Bændablaðið - 21.09.2023, Síða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023
Fjöldi fólks mætti í opin fjós á kúabúinu í Birtingaholti í
Hrunamannahreppi og kúabúinu á Spóastöðum í Bláskógabyggð
sunnudaginn 17. september.
Ástæðan var 75 ára afmæli hollenska fyrirtækisins Lely, sem er með
starfsemi á Íslandi, en fyrirtækið sérhæfir sig í sölu á hátæknitækjum
til landbúnaðarstarfa. Í báðum fjósunum eru mjaltaþjónar og önnur
tæki frá Lely. „Við höfum verið með tvo nýja
mjaltaþjóna frá fyrirtækinu í eitt ár og líkað
vel, auk annarra tækja eins og kálfafóstrunnar,“
segir Fjóla Ingveldur, kúabóndi í Birtingaholti.
Þar eru um 130 kýr í fjósinu og mjólkurkvótinn
er um 830 þúsund lítrar.
Lely hefur selt um 200 mjaltaþjóna á
Íslandi frá 1999 og er salan alltaf að aukast.
„Það vantar meiri mjólk á Íslandi en það eru
ferðamennirnir sem gera það að verkum.
Það er því um að gera fyrir bændur að
standa sig og framleiða mjólk með hjálp
tækninnar. Mjaltaþjónarnir vinna jú allan
sólarhringinn fyrir bóndann og standa sig vel
í því hlutverki,“ segir Jóhannes Kjartansson,
sölumaður hjá Lely í Reykjavík, en fyrirtækið
er líka með starfsemi á Akureyri. /MHH
LÍF&STARF
Fyrstu tvær vísur þessa þáttar fengu
ekki inni í síðasta þætti. Báðar eru
þær eftir Rósberg G. Snædal og
er fyllsta ástæða til að koma þeim í
þennan þátt. Engin orð þarf til að lýsa
ágætum vísnanna frekar en öðrum
kveðskap hans. Fyrri vísuna nefnir
hann „Heilræði“.
Fóta gáðu fyrr og síð,
fræi sáðu bestu.
Kveddu dáð í deigan lýð,
dugnað, ráð og festu.
Seinni vísuna nefnir Rósberg einfaldlega
„Mannlýsingu“.
Heyri ég yfir höfði þyt
af Heljar vængjum þöndum.
Verkin dreymd og vonaglit
verð ég að láta af höndum.
Fjölgaði niðjum, fékk sér „snaps“,
felldi í miðju taflið.-
Lengi í viðjum lagastafs
lék við „þriðja aflið“.
Ingólfur Ómar Ármannsson kjótlar
annað slagið vísum til mín. Þessi er
nýfædd og nefnist „Haust“.
Haustið er að hefja spjöll,
hvellt í vindum gnauðar.
Blómin visin eru öll
og allar flugur dauðar.
Svo bárust mér í bréfi frá Ágústi, syni
Orms, nokkrar vísur eftir föður hans, Orm
Ólafsson. Ormur nefnir þær einu nafni
„Skophendur“:
Vandasamt er vísna svið,
vissar hömlur setur.
Illa samið upphafið
enginn botnað getur.
Finnst að vonum fjandi hart,
fyllir hugann ergi,
þó fundið hafi fyrripart
finn ég botninn hvergi.
Upphafið á enga stoð,
eyðir rósemd hverri.
Byrjunin er bölvað hnoð,
-botninn ennþá verri.
Fyrripartur fundinn hér,
fagna slíku gengi,
í Borgarfirði botninn er
búinn að vera lengi.
Hönnun vísna hætta verð,
höfuðstöfum kuðla.
Vonlaus orðin vísnagerð,
-vantar rím og stuðla.
Eftir Jónas Illugason er þessi vísa:
Melar gróa og hellnahraun
hátt til jökulása,
en það er meira en meðalraun
ef manndómshagar blása.
Stefán frá Hvítadal orti þessi
sléttubönd undir stuttstafahætti:
Saxa árin nærri ná
naumum svanna vonum,
vaxa sárin ára á
aumum manna sonum.
Sigurður Halldórsson orti þessa vísu:
Enginn gleymir æskurann,
ástin geymist falin,
oft því dreymir útlagann
aftur heim í dalinn.
Gestur Jóhannsson orti:
Höfuðþing í heimi veit
harmur kring þó geysi,
til að ringa tárin heit
tilfinningaleysi.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Tveir mjaltaþjónar frá Lely eru í fjósinu í Birtingaholti, sem hafa reynst
vel, en fyrirtækið er brautryðjandi í róbótatækninni í fjósum.
Kúabændurnir í Birtingaholti 4 en það eru þau Sigurður Ágústsson og Fjóla
Ingveldur Kjartansdóttir, ásamt Heimi, syni þeirra, og konu hans, Dagnýju
Lilju Birgisdóttur, og strákunum þeirra, þeim Emil (sá eldri) og Matthíasi Ara.
Fjóla Ingveldur að sýna hvernig kálfafóstran virkar í gegnum tölvubúnaðinn, en hver kálfur er að fá um 12 lítra af mjólk á dag í fjósinu í gegnum sérstakt skömmtunarkerfi.
Fjöldi gesta mætti í opna fjósið í Birtingaholti, meðal annars Magnús H. Sigurðsson
og Guðbjörg Björgvinsdóttir, sem búa í Birtingaholti og systurnar Guðbjörg og
Margrét Runólfsdætur, sem búa á Flúðum.
Lely 75 ára – opin fjós í
Birtingaholti og Spóastöðum
Jóhannes Kjartansson, sölumaður hjá Lely, en á Íslandi starfa um 20 manns hjá fyrirtækinu. Myndir / MHH