Læknaneminn - 01.04.2007, Page 142

Læknaneminn - 01.04.2007, Page 142
 Verkefni 3. árs læknanema Sylvía Oddný Einarsdóttir1 , Sigurveig Pétursdóttir2, Gunnar Sigurðsson3, Ragnar Bjarnason4, ísleifur Ólafsson5 Læknadeild Háskóla íslands1, Skurðlækningasvið LSH2, Innkirtla og efnaskiptadeild LSH3, Barnasvið LSH4, Rannsóknarsvið LSH5, Bakgrunnur: Osteogenesis imperfecta 01 er arfgengur sjúkdómur. Orsök sjúkdóms er í flestum tilfellum stökbreyting í einu af tveimur genum sem tjá fyrir alfa- keðju kollagens af týpu 1. Eitt helsta einkenni sjúkdómsins eru stökk bein sem brotna auðveldlega og mismunandi utan stoðkerfis einkenni geta fylgt. Sjúkdómurinn er flokkaður í fjóra klíníska flokka eftir birtingarmynd. Bisfosfanate lyf koma að gagni í sumum tilvikum, auk endurhæfingar og bæklunaraðgerða og er því mikilvægt að sjúklingahópnum sé fylgt vel eftir. Markmið rannsóknar var að fá heildaryfirlit yfir sjúkdóminn á íslandi, fjölda sjúklinga, klíníska mynd, brotasögu, upplýsingar um stoðkerfisverki, kanna beinbúskap, mat með tilliti til lyfjameðferðar, flokkun og erfðagreining. Efniviður og aðferðir: Læknar sem að rannsókn stóðu komu með sína sjúklinga inn og haft var samband við allar heilsugæslustöðvar á landinu og þær beðnar um ábend- ingar. Viðkomandi var síðan sent bréf og athugað hvort hann væri samþykkur þátttöku. Var síðan kallað inn til við- tals, skoðunar, beinþéttnimælingar, blóðsýnatöku og þátt- takendur beðnir um frekari ábendingar, þar sem sjúkdóm- urinn erfist oftast ríkjandi og getur því verið í ættum. Niðurstöður:Á rannsóknartímabili voru 42 einstaklingar á landinu sem höfðu klínísku greininguna osteogenesis imperfecta. Algengi á tímabilinu var því 14.0/100.000 íbúa. Á 25 ára tímabili frá 1980-2004 fæddust 13 einstaklingar með 01, 7 drengir og 6 stúlkur . Á þessu tímabili fæddust á íslandi 108.030 böm, og er nýgengi sjúkdómsins því 1 : 8310 miðað við lifandi fæðingar eða 2.4 : 20.000 lifandi fæddir. Hlutfall drengja og stúlkna var 1.17:1 af þessum 13 börnum voru 12 með týpu I 01 en 1 með týpu III 01. Ályktun: Samkvæmt erlendum heimildum er nýgengi sjúkdóms talið vera 1:10 -20.000 eftir því hvaða heimildir eru skoðaðar. Nýgengi hér er meira. í nýgengis útreikn- inga okkar vantar upplýsingar um fóstureyðingar sem hugsanlega hafa verið framkvæmdar vegna sjúkdómsins. Einnig er ekki vitað hvort eitthvert barn hafi fæðst á þessu tímabili með alvarlegasta form sjúkdómsins týpu II osteog- enesis imperfecta, þar sem þau deyja oftasta á burðar- málsskeiði. Má því áætla að nýgengi geti verið enn meira hérlendis. Heilabólga af völdum rauðra hunda, birtingarmynd og langvinnar afleiðingar. Yfirlit yfir sögu rauðra hunda á íslandi. Vaka Ýr Sævarsdóttir1, Pétur Lúðvígsson1-2, Ýr Sigurðardóttir2 Læknadeild Háskóla íslands1, Barnaspítali Hringsins2 Inngangur: Rauðir hundar (rubella) er veirusjúkdómur í sem kemur oftast fram í börnum. Hann veldur rauðum flötum útbrotum sem byrja oftast í andliti og fara svo á búk og útlimi. Útbrotin ganga yfirleitt yfir á 3 dögum. Sýkingu fylgir oft vægur hiti og eitlastækkanir á aftanverðum hálsi og á hnakka. Um helmingur sýkinga eru forklínískar (subclinical) þar sem einkennin eru mjög væg en hægt að sýna fram á smit með mótefnamælingum. Fram til 1941 var talið að rauðir hundar væri sárameinlaus sjúkdómur, en þá uppgötvaði ástralskur augnlæknir, Gregg, að tengsl væru milli rauðu hunda sýkinga í þunguðum konum og meðfæddri þlindu (cataract). Fljótlega kom í Ijós að áhrif veirunnará fóstureru mun umfangsmeiri, m.a. hjartagallar, heyrnarleysi og þroska- og vaxtarskerðing, svokallað rauðhundaheilkenni (congenital rubella syndrome). Heilabólga er sjaldgæfur fylgikvilli rauðra hunda, er talið að komi fram í um 1:6000 rauðu hunda smitum. Heilabólga kemur einkum fram hjá þeim sem sýkjast á unglings- eða yngri fullorðinsárum. í síðasta rauða hunda faraldri sem gekk á íslandi 1992-1996 greindust 5 tilfelli heilabólgu/ heilahimnubólgu vegna rauðra hunda. Hér er þessum tilfellum lýst með eftirfylgd 12-14 árum eftir greiningu. Tilfelli og aðferðir: Þáttakendur voru 5 drengir á aldrinum 10-20 ára sem veiktust af heilabólgu vegna rauðra hunda í faraldri 1992-1996, en það eru einu þekktu tilfellin á íslandi. Sjúkraskrár voru skoðaðar, lagðir voru spurningarlistar um heilsufar og mögulegar langvinnar afleiðingar fyrir þátttakendur og framkvæmd taugaskoðun. Niðurstöður: Einn sjúklingur glímir enn við langvinnar afleiðingar heilabólgunnar og annar bjó við vægar eftirstöðvar í nokkra mánuði eftri veikindin. Hinir 3 náðu sér að fullu. Ályktanir: í þeim heilabólgutilfellum sem áður hefur verið lýst hefur dánartíðni verið allt að 30%. Langvinnum afleiðingum hefur einnig verið lýst, einkum þunglyndi og hreyfitruflunum. Lítið hefur verið skrifað um heilabólgu vegna rauðra hunda á síðari tímum og er þessi rannsókn ein fárra slíkra þar sem sjúklingunum er fylgt eftir. Bólusetningar á íslandi hófust árið 1977 meðal mótefnaneikvæðra 12 ára stúlkna, en síðan 1989 hafa öll börn verið bólusett við 18 mánaða og 12 ára aldur með þrígildu bóluefni (MMR, mislingar, hettusótt og rauðir hundar). Þar sem engar mótefnamælingar eru gerðar á þeim börnum sem einungis hafa fengið bólusetningu með 7 42 Læknaneminn 2007
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.