Bændablaðið - 21.09.2023, Side 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023
FRÉTTIR
Ljárskógarétt:
Fé fækkað um 3.500 á undanförnum árum
Laugardaginn 2. september var
réttað í Ljárskógarétt í Dölum,
rétt norðan Búðardals. Að sögn
Ágústs G. Péturssonar, bónda í
hinu forna höfuðbóli Hjarðarholti
í Laxárdal, kom fé þokkalega vænt
af fjalli, en smalað var Ljárskóga- fjall
í Dölum.
„Miðað við hvernig vorið var þá
finnst mér það koma bara nokkuð vel
af fjalli og mér heyrist á öðrum hér
sveitinni að þetta sé alveg þokkalegt.
Það gekk vel að smala, þetta var svona
nálægt tvö þúsund sem við rákum í
réttina. Fé hér í Dölunum hefur fækkað
mjög á undanförnum árum, sérstaklega
hér í Laxárdal þar sem mér telst til að
hafi fækkað um 3.500 á síðustu fimm
til sex árum.
Þetta er mjög slæm þróun þar sem
sauðfjárrækt hentar einstaklega vel á
okkar svæði.“
Ósáttur við afurðaverðið
Ágúst reiknar með að senda sín lömb
til slátrunar á næstu dögum, en honum
líst ekki nógu vel á afurðaverðið sem
sauðfjárbændum er boðið upp á. „Ég
hefði viljað fá það upp í þúsundkallinn
fyrir kílóið,“ segir hann. „Núna fáum
við ekki þessar greiðslur sem komu úr
spretthópnum, vegna áburðarkaupanna
– og það munar miklu um það.“
Spurður hvort þau taki eitthvað heim
til vinnslu, segir hann að það sé ekkert
svigrúm til þess – nóg sé fyrir þau að
sjá um sjálfan búskapinn, en þau Björk
Baldursdóttir, kona hans, eru með um
800 fjár á vetrarfóðrum. „Við höfum
verið með erlendar ungar konur hér í
allnokkur ár til að hjálpa okkur bæði á
sauðburði og í göngum og réttum. Það
hefur verið mjög ánægjulegt og góð
kynni tekist með okkur,“ segir Ágúst.
/smh
Ágúst G. Pétursson, bóndi í Hjarðarholti í Dölum, nýkominn í Ljárskógarétt ofan af Ljárskógafjalli.
Féð komið í Ljárskógarétt sem stendur í botni Hvammsfjarðar. Handan fjarðarins sér í Skeggjadal á Fellsströnd.
Þar er Hvammur, hið forna höfðingjasetur og landnámsjörð.
Svanborg Einarsdóttir og Elna Haraldsdóttir.
Hermann Bjarnason og Gróa Magrét Viðarsdóttir.Þessi sáu um fjárdráttinn fyrir Hjarðarholt. Arnór Guðmundsson, Björk Baldursdóttir, Laura Jäger, Lucia Kohoutová,
Ágúst Pétursson, Annika Döring og Pauline Flörke.
www.kofaroghus.is - Sími 553 1545
TIL Á LAGER
Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik
STAPI - 14,98 fm
Tilboðsverð
779.000 kr.
25%
afsláttur
BREKKA 34 - 9 fm
Tilboðsverð
489.000 kr.
25%
afsláttur
NAUST - 14,44 fm
Tilboðsverð
539.000 kr.
30%
afsláttur
VANTAR
ÞIG PLÁSS?
Afar einfalt er að reisa
húsin okkar. Uppsetning
tekur aðeins einn dag
TILBOÐ Á GARÐHÚSUM!