Læknaneminn - 01.04.2007, Síða 137
Verkefni 3. árs læknanema
age, body weight and current smoking as well as pack
years smoked but not with gender. Individuals with low-
ered spirometric values had significantly higher hsCRP lev-
els. This was still significant after adjustment for smoking,
gender, age, and body weight.
Conclusions: In an epidemiological sample of 1000
individuals, COPD was found in 17.2% of the sample.
HsCRP was significantly related to lower spirometric val-
ues, increasing age, body weight, and smoking.
Keywords: C-reactive protein, COPD, body mass index,
gender, age, smoking, spirometry, BOLD.
Greining á þekjuvefsuppruna bandvefslíkra
frumna í brjóstkirtli með staðsetningu á innskoti
víxlveira
Ragnar Pálsson1, Geir Tryggvason3, Valgarður
Sigurðsson1'2-3, Þórarinn Guðjónsson1'2-3, Magnús Karl
Magnússon3
^Læknadeild Háskóla íslands, 2Rannsóknarstofa
Krabbameinsfélags íslands í sameinda- og frumulíffræði,
3Blóðmeinafræðideild LSH
Bakgrunnur: Ummyndun þekjuvefs í bandvef (e.
Epithelial Mesenchymal Transition, EMT) er mikilvægt ferli
ífósturþroska. EMTáséreinnigstaðíýmsum krabbameinum
og er tengt myndun meinvarpa og slæmum horfum. EMT
orsakast af breyttri tjáningu umritunarþátta sem stýra
sérhæfingu frumna en erfitt hefur verið að rannsaka EMT
m.a. vegna skorts á frumulínum sem endurspegla þetta
ferli í frumurækt. Rannsóknarhópur okkar hefur þróað
frumuræktunarlíkan sem sýnir að æðaþelsfrumur örva
umbreytingu þekjuvefsstofnfrumna í bandvefslíkar frumur.
Notuð var stofnfrumulínan D492 sem búin var til með
innskoti víxlveirugenaferju er innihélt E6 og E7, æxlisgen
vörtuveiru-16. í þrívíðrisamræktD492meðæðaþelsfrumum
sýndi hluti D492 frumnanna bandvefslíka svipgerð. Þessar
bandvefslíku frumur voru einangraðar og til varð frumulínan
D492F. Hún tjáir vimentin og umritunarþáttinn Snail, sem
einkenna EMT frumur, og hefur tapað tjáningu ýmissa
þekjuvefspróteina, t.d. viðloðunarsameindarinnar E-
cadheríns. Nýlega einangruðum við tvo sértæka
víxlveiruinnskotsstaði í D492 frumulínunni. Meginmarkmið
þessarar rannsóknar var að staðfesta uppruna D492F frá
D492 á ótvíræðan hátt með greiningu á
víxlveiruinnskotsstöðum í klónuðum frumlínum af D492 og
D492F og renna þannig frekari stoðum undir að EMT
umbreyting hafi raunverulega átt sér stað.
Efniviður og aðferðir: Frumuklónar úr D492 og D492F
frumulínunum voru búnirtil með því að sá stökum frumum
í holubakka og rækta upp. Svipgerð var könnuð með
confocal-smásjárskoðun eftir flúrljómandi mótefnalitun á
kennipróteinum þekju- og bandvefsfrumna og DNA svo
einangrað með fenól-klóróform einangrunaraðferð.
Innskotsstaðsetningar víxlveira í D492 voru staðfestar
með keðjufjölföldun (PCR) á sértækum DNA-röðum sem
náðu yfir samskeyti víxlveira og frumu-erfðamengis í
klónum D492 og D492F. Til frekari athugunar á fjölda
veiruinnskota og samanburðar á þeim milli klóna var notuð
Southern-blettun með geislamerktum þreifara gegn E6 og
E7 genunum. Einnig voru frumulínurnar bornar saman
með hefðbundnum litningarannsóknum. Ræktun á
mjúkagar var framkvæmd til að kanna illkynja
vaxtareiginleika.
Niðurstöður: Alls voru myndaðir 6 klónar úr D492F og
5 úr D492. Svipgerð tveggja D492 klóna var skilgreind
meðónæmisflúrlitunogreyndisteðlilegþekjufrumusvipgerð
enþrírklónarD492Fsemlitaðirvorulíktustbandvefsfrumum,
tjáðu t.d. vimentin en ekki E-cadherín. DNA var einangrað
úr klónum beggja frumulína og tókst að magna upp
sameiginlegan víxlveiruinnskotsstað úr þeim öllum, sem
áður hafði verið skilgreindur í óklónuðum D492. Þessi
innskotsstaður er á litningi 20, framan við genið PTPNl,
sem áður hefur verið einangrað sem innskotsstaður
víxlveiru er talin var valda krabbameinsumbreytingu. Ekki
tókst að magna upp víxlveiruinnskotsstað á litningi 1 úr
klónum D492F en það tókst aftur á móti í einum D492
klónanna. Verið er að kanna fjölda víxlveiruinnskotsstaða
með Southern-blettun á klónum frá báðum frumulínum en
niðurstöður liggja ekki fyrir. Klónar D492F uxu í mjúkagar
en óklónaðar frumur D492 ekki.
Umræða: Við höfum klónað D492 og D492F og staðfest
EMT svipgerð D492F frumulínunnar. Með því að sýna fram
á sameiginlegan víxlveiruinnskotsstað í frumulínunum
tveimur höfum við staðfest að D492F á uppruna í frumum
D492, þ.e. að þessar bandvefslíku frumur hafi umbreyst
frá þekjuvefsstofnfrumum úr brjósti. Vöxtur D492F í
mjúkagar og talsverður munur á karyotýpu frumulínanna í
litningarannsóknum bendir til að D492F kunni að vera
orðnar krabbameinsfrumur. Samspil stoðvefjar og
þekjufrumna er talið þýðingarmikið í tilurð og framþróun
æxlisvaxtar. Áhrif æðaþelsfrumna á D492 stofnfrumulínuna
er áhugavert dæmi um slíkt samspil enda er EMT tengt
framþróun brjóstakrabbameina á ýmsan hátt, svo sem við
meinvörpun og endurupptöku sjúkdóms. D492 og D492F
eru því áhugaverðar frumulínur til frekari rannsókna á EMT
í tengslum við brjóstakrabbamein.
Greining endurþrengsla í stoðnetum kransæða
með klínísku einkennamati og áreynsluþolprófi
Sandra Dís Steinþórsdóttir1, Sigurdís Haraldsdóttir2, Karl
Andersen1'2.
^Læknadeild Háskóla íslands, 2Hjartadeild LSH.
Inngangur
Kransæðavíkkun með stoðnetsísetningu er árangursrík
meðferð við kransæðaþrengslum. Þráttfyrirgóðan árangur
víkkana verða endurþrengsli í stoðneti í allt að 20-30%
Læknaneminn 2007 1 37