Bændablaðið - 21.09.2023, Page 2

Bændablaðið - 21.09.2023, Page 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023 FRÉTTIR BÆNDAFUNDIR LÍFLANDS 3.-5. OKTÓBER Nánari upplýsingar og skráning á lifland.is Veitingar, happdrætti, umræður og fræðsla Hlökkum til að sjá þig 3.okt. kl. 12-15 Hvolsvöllur 4.okt. kl. 12-15 Borgarnes 5.okt. kl. 12-15 Varmahlíð 3.okt. kl. 19-21:30 Selfoss 4.okt. kl. 19-21:30 Blönduós 5.okt. kl. 19-21:30 Akureyri Fjárlagafrumvarp: Garðyrkjubændur í áfalli – Aukið framlag til kornræktar og arfgerðarannsókna en aðrir á horriminni Einu landbúnaðartengdu verk­ efnin í fjár lögum ríkisins fyrir árið 2024 sem fá aukið framlag eru tengd dýrasjúkdómum og eflingu kornræktar. Vilji stjórnvalda til að hlúa frekar að innlendum landbúnaði, svo sem vegna fæðuöryggis og sjálfbærni, er lítt merkjanlegur í fjárlögunum að öðru leyti. Athygli vekur að t.d. garðyrkjan býr áfram við rýr framlög þrátt fyrir vilyrði stjórnvalda um að bæta þar um betur. „Það eru gríðarleg vonbrigði að sjá núverandi stjórnvöld hunsa gerða samninga og svíkja gefin loforð,“ segir Axel Sæland, formaður búgreinadeildar garðyrkjubænda. „Enn ein fjárlögin og enginn áhugi er hjá núverandi stjórnvöldum að standa við eigin orð. Við erum með samning sem er til endurskoðunar á þessu ári og þar ætla stjórnvöld ekki að gera neitt til að uppfylla sínar skyldur og þar af leiðandi eiga bændur ekki möguleika á að gera sitt,“ heldur Axel áfram. Einnig hafi komið skýrt fram í stjórnarsáttmála að efla ætti garðyrkju í landinu til muna, með föstu niðurgreiðsluhlutfalli á raforkuverði til ylræktar og sérstökum stuðningi við útiræktun í gegnum búvörusamninga. Enginn áhugi sé nú hjá stjórnvöldum að standa við þessi fyrirheit. Gríðarleg vonbrigði garðyrkjubænda „Íslenskt grænmeti er gæðavara sem er að verða ósamkeppnishæf við innflutt grænmeti vegna þess hversu dýrt er að framleiða,“ segir Axel. „Bændur þurfa að velta öllum kostnaði yfir í verðlag þar sem stjórnvöld ætla sér ekki að koma til móts við greinina. Sem raungerist í því að innfluttar garðyrkjuafurðir verða mun ódýrari samanborið við þær íslensku. Þetta stangast algerlega á við markmið núverandi samnings,“ segir hann enn fremur. Um 100 fyrirtæki eru í garðyrkju á Íslandi, að sögn Axels. Í ylrækt sé launakostnaður orðinn langstærsti einstaki kostnaðarliðurinn, 40%, og raforkukostnaður um 15–20% af heildarkostnaði. Áburðarkostnaður sé ekki hár af heildinni í ylrækt en verulegur kostnaður í útirækt. Innleiðingu verndandi arfgerða hraðað Aukið framlag á fjárlögum 2024 til arfgerðagreiningar verndandi arfgerða íslensks sauðfjár nemur 110 m.kr. og til aukinnar innlendrar framleiðslu á korni til fóðurs og til manneldis 198 m.kr. „Hvað varðar aukningu í kornrækt og sauðfjárræktun þá eru þetta fjármunir sem samþykktir voru af ríkisstjórn í vor, bæði á grunni skýrslunnar Bleikra akra (aðgerðaáætlun Landbúnaðarháskóla Íslands um aukna kornrækt) og riðurannsóknum, þetta eru nýir fjármunir og við fögnum því,“ segir Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands. Varðandi lækkun á öðrum fjármunum til landbúnaðar sé verið að skoða þá liði nánar innan samtakanna. Í greinargerð Landbúnaðarháskóla Íslands kemur fram að hægt væri að innleiða verndandi arfgerðir gagnvart riðusmiti á takmörkuðum svæðum þannig að eftir fimm ár verði yfir 80% ásetts fjár á mestu áhættusvæðunum arfblendið eða arfhreint fyrir verndandi samsætum og þar af leiðandi ólíklegt til að veikjast af riðu. Kynbótastarf, innviðir og beinn stuðningur Hækkun um 198 m.kr. til aðgerða sem eiga að stuðla að aukinni innlendri framleiðslu á korni til fóðurs og til manneldis gerir ráð fyrir að fjármagnið skiptist á milli verkefna til fjárfestingarstuðnings og innviðauppbyggingar í kornrækt annars vegar og beins stuðnings við kornframleiðslu hins vegar. Fyrri hluta tímabilsins verði megináhersla lögð á kynbótastarf og innviðauppbyggingu og á síðari hluta verði innleiddur beinn stuðningur við kornframleiðslu, í samræmi við áherslur sem birtast í aðgerðaáætlun Landbúnaðarháskólans um aukna kornrækt, Bleikum ökrum. Gert er ráð fyrir að á komandi árum fari framlagið til verkefnisins stighækkandi. Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir að heildarframlag til landbúnaðar árið 2024 nemi 22.961,2 m.kr. Þar af er 741 m.kr. eyrnamerkt í rannsóknir, þróun og nýsköpun í landbúnaðarmálum. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 126,6 m.kr. að raungildi. Framlög til búvörusamninga lækka skv. frumvarpinu um 326 m.kr. í samræmi við fjármagnsliði samninganna. Sjá nánar um fjárlagafrumvarpið og landbúnaðinn á síðu 18. /sá Garðyrkjan ríður ekki feitum hesti frá fjárlagafrumvarpi komandi árs fremur en aðrar búgreinar. Mynd / Bbl Grænlamb: Sauðfjárafurðir af sjálfbæru beitilandi Nú í haust verða íslenskar sauðfjárafurðir af vel grónu og sjálfbæru beitilandi í fyrsta skiptið markaðssettar á Íslandi. Vörurnar verða seldar undir vörumerkinu Grænlamb, sem er verkefni þriggja kvenna sem stunda sauðfjárbúskap í Kelduhverfi. „Okkar framtíðarsýn er meðal annars að efla sauðfjárrækt í Kelduhverfi og gera það að eftirsóttum stað til búsetu,“ segir Guðríður Baldvinsdóttir í Lóni 2, sem er ein þeirra þriggja sem standa að verkefninu. Hinar konurnar eru Salbjörg Matthíasdóttir í Árdal og Berglind Ýr Ingvarsdóttir, Fjöllum 2. „Það viljum við gera með því að byggja á styrkleikum okkar – framleiðslu sauðfjárafurða á vel grónu landi í sátt við náttúruna, sem verða verðlagðar hærra á þeim forsendum. Lykilorð okkar er sjálfbærni, bæði hvað varðar landnýtingu og búrekstur.“ Vel gróið beitiland í Kelduhverfi Að sögn Guðríðar hefur Keldu- hverfi þá sérstöðu að mest allt beitiland er þar vel gróið. Um 90 prósent af því fellur í tvo bestu flokkana samkvæmt flokkunarkerfi GróLindar, sem metur og vaktar ástand gróður- og jarðvegsauðlinda landsins auk þess að þróa sjálfbærnivísa fyrir landnýtingu á Íslandi. Á landsvísu er hlutfallið um 40 prósent. „Unnið hefur verið að verkefninu með hléum, samhliða öðrum störfum, enda erum við í verkefnisstjórninni í mörgum hlutverkum eins og aðrir sauðfjárbændur. Upphaf verkefnisins var þátttaka í Hacking Norðurland, frumkvöðlakeppni sem haldin var á vormánuðum 2021 og við unnum. Síðan fengum við ágætan styrk úr Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2022 sem gerði okkur kleift að halda áfram,“ segir Guðríður. Stefna á að vörurnar fáist víða Takmarkið með verkefninu er að vörur seldar undir merkjum Grænlambs fáist víða, bæði beint frá býli og í völdum verslunum og kjötvinnslum. Einnig að veitingastaðir bjóði upp á Grænlambskjöt. Í byrjun verður hægt að kaupa vörur frá þeim þremur bæjum sem eru þátttakendur í verkefninu. „Nú erum við komnar á þann stað að gera okkur sjálfar að tilraunadýrum og prufukeyra verkefnið í haust með að selja milliliðalaust okkar vörur. Við vonumst eftir góðum undirtektum því að sjálfsögðu viljum við taka verkefnið áfram og leyfa því að þróast,“ segir Guðríður. Leitað eftir samstarfsaðilum um markaðssetningu Aðrir bændur í Kelduhverfi eru jákvæðir út í verkefnið, að sögn Guðríðar, en hafa ekki allir áhuga eða tök á að vera sjálfir í beinni markaðssetningu og sölu. Þær sjá því fyrir sér samstarf í framtíðinni við aðila sem geta tekið þann þátt til sín. „Við viljum ná til þeirra neytenda sem hafa dregið úr eða jafnvel hætt neyslu lambakjöts vegna fyrirkomulags landnýtingar í dag en einnig stórs kolefnisspors. Við viljum sumsé vinna til baka þann markað.“ Vilja ná til nýrra neytenda „Það var gerð óformlega skoðana - könnun á opnu Facebook-síðunum Gamaldags matur og Matartips sem sýndi að tæplega 50 prósent svarenda myndu frekar kaupa lambakjöt af vel grónu landi og að 80 prósent þeirra væru tilbúin að borga meira fyrir það en annað lambakjöt. Við höfum því fulla trú á að það sé eftirspurn eftir þeirri vöru sem Keldhverfingar hafa upp á að bjóða. En við erum ekki eingöngu að tala um lambakjöt, því við erum einnig að vinna með ullina og ein okkar býður upp á ullarband af sínum kindum,“ segir Guðríður. Á næstu dögum verður vefur verkefnisins opnaður á slóðinni graenlamb.is, þar er ýmsan fróðleik og upplýsingar að finna. Guðríður segir að þær taki gjarnan við fyrirspurnum í gegnum netfangið graenlamb@graenlamb.is. /smh Merki Grænlambs. Eyjafjörður: 2.500 tonna kornþurrkstöð borgi sig frekar 25 af 33 eyfirskum bændum sem spurðir voru, sögðu að þeir myndu myndu nýta sér kornþurrkstöð í firðinum ef hún yrði reist. Jafnframt myndu ríflega 60 prósent aðspurðra leggja til hlutafé og tæp 72 prósent myndu auka ræktun. Þetta kemur fram í lokaverkefni Oddleifs Eiríkssonar í búvísindum við Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ). Þar er gengið út frá því að kornþurrkstöð yrði reist að Syðra-Laugalandi í Eyjafirði og kostnaður borinn saman við notkun á þurrkstöð sem til stendur að reisa skammt frá Húsavík. Sé 1.000 tonna kornþurrkstöð reist í Eyjafirði verði kostnaður við rekstur einingarinnar það hár að hagkvæmara væri að flytja kornið um lengri veg. Oddleifur segir í lokaorðum verkefnisins að ljóst sé að ýmsar forsendur til kornþurrkunar séu til staðar í Eyjafirði. Mismunur á flutningi korns að Syðra-Laugalandi samanborið til Húsavíkur sé 2,6 krónur á kílóið. Sé einungis miðað við flutningskostnað, þá væri hagkvæmara að reisa þurrkstöð í Eyjafirði í ljósi þess að kornrækt er umfangsmeiri þar en í Þingeyjarsveit. Vissulega sé stærðarhagkvæmni að samnýta þurrkstöð við Húsavík og hún sé líklega vanmetin. Til standi að sú þurrkstöð nýti glatvarma, sem sé orka sem fari til spillis, og þurrki bæði korn og framleiði grasköggla. Oddleifur greinir nánar frá verkefninu í aðsendri grein á blaðsíðu 52 í þessu blaði. /ÁL Mikill áhugi er á kornþurrkstöð meðal eyfirskra bænda, en ríflega 60 prósent myndu leggja inn hlutafé.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.