterized by an accelerated decline in lung function and progressive lower airway and systemic inflammation. Highly selective C - reactive prot- ein (hsCRP) is elevated in systemic inflammation. The possible association of hsCRP and COPD has mostly been evaluated in highly selected patient samples. Objective: To evaluate the association between COPD and hsCRP in randomly selected sample of the Icelandic population and simultaneously to correlate for gender, age, smoking, and body weight. Methods: This study was based on 1000 randomly selected men and women 40 years and older living in Reykjavík and suburbs who where investigated in an international study on the burden of obstructive lung disease www.kpchr.org/boldcopd. In addition their hsCRP values were measured. Results: There was altogether 80.8% participation, 403 males and 355 females, mean age was 57.7 (±12.7) years. Altogether 130 individuals (17.2%) fullfilled intern- ational criteria for COPD based on postdilator spirometry. In addition there were 120 individuals (15.6%) reporting chronic respiratory symptoms. HsCRP measurements were subsequently divided into 4 equally large groups (<0.75, 0.75-1.27, 1.27-3.25 and >3.25 mg/L). High hsCRP values were significantly associated with increasing 136 Læknaneminn 2007
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.