Læknaneminn - 01.04.2010, Page 49
1. Gerðu þér grein fyrir því að þú bakar með hjartanu
- með sálinni - og þú verður að leggja alla þína ást í
gerið.
2. Þvoðu þér um hendurnar, þær eru drulluskítugar.
3. Enn og aftur ætla ég að hamra á fyrsta atriðinu. Ég vil
fá innlifun í minn bakstur!
4. Farðu yfir skiptingu amínósýra í glúkó-, ketó og
lípógenískar og lífnauðsynlegar og lífónauðsynlegar. -
það sakar aldrei að muna slíkt.
5. Þegar allt þetta er búið getur þú loksins byrjað að
framkvæma kraftaverkið:
6. Þú tekur mjólkina og hellir henni í pott, þú hitar
mjólkina þar til hún verður ylvolg og bætir geri út í.
ATH: í guðanna bænum EKKI gleyma að setja ger.
7. Þar næst hrærir þú í hrærivél smjörinu og sykrinum
saman og bætir svo egginu og saltinu út í.
8. Helltu svo germjólkinni saman við.
9. Hrærðu hveitið út í, þetta skaltu drullast til að
gera hægt og rólega því annars fer allt í fokk og
enginn vill vera vinur þinn lengur. Að lokum
muntu þurfa að hnoða deigið saman í höndunum.
ATH: Ef notað er þurrger má blanda því út í hveitið
áður en því er hellt í blönduna.
10. Nú er kominn tími til að láta deigið hefast í 30 - 60 min.
Á meðan geturðu rifjað upp segmental innervation
viðbragðsboga í útlimum.
11. Þegar deigið hefur hefast nóg á það að vera búið að
tvöfalda rúmmál sitt, þ.e. V = VO-2. Þá skaltu hnoða
deigið, við það mun það falla saman og er óþarfi að
vera hræddur við það. Skiptu því svo í fjóra hluta og
flettu hvern hluta út í kringlóttar flatkökur.
12. Á meðan deigið er að hefast og ef þú manst alla
reflexana upp á hundrað geturðu gert fyllinguna:
Hrærðu saman smjör (við stofuhita) og vanillusykur
og bættu svo rifnu marsipaninu út í.
13. Dreifðu svo fyllingunni yfir flatkökurnar - skildu þó
kant eftir svo þú subbir ekki út um allt - og stráðu svo
súkkatinu yfir.
14. Því næst skaltu taka alla kanta pönnukökunnar og
sameina þá inn að miðjunni svo úr verði deigbolti
með fyllingunni inn í. Snúðu svo deiginu við svo að
samskeytin snúi niður. ATH: Mikilvægt er að loka
samskeytunum vel með því að klípa þau saman svo að
marsipanið leki ekki út.
15. Láttu deigið hefast í nokkurn tíma og penslaðu það svo
áður en það er sett inn í ofninn.
16. Brauðið skal bakast við 473 K í 25 mín.
17. Brauðið skal borðast af bestu lyst.
Ef ske kynni að þú hafir gleymt því að setja ger skalt þú
ekki örvænta því ég get hér kynnt þig fyrir ákveðnu líkani sem
getur hjálpað þér að komast yfir áfallið og kvíðann og sorgina
sem honum fylgir. Líkanið kallast HAM-líkanið og hefur það
hjálpað mörgun fávísum bökurum að komast yfir vandamál
sín. Geðdeild LSH og jafnframt fjölmargir sjálfstætt starfandi
sálfræðingar geta veitt þér meðferðina og beint þér á ný inn á
braut hamingju og vel hefaðs brauðs.
Það kemur fyrir að fólk misstigi sig og gleymi gerinu, en þá má
maður ekki halda þvf fram að maður geti ekkert gert rétt - það
vantar alltaf prófyfirsetufólk.
Ef samstarfsaðili þinn veit ekki hvað egg er skaltu benda
honum á það. Það getur verið erfitt að greina þau frá
hjónabandssælusneiðunum.
»■
-m